Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Page 81

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Page 81
KRISTÍN HULD SIGURÐARDÓTTIR FORNLEIFARANNSÓKN AÐ SUÐURGÖTU 7 í REYKJAVÍK Inngangur Sumarið 1983 var unnið að fornleifarannsókn á lóðinni Suðurgötu 7 í Reykjavík. Rannsóknin var gerð á vegum Árbæjarsafns, og styrkt af Reykjavíkurborg og Pjóðhátíðarsjóði. Forsaga rannsóknarinnar var, að árið 1980 sóttu nokkrir eigcndur Suðurgötu 7 í Reykjavík um leyfi til borgaryfirvalda til að láta rífa gamalt hús á lóðinni og reisa þar nýtt hús.1 Umhverfismálaráð Reykjavíkur, borgarminjavörður og þjóðminjavörður lögðust gegn því að leyfið yrði veitt. Var þess í stað mælst til, að húsið yrði fiutt á safnsvæði Árbæjar- safns.2 Eigendur liússins buðu þá Reykjavíkurborg húsið að gjöf mcð því skilyrði að það yrði íjarlægt af lóðinni, og þáðu borgaryfirvöld gjöfina.3 Var ákveðið að fiytja húsið í Árbæjarsafn. Var það fiutt 4. ágúst 1983.4 Borgarminjavörður og þjóðminjavörður skrifuðu eigendum lóðarinnar og borgaryfirvöldum brcfi þar senr þcir bentu á, að nauðsynlegt væri að fram færi fornleifarannsókn á lóðinni, áður en þar yrði reist nýtt hús. Þeir bentu á, að lóðin Suðurgata 7 væri nálægt lóðum við Aðalstræti og Suðurgötu, þar sem fornleifarannsóknir á árunum 1971-1975 leiddu í ljós leifar elstu þekktrar byggðar í Reykjavík.5 í könnunarholum, sem voru grafnar þá á baklóð Suðurgötu 7 komu í ljós mannvistarleifar, 1-2 metrum undir yfirborðinu.'’ Var það móaska, sótugir steinar, viðar- kol, beinaleifar, trékubbar, lcðurpjatla, járnmolar, járnhnífur og leirkers- brot.7 Við byggingarframkvæmdir rnátti því gera ráð fyrir, að fornleifar, sem þar gætu verið, eyðilegðust. Var því nauðsynlegt að rannsaka lóðina nákvæinlega áður en grafið yrði fyrir húsgrunni, og veittu borgaryfirvöld og eigendur Suðurgötu 7 lcyfi til fornleifarannsóknar á lóðinni. Eigendum lóðarinnar var í mun að rannsókninni lyki sena fyrst. Var því mjög skammur tími ætlaður til hennar eða 3-4 mánuðir. Var unnið frá 31. maí til 21. september 1983. Réðust vinnuaðferðir afþeim skamma tíma sem var ætlaður til rannsóknarinnar, og varð uppgröfturinn því

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.