Fréttablaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
20. júlí 2001 FÖSTUPAGUR
HRAÐSOÐIÐ
HALLDÓR HAUKSSON
formaður Stéttarfélags sálfræðinga
Fortíðin á
leið fyrir
Félagsdóm
HVERNIG miðar að gerð nýs
kjarasamnings, en þið og náttúrufræðingar
eru þeir einu sem eiga það eftir af aðildar-
félögum BHM?
„Við höfum átt við svipaðan vanda
að stríða og náttúrufræðingar að
því leyti að Landspítali - háskóla-
sjúkrahús kemur þar við sögu. Við
höfum átt bæði formlegar og
óformlegar viðræður við ríkið og
spítalann undanfarnar vikur en án
árangurs. Þannig er að við höfum
átt í ágreiningi við spítalann frá ár-
inu 1998 um framkvæmd á gildandi
samningi. Við treystum okkur því
ekki til að skrifa undir nýjan samn-
ing við ríkið nema að ganga sam-
hliða frá stofnanasamningi við spft-
alann.“
HVERT er þrætuefnið þar?
„Það voru felldir úrskurðir á sínum
tíma um röðum manna í launa-
flokka. Að okkar mati liggur ekki
enn ljóst fyrir af hverju fólk raðast
þar sem það raðast. Þannig hafa
hlutir eins og jafnræðisregla og
málskotsréttur verið virt að vettu-
gi. Við höfum því í rauninni ekki
getað alveg varið okkar félagsmenn
í þessum efnum. Við höfum því
stefnt Landspítalanum - háskóla-
sjúkrahúsi fyrir Félagsdóm. Við
erum þeirrar skoðunar að þeir
framkvæmi úrskurðina ekki eins og
beri að framkvæma þá. Það má því
segja að fortíðin sé að fara fyrir
dóm.“
HVERNIG þá?
„Það er bara óljóst. Þeir eru að raða
fólki einhliða. Það eru t.d. ótal mörg
óafgreidd mál einstaklinga sem lig-
gja fyrir samstarfsnefndum aðila.
Það hefur því miður ekki náðst að
leysa þennan hnút og þá er þetta
eina leiðin sem við getum farið. Ef
viðræður duga ekki lengur til lausn-
ar þá verðum við fara með málið
fyrir dómstóla. Þannig að sá vandi
sem kom upp í framhaldi af síðustu
samningum ’.r enn í gangi og það
hefur bitnað 'érstaklega illa á sál-
fræðingum se.n starfa á Landspítal-
anum. Við höfu n m.a. kært þetta
fyrir umboðsma.mi Alþingis en
hann vísaði þessu frá á þeim for-
sendum að þetta aAti heima fyrir
dómstólum.“
Halldór Hauksson er formaður Stéttarfélags sál-
fræðinga og starfar á Stuðlum.
Lávarðurinn Jeffrey Axcher:
Fangelsi í 4 ár
fyrir meinsæri
LONDON.AP Breski skáldsagna-
höfundurinn og fyrrverandi
varaformaður íhaldsflokksins
Jeffrey Archer, sem nú á sæti í
lávarðadeild breska þingsins,
hefur verið dæmdur í fjögurra
ára fangelsi.
Hann var ákærður um fjögur
atriði og dæmdur sekur um þau
öll, fyrir meinsæri og að hindra
framgang réttvísinnar. Áður en
dómur féll sagði dómarinn Just-
ice Potts „þessar ákærur varða
alvarlegasta meinsæri sem ég
hef nokkurn tímann upplifað eða
lesið um í bókum.“
Archer var dæmdur vegna
þess að árið 1987 höfðaði hann
mál gegn dagblaðinu Daily Star
sem birti frétt um samskipti
hans við vændiskonu. Archer
vann það mál, en nú hefur kom-
ið í ljós að hann falsaði dagbæk-
ur til að sanna fjarvistir í mál-
LÁVARÐUR OG FANGI
Archer var lengí einn af helstu framá-
mönnum íhaldsflokkksins og vinsæll höf-
undur afþreyingarbókmennta.
inu. Fékk hann á sínum tíma
dæmdar 500 þúsund pund í
skaðabætur. ■
Stjórnmálamaðurinn
Zhirinovsky:
Faðir minn
var gyðingur
moskva ap Rússneski stjórnmála-
maðurinn, Zhirinovsky, hefur við-
urkennt í ævisögu sinni, sem kom
út í vikunni, að faðir hans hafi
verið gyðingur, en hann hafði
neitað því í sjö ár. Hann hefur lof-
að Hitler og sagt gyðinga bera
ábyrgð á helförinni. Blaðamaður
fann fæðingarvottorð Zhirinov-
sky þar sem fram kemur að hann
fæddist Eidelshtein. Zhirnovsky
sagði vottorðið falsað. „Ég er
rússneskur, öll fjölskylda mín er
rússnesk," sagði Zhirinovsky í
viðtali við fjölmiðla árið 1994. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI |
Arni Johnsen notaði sér ára-
tuga samstarf og vináttu við
stjórnendur ritstjórnar Morgun-
blaðsins til að
koma á framfæri
tröllasögu sinni
um dularfulla
tjarnardúkinn.
Morgunblaðið
sendi ljósmynd-
ara í geymslu
leikhússkjallarans
í Gufunesi og
birti mynd ásamt frásögn Árna
og samsærismanna hans meðal
rekstraraðila Þjóðleikhússkjallar-
ans. DV afhjúpaði svo í gær lygar
þingmannsins, sem hafði látið
flytja dúkinn til Vestmannaeyja
og síðan reynt að lauma honum
til borgarinnar á ný og komið
honum fyrir í geymslunni sér-
staklega fyrir ljósmyndara Morg-
unblaðsins. Það hefur örugglega
verið þungt hljóð í mönnum á
Mogganum í gær þegar í ljós
kom að blaðið hafði látið plata sig
og skúrkurinn var einn af „bestu
vinum“ blaðsins.
Arna Johnsen skilur eftir sig
skörð í mörgum nefndum,
ráðum og stjórnum þegar hann
hverfur af þingi.
Meðal annars þarf
þingflokkur sjálf-
stæðismanna að
tilnefna nýjan for-
mann samgöngu-
nefndar, og nýjan
mann í fjárlaga-
nefnd og mennta-
málanefnd Al-
þingis. En það eru fleiri bitlingar
í boði fyrir áhugasama pólitíkusa,
nú þegar Árni er ekki lengur til
staðar að gæta hagsmuna al-
mennings. Auðir stólar í stjórn-
um og ráðum eru t.d. formennska
í Vestnorræna ráðinu, Græn-
landssjóði og starfshópi um íþrót-
ta- og ólympíumiðstöð íslands;
stjórnarseta í RARIK og Náttúru-
stofu Suðurlands; seta í flugráði.
Þá vantar nýjan varamann í
Norðurlandaráð. Loks ber að geta
þess að það er ekki bara bygg-
inganefnd Þjóðleikhússins, sem
er höfuðlaus her eftir brotthvarf
Árna. Hið sama á við um bygg-
ingarnefnd Þjóðhildarkirkju á
Grænlandi og byggingarnefnd Ei-
ríksstaða. Bókhald byggingar-
nefndar Þjóðhildarkirkju á Græn-
landi hefur enginn maður séð,
eins og fram kom í DV i gær en
talnaglöggir menn hafa reiknað
út að miðað við fjárveitingar hafi
hver fermetri í því góða guðshúsi
kostað um það bil 1,8 milljón
króna. Dýrt er drottins orðið.
Göfugir menn hafa ruðst fram
á ritvöllinn í Morgunblaðinu
og minnt almenning á að fara
ekki offari í fordæmingu á atferli
Árna Johnsen og draga ekki flís-
ina úr auga Árna fyrr en menn
hafa dregið bjálkakofann úr eigin
auga. Þar fara fremstir feðgarnir
Halldór Jónsson í Steypustöðinni
og Þorsteinn Halldórsson. Það er
athyglisvert hve steypustöðvar
koma við sögu í máli þinjjmanns-
ins framkvæmdaglaða. Árni
keypti óðalssteinana hjá B.M.
Vallá; Steypustöðin gætir vel-
Almenningur tók að
sér eftirlitshlutverkið
Reynir Traustason á DV hóf skrif um mál Arna Johnsen og átti
einnig fréttina sem leiddi til afsagnar þingmannsins.
REYNIR TRAUSTASON
„Ég hef mjög mikla samúð með Árna" sagði Reynir. „Það getur enginn glaðst yfir svona
örlögum. En það er komið á daginn að hann stal og laug. Árni hefur axlað sína ábyrgð
og sagt af sér. Megi honum farnast vel. Ég er fyrst og fremst ánægður með þá íslensku
fjölmiðla sem tóku upp málið og kláruðu það."
dv „Okkur tókst að upplýsa mál-
ið og klára það,“ segir Reynir
Traustason, ritstjórnarfulltrúi
DV og höfundur fyrstu fréttar-
innar um mál Árna Johnsen og
viðskipti hans í BYKO og einnig
fréttarinnar, sem upplýsti hvar
tjarnardúkinn dularfulla væri
að finna. Tveimur tímum eftir
að DV hringdi í Árna í gær-
morgun og sagðist hafa hrakið
sögu hans sagði þingmaðurinnn
af sér.
„Þegar svona spilling á í hlut
ber að uppræta hana. Ég hefði
kosið á fyrstu stigum að þetta
væri eintómur misskilningur,
sölumennirnir í BYKO hefðu
misskilið Árna og allt væri
þetta brengluð mynd af at-
burðarásinni," sagði Reynir.
Reynir sagði að starfsmenn-
irnir á gólfinu í BYKO væru
hetjurnar í málinu, það hefði
aldrei upplýst nema af því að
þeim ofbauð framferði þing-
mannsins. Hins vegar varð
hann fyrir vonbrigðum með
framferði millistjórnenda
BYKO, sem reyndu að hylma
yfir með Árna í nokkra daga,
áður en forstjóri fyrirtækisins
tók af skarið og sagði allt af
létta með úttektir þingmannsins
í nafni Þjóðleikhússins. „Menn
voru mikið að tala um trúnað
við viðskiptavin sinn og ég veit
til þess að það var rætt á þeim
nótum við mennina á gólfinu,
sem voru að hjálpa okkur að
upplýsa málið. Én það átti ekki
að halda trúnað við þann sem
var að greiða reikninginn, held-
ur við þann sem var að reyna að
stela."
Reynir segir að fyrsta frétt-
in hafi verið marga daga í
vinnslu og hún hafi ekki verið
birt fyrr en fyrir lágu gögn,
sem staðfestu frásagnir fjöl-
margra vitna. Auk sín hafi
margir blaðamenn DV unnið að
málinu í framhaldi af fyrstu
frétt og allir lagst á árarnar
með það að leiðarljósi að upp-
lýsa um sannleikann og taka
ekki mark á sögusögnum. „Við
leyfðum okkur ekki neitt slúður
í neinu formi um málið enda var
maðurinn Árni Johnsen undir í
málinu. Það var eins með „stóra
dúkamálið". Við héldum okkur
frá því í upphafi þangað til við
gátum sagt nákvæmlega frá því
hvað gerðist."
Llann segist telja að Árna-
málið muni hafa varanleg áhrif.
„Það var almenningur sem tók
að sér eftirlitshlutverkið; fyrst
almennir starfsmenn BYKO og
svo starfsmenn Vöruflutninga-
miðstöðvarinnar og Svans-
prents í dúkamálinu. Ég held að
þetta muni breyta því að sið-
ferðismælikvarðinn verði allt
annar en áður. Nú eru menn á
vaktinni um allan bæ hvað varð-
ar spillingarmál.“ ■
sæmisins í umræðunni og Kjart-
an Ólafsson framkvæmdastjóri
Steypustöðvar Suðurlands sest á
þing í stólinn hans Árna.
að vakti athygli blaðamanna á
olíuleitarfundi Valgerðar
Sverrisdóttur iðnaðarráðherra
klukkan 14.30 í
gær að hún hafði
ekki hugmynd um
að Árni Johnsen
hefði sagt af sér
þingmennsku. Þó
hafði fréttin farið
eins og eldur í
sinu um þjóðfé-
lagið og birst í út-
varpsfréttum og á vefmiðlum.
Iðnaðarráðherra, sem kom nánast
beint af ríkisstjórnarfundi á
blaðamannafundinn, var ekki
með á nótunum í pólitíkinni og
með allan hugann við olíuleit
norður við Jan Mayen.
\>aó a((ar\ Jaglm í <)ag - ég (azról
aó tþl(a þóker* Ge+ló \>lð yer)+
\>úturxika(( STRAXÍÍÍ fakk, Gu((i
E(*ku
ÞRUÐA