Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Síða 85

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Síða 85
FOKNLEIFARANNSÓKN AÐ SUÐURGÖTU 7 í REYKJAVÍK 147 Jarðlagaskipan Á sunnanverðri lóðinni voru grafnir fjórir skurðir: A-B, sem sneri NA-SV, og C-D, E-F og G-H, sem lágu NV-SA. Þeir voru allir 11 metra langir, 0.70 metra breiðir og 1.40-1.90 mctra djúpir. Þeir voru grafnir niður á malarlagið, sem skilur að tjörnina og höfnina í Reykja- vík, og jarðlögin í miðbæ Reykjavíkur liggja á (teikn. 2—5).14 Á norðanverðri lóðinni voru grafnir Qórir skurðir: I-J, sem lá NA- SV, og K-L, M-N og O-P er sneru NV-SA. Þeir voru einnig grafnir niður á malarlagið (teikn. 6-9). Skurður I-J var 12.20 metra langur, 0.70 metra breiður og 1.85 metra djúpur. Skurður K-L var 5.30 metra langur, 0.70 metra breiður og 1.90 metra djúpur. Skurðir M-N og O-P voru um 6.30 metra langir, 0.70 metra breiðir og 1.90 metra djúpir. Jarðlagaskipanin reyndist mjög röskuð einkum á norðanverðri lóð- inni, þar sem aðal-byggingarsvæðið var. Var moldin þar mjög malar- blendin. A suðurhluta lóðarinnar var mold en engin möl. Á norðanverðri lóðinni voru eftirfarandi jarðlög (teikn. 10); Lag 1 - Neðst var óhreyft malarlag úr hnefastórum steinvölum. Er það hluti malarlagsins, sem skilur að tjörnina og höfnina í Reykjavík. Lag 2 - Þar ofan á var um 0.45—0.55 mctra þykkt sendið moldarlag, grænbrúnt að lit. Lag 3 - Því næst var grænbrún leirkennd mold, 0.70-0.90 metra þykk. í henni voru viðarkolaagnir og sandblettir. Þetta lag skildi sig vel frá rauðbrúnu lagi, sem var ofan á því. Grænbrúna lagið var líkast moldargólfi að þéttleika, en ekki eins dökkt og gólfin eru oftast. Þar sem lagið lá yfir alla lóðina, gat það ekki verið gólf. Er það tilgáta okkar Gunnars Ólafssonar jarðfræðings, en hann starfaði við fornleifarannsóknina, að þetta lag sé fornt gróðuryfir- borð lóðarinnar. Leifar húss IV voru í þessu lagi. Lag 4 - Ofan við lag 3 var rauðbrún mold með viðarkolaleifum og móösku. Lagið var 0.40-0.60 nretra þykkt. Það var fínkornaðara cn lag 3. í þessu lagi, í skurðum I-J og K-L, voru tvö gjóskulög, sem síðar verður fjallað um (bls. 155). Lag 5 - Ofan við lag 4 var víða um 0.25-0.40 metra þykkt móösku- lag. Einkum var mikil móaska í skurði O-P. Þar sást í lóðskurði nróta fyrir holu, senr móöskunni hefur verið kastað í (teikn. 9). Lag 6 — Efst var unr 0.35—0.45 nretra þykkt sand- og nralarlag. í því var víða aska og torfuslitrur. í þessu lagi voru hleðslur húss II. Kjallari lrúss III var grafinn gegnunr öll ofangreind lög. Á sunnanverðri lóðinni var jarðlagaskipanin eftirfarandi (teikn. 11): Lag 1 — Neðst var sanra nralarlag og var á norðanverðri lóðinni (lag 1).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.