Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1989, Page 161

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1989, Page 161
REYKJAVÍK FROM THE ARCHAOLOGICAL POINT OF VIEW 165 í kafla þrjú er greint frá niðurstöðum könnunarhola, sem gerðar voru á nærliggjandi lóðum. Á grunnteikningar, sem birtar eru af hverri lóð, vantar hæðartölur við rústirnar. Á teikningarnar hefði mátt merkja inn jarðlög við hleðsl- urnar, sérstaklega gólfskánir og torf. Skýringum við grunnteikning- arnar er töluvert ábótavant og því oft erfitt að átta sig á rústunum. Til bóta hefði verið að merkja skýringar á mannvirkjunum inn á teikning- arnar. Einkennandi fyrir kaflann í heild eru margar smáatriðalýsingar, en fáar túlkanir á gerð og notkun húsanna. Bókin er því að mestu lýs- andi. Á blaðsíðu 19 er grunnteikning af rúst frá tímum Innréttinganna, sem vel hefði mátt gera útlitsteikningu af samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar og ritheimildum. Tar má sjá leifar tréveggja og útlínur útveggja. Ljósmyndir í kaflanum eru góðar og vel staðsettar í samræmi við texta. Þó eru fáar yfirlitsmyndir úr lofti. Meira er um hlutamyndir teknar á ská úr lítilli fjarlægð og því sjást einungis hlutar rústanna. Aft- ast í hverjum undirkafla er stutt og oft grunn umíjöllun um hluti. T.d. virðist lítil viðleitni hafa verið í þá átt að fjalla nákvæmlega um hluti frá seinni öldum, t.d. brot úr leirkerum og steintaui (bls. 21). Sú ályktun er dregin út frá jarðvegssniði meðfram Grjótagötu (bls. 24-25) við lóð Aðalstrætis 14, að torfhleðsla í sniðinu sé frá húsi, sem byggt hafi verið fyrir 900. Af sniðinu að dæma var landnámslag í strengjum sitt hvorum megin við torfhleðsluna, en ekki er mjög sann- færandi að veggurinn hafi verið hlaðinn svo snemma. Ekkert bendir heldur til þess að um hús hafi verið að ræða eins og höfundur heldur fram. Á lóðinni fundust einnig rústir frá tímum Innréttinganna. í upphafi kaflans um lóðina að Aðalstræti 18 er grunnteikning af þeim rústum, sem þar komu í ljós (bls. 28). Þar er undirstöðuhleðsla frá 20. aldar byggingu og útlínur skála með langeldi þar undir. Á NA-hluta lóðarinnar er urn 16 m2 autt svæði, þar sem ekki virðist hafa verið tekið snið. Þarna vantar stóran hluta A-langveggjar landnámshússins. Á blað- síðu 29 segir að tólf snið hafi verið teiknuð er á uppgrefti stóð, en ein- ungis níu eru birt í skýrslunni. Virðast veggir uppgraftarsvæðis oftast hafa ráðið staðsetningu sniðteikninganna: „Thirteen sections were drawn, primarily based on the sides of the excavation, eight of them published here“ (bls. 37). Ef frá eru talin sniðin meðfram lóðinni, sem eru 17,5 og 12,5 metra löng eru sniðin 1-6 metra löng eða rúmir þrír metrar að meðaltali, sem er of stutt. Eins má gagnrýna að ekki skuli vera gefin upp nákvæm hnit sniðanna, sem gerir það að verkum að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.