Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Page 26

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Page 26
30 ÁRBÖK FORNLEIFAFÉLAGSINS safninu voru áður til fjórir slíkir prjónar, allir fundnir í jörðu, Þjms. 6000, 6001, 6951 og hinn fjórði frá Bergþórshvoli, ótölu- settur.1) Stokkur af stokkabelti, nr. 47. Þessi hlutur er áreiðanlega rétt greindur, enda nægilegt samanburðarefni til hér á safninu. Mjó látúnsbelti með letri hafa sýnilega verið algeng hér á landi á mið- öldum.2) Jarðfundnar leifar slíkra belta, einn stokkur eða fleiri, eru Þjms. 170, 834, 2015, 4155, 7503, 7736, 9318, 10956, 12088, 13378. Síðustu númerin sýna, að af slíku belti er einnig sprota- endinn Þjms. 4557. Hafa beltin að líkindum öll verið sprotabelti, og hefur á sprotanum verið endastykki, sem sló sér svo mikið út neðst, að miklu var breiðara en stokkarnir. Leifar af leðri og grænu taui sjást innan í sumum stokkunum. Er gott að fá staðfest á þann hátt, að stokkabelti hafi verið gerð úr leðri, sbr. það, sem haldið var fram um látúnsplöturnar hér að framan, að þær hafi verið festar á leðurbelti. f safnaukaskrám eru beltisleifarnar taldar frá 15., 16. eða jafnvel 17. öld, en ágizkun er þetta, og mega þær vel vera eldri, sum- ar hverjar að minnsta kosti. Silfurpeningur, nr. 49. Um hann er í rauninni ekki meira að segja, en hann hlýtur að mega taka sem eindregna bendingu þess, að fund- urinn allur sé frá 14. öld, enda ekkert fram komið, sem mælir því í gegn. Glerbrot, nr. 62. Það kemur mjög á óvart að finna gler meðal þess- ara minja, ekki sízt eftir þá tímasetningu, sem peningurinn virðist heimila. En hér er þó ekkert, sem varpar neinum vafa á, að gler- brotið sé frá sama tíma og hitt dótið. Eins og kunnugt er, eru gler- gluggar fyrst nefndir í íslenzkum heimildum við útkomu Páls bisk- ups Jónssonar frá vígslu 1195. Fáeinar kirkjur hafa sennilega farið að eignast glerglugga um það leyti og þar á eftir, en ekki munu þekkj- ast heimildir um glerglugga í hýbýlum manna fyrr en á 17. öld, og enn munu þeir hafa verið fátíðir á 18. öld. En þar sem gler var vitan- lega vel þekkt hér á landi á 14. öld, er glerbrotið frá Grindavík ekki í mótsögn við fundinn að öðru leyti, þó að þess væri ekki von þarna og ekki verði skýrt, hvaða erindi það á. Ekki virðist mér ástæða til að ræða einstaka hluti fundarins frek- !) Árbók 1951 —B2, bls. 48. 2) Sbr. Matthías Þórðarson, Málmsmíði fyrr á tímum. Iðnsaga íslands II, bls. 278-79.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.