Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Side 66

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Side 66
128 ÁRBÚK FORNLEIFAFÉLAGSINS þá helst úr tölunni IX, sem virðist út í liött. I öðru lagi væri það harla undarlegt, ef sami mislestur kæmi Qórum sinnum fyrir í skjölum frá mismunandi stöðum í Noregi á hundrað ára bili. Hitt er eftir sem áður jafnóljóst, hvcrnig beri að skilja orðið eldsdag- ur. Tvennt virðist þó einkum koma til álita. Annars vegar að hér sé um að ræða leifar af heiðinni cldsdýrkun eða varnargaldri, hins vegar að orðið sé þýðingartilraun á einu nafni þrettándans, sem á grísku gat verið ta hagia fota (hin heilögu ljós), á htínufestum luminarium (ljósahátíð) og á fornháþýsku giperahta naht (hin bjarta, lýsandi nótt). En jafnvel þótt síðari tilgátan hefði við rök að styðjast, skýrir hún ekki viðbótina -björg, -borg í orðunum eldbjörg og eldborg. Rétt er að geta þess, að Rómverjar áttu sér eldshátíð, sem hét volcanalia. Þar voru eldinum færðar fórnir til þess að liann ylli ekki tjóni. En sú hátíð var á bilinu 21,—25. ágúst.4" Litlar sagnir fara af cldbjargarmessu á íslandi, eftir að Jón Halldórsson skýrir Árna Magnússyni frá vitneskju sinni árið 1728. Finnur Magnús- son kemur henni inn í íslenska almanakið 1837 cins og áður sagði, Jón Sigurðsson hélt henni þar áfram, og enn er hún í Almanaki Þjóðvina- félagsins. Ólafur S. Þorgeirsson hefur hana í almanaki sínu fyrsta árið 1895, en síðan ekki söguna meir. Jón Sigurðsson segir svo frá henni í ritgcrð sinni Almanak, árstíðir og merkidagar í Almanaki Þjóðvinafé- lagsins 1878: 7. janúar var kölluð Eldbjargarnicssa, því þá skyidi slökkva jólacldinn og jólagcst- irnir ríða af garði; þá voru jólin úr garði gcngin.41 Síðan rekur hann lýsinguna úr Þelamörk í Noregi, sem birt er hér að framan (bls. 124). Jón Ólafsson ritstjóri og Hallgrímur Sveinsson dóm- kirkjuprestur nota orðið sem dagsetningu í deilugreinum árið 1882, en það er allt og sumt.42 Hún virðist engan sess eiga í hugum manna, ncma þá sem lítt skiljanlcgt nafn í almanaki. Af 150 heimildamönnum þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns, sem svöruðu spurningalista um hátíðir og merkisdaga árið 1975, minntust aðeins sex á eldbjargarmessu. Enginn þeirra hefur neina persónulega reynslu af nokkru tillialdi á þeim degi, en stutt svör þeirra gætu gefið hugboð um viðleitni manna til að skýra hið torræða. Þau eru þessi í aldursröð svarenda: Einar Sigurfinnsson úr Meðallandi, f. 1884: Eldbjargarmcssa cr 7. jan. Ekki þckki cg mcrkingu þcss dags, en hugsa mætti, að eftir allan ljósafjöldann um áramót og þrcttánda hafi vcrið mikið um kcrtastubba og annað, scm vert var að bjarga frá eldshættu.43

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.