Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Qupperneq 68

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Qupperneq 68
68 því á veturna eru líka minstar ferðir — og eg hefi líka fengið ný loforð fyrir mörgu. — Frá Worsaae hefi eg eingin skeyti fengið, en það er gott, að maður hefir frá þeim nóg loforð, ef við þurfum að grípa til þess. Annars liggur ekki á því i augnablikinu, því nú er mest undir því komið, að tryggja safnið og vernda það, sem komið er, frá skemdum, og reyna að koma því sómasamlega fyrir, því þá getur maður fyrst talað djarfara, bæði til þeirra og eins landa okkar; því varla er að búast við, að menn haldi áfram að gefa safni út í bláinn, sem er húsnæðislaust, og sem eingum verður sýnt eins og nú er með safnið. Þegar þetta væri komið í lag, þá ættum við að höggva inn á Worsaae, því að fyr held eg það sé ekki til annars en nærri því að auka vandræðin, að fá hluti frá þeim; að sönnu mætti pakka það ofaní kassa, eins og flesta aðra muni safnsins, en það eru aum neyðarkjör. Líka er mikið undir því komið, safnsins vegna, að eg geti haldið pín- una út, og haft efni á að vinna fyrir safnið það sem helzt þarf, því annars mun því vera hætt. Hér er í augnablikinu mjög hart, bæði með penínga og annað, og íllt að fá það litla, sem maður á tii góða. Þess vegna verð eg að segja yður það frómlega, að það er mjög áríðandi og nærri því lífsspursmál, bæði fyrir mig og safnið, að eg fái, ef mögu- legt væri með næsta skipi, þá penínga, sem voru óborgaðir fyrir skýrsluna; — eg skyldi ekki nefna það á nafn, ef eg gæti. — Hér hafa verið haldnar tombólur bæði handa kaupmanna- og handverksmanna-sjóðum, og þar á ofan ætla einhverjar háæruverðugar eða allrar æru verðugar embættismanna-dætur og -konur að halda tombólu fyrir prestekknasjóðinn í sumar. Þetta er mikið fallegt og lofsvert, ef eingar af þeim sömu væru þær sömu, sem loflegrar minn- íngar ætluðu að stofna tombólu fyrir alþíngishúsið. Það á nú svo sem að setja svart stryk yfir það mál. Það má nú varla nefna það, án þess menn fari að skyrpa eða bölva. Þarna sjáum við hviklyndi þessarar þjóðar, og hvernig hún þreifar sig áfram í eins konar svíma. Menn verða strax leiðir á öllu og vilja helzt hætta við allt, sem hefir staðið 1—2 ár. Nú bið eg yður að fyrirgefa þessar fáu línur. Yðar vin Sigurður Guðmundsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.