Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Blaðsíða 148
148
ÁRBÖK FORNLEIFAFÉLAGSINS
ísl. listamanna, Hörður Ágústsson skólastjóri og Þorsteinn Gunnars-
son arkitekt, skipaðir án tilnefningar.
Nefndin hélt 11 fundi á árinu og tók til umræðu meðferð og mögu-
leika á friðun ýmissa merkra húsa víða um land. Af húsum þeim, sem
sérstaklega var farið fram á friðun á við ráðherra, var aðeins heim-
iluð friðun gamallar vöruskemmu í Ólafsvík og „Norska hússins" í
Stykkishólmi. Nefndin lagði mikið kapp á friðun nokkurra húsa í
Reykjavík, en ákvörðun um það hefur enn ekki verið tekin.
Hins vegar kom nefndin ýmsu góðu til leiðar í húsfriðunarátt með
viðtölum og beinum bréfaskiptum við einstaka aðila, en sú leið virð-
ist ekki síður vænleg til árangurs en lögformleg friðunaraðferð.
Byggðasöfn.
Til byggðasafna voru á árinu veittar 575 þús. kr. á fjárlögum og
skiptist sú upphæð til eftirtalinna aðila: Byggðasöfnin á Akranesi,
Borgarnesi og Húsavík hlutu 50 þús. kr. hvert sem byggingarstyrk,
75 þús. kr. voru veittar samkvæmt ákvörðun f járveitingarnefndar
Alþingis til byggingar verbúðar í Bolungarvík, sem að vísu heyrir
ekki undir byggðasöfn né þjóðminjavörzluna, 70 þús. kr. voru veittar
til undirbúnings á flutningi og viðgerð „Gömlu búðarinnar" á Eski-
firði og 10.230.00 kr. voru veittar byggðasafninu í Skógum vegna
endurbyggingar gamallar skemmu frá Varmahlíð undir Eyjafjöllum
á safnlóðinni. Allt eru þetta 305.230.00 kr„ en afgangurinn 269.770.00
kr„ fór til að greiða hluta ríkisins í gæzlulaunum við söfnin, svo sem
tilskilið er í lögum.
Á Akranesi var haldið áfram byggingu tveggja húsa af fimm í
húsasamstæðu byggðasafnsins, og eru þau nú sem næst fokheld.
1 Borgarnesi var keypt óinnréttuð efri hæð í iðnaðarhúsi efst í
þorpinu fyrir byggðasafn, bókasafn og skjalasafn, og var frágangi
húsnæðisins hið innra að mestu lokið á árinu, en ekki var hægt að
hefjast handa um uppsetningu safnsins.
I Stykkishólmi festi byggðasafnsnefnd kaup á „Norska húsinu“
svonefnda, stóru og merkilegu timburhúsi, sem reist var árið 1820
af Árna Thorlaciusi kaupmanni. Var þetta merkur áfangi í byggða-
safnsmálum héraðsins, en nokkuð þarf þó að lagfæra húsið til að það
geti kallazt í góðu standi. Hugmyndin er að færa húsið síðan í upp-
haflegt horf eftir því sem möguleikar verða á næstu árum og koma
byggðasafninu þar fyrir til sýnis.
Á Isafirði lauk Gísli Gestsson við endurskipulagningu byggðasafns-