Fréttablaðið - 11.02.2002, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.02.2002, Blaðsíða 12
12 FRÉTTABLAÐIÐ 11. febrúar 2002 MÁNUDAGUR I I I I RAÐAUGLÝSINCAR TRÉSMÍÐAVÉLAR Sambyggðar trésmíðavélar, plötusagir, fræsarar, heflar, dýlaborvélar, slípivélar, kílvélar, kantlímingarvélar, loftpressur. Úrval af nýjum og notuðum vélum. Verkfæri, sagarblöð og tennur. www.idnvelar.is Hvaleyrarbraut 20- Hafnarfirði r SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Fundur vegna skipulagmála að Suðurhlíð38 Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar boðar til fundar um skipulagsmál að Suðurhlíð 38, mánudaginn 11. febrúar nk kl. 18.00. Fundurinn er öllum opinn og verður haldinn í Öskjuhlíðarskóla. ■N V Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar. y Leikskólakennari/starfsmaður á leikskóla. Leikskólakennari/starfsmaður á leíkskóla óskast á lítinn og heimilislegan leikskóla í Reykjavik. Við bjóð- um upp á skemmtilegt og hlýlegt umhverfi og góð laun fyrir rétta manneskju. Starfsmaðurinn þarf að vera jákvæður, samviskusamur, stundvís og umfram allt hafa gaman af vinnu með börnum. Vinsamlegast hafið samband í síma 899 2208 fyrir 16. febrúar. Aðalfundur Iðnfræðingafélags íslands verður haldinn í Tækniskóla íslands þriðjudaginn 26. feb. kl: 20:00 Félagsmenn mætið Stjórnín ■f -—i _ Oi_______i---— ------—— Samband ungra sjálfstæðismanna: SUS segir Samkeppnisstofnun vinna gegn tilgangi sínum samkeppni „Við teljum ekki hald- góð efnahagsleg rök fyrir að halda þessari stofnun úti,“ segir Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður Sam- bands ungra sjálfstæðismanna, og á þar við Samkeppnisstofnun. Ung- ir sjálfstæðismenn hafa samþykkt ályktun um að leggja beri stofnun- ina niður, enda hafi komið í ljós að hún vinni gegn megintilgangi sín- um. „Það sýndi sig t.a.m. þegar ekki farið eftir neikvæðum úr- skurði stofnunarinnar um samein- ingu Myllunnar og Samsölubrauðs að þróun markaðarins reyndist mjög ólík því sem hún hafði gert ráð fyrir í sínum forsendum. Markaðurinn beið síst skaða af því að ákvörðuninni var ekki fylgt eft- INGVI HRAFN ÓSKARSSON í staðinn á ríkið að fjarlægja ýmsar markaðshindranir, segir formaður SUS. ir.“ Ingvi Hrafn tekur fram að SUS vilji engu að síður efla samkeppni. „Leiðin til að efla samkeppni er að opna markaðina. Slíkt tryggir ný- sköpun og veitir frumkvöðlum tækifæri til að hasla sér völl. Við bendum meðal annars á innflutn- ingshöft, rekstur ríkis á fjölmiðla- markaði og einokun þess á áfengis- markaði. Með þessu vinnur ríkið gegn samkeppni." Ingvi Hrafn seg- ir markaðinn það flókinn að ekki sé hægt að ætla einni ríkisstofnun að segja til um þróun hans. ■ | FRÉTTASKÝRING~T Flugvöllurinn og Lína.Net helstu álitamálin Stuðningsmenn Reykjavíkurlista og Sjálfstæðisflokks greinir helst á um framtíð flugvallarins og uppbyggingu Línu.Nets samkvæmt skoðanakönn- un Fréttablaðsins. Aukið lóðaframboð og lægri álögur æskilegar hvar í flokki sem fólk stendur. SKOÐANAKÖNNUN Mikið hefur verið málaflokkum sem stuðn- ingsmenn beggja fram- boða eru nokkuð sam- mála. Mikill meirihlutí vili að álögur verði lækkað- ar og lóða- framboð auk- ið. rætt um að borgarstjórnarkosning- arnar í vor muni snúast um menn fremur en málefni. Skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir að verulegur munur er á afstöðu fólks til helstu málefna eftir því hvort stóru fram- boðanna það hyggst kjósa. Hvort það ræður úrslitum þegar upp er staðið er óvíst. Það er engu síður fróðlegt að greina afstöðu fólks eft- ir flokkum og sjá hvar átakalínurn- ar eru. Meirihluti beggja flokka lýsir andstöðu við það að Reykjavíkur- borg beiti áhrifum sínum gegn því að Kárahnjúkavirkjun verði reist. —4r— Þó munar miklu á Það er aðeins hlutföllunum. Nær í tveimur níu af hverjum tíu sjálfstæðismönnum eru andvígir því að borgin beiti sér gegn Kárahnjúka- virkjun. Litlu munar á afstöðu stuðnings- manna Reykjavík- urlista til málsins. Andstæðingar þess að borgin beiti áhrifum sínum hafa nauman sigur. Afstaða Reykvík- inga til flugvallarins speglast eftir stuðn- ingi við Reykjavík- Sjálfstæðisflokk. 60% FLUTVÖLLURINN í VATNSMÝRINNI Kjósendur stóru framboðanna hafa mjög ólíkar skoðanir á framtíð vallarins á þessum sttað. Meirihluti sjálfstæðismanna vill hafa hann á meðan meirihluti R-lista kjósenda vill það ekki. Mikill meirihluti vill að álögur verði lækkaðar og lóðaframboð aukið. Sjálfstæðismenn sem eru andvígir þessu mælast varla. Stuðningsmenn Reykjavíkurlistans sem vilja ekki auka lóðaframboð eða lækka álögur eru litlu fleiri. Vegna þess hversu fáir lýstu stuðningi við Frjálslynda og óháðra fékkst ekki marktæk niðurstaða í afstöðu stuðningsmanna þeirra til þessara álitamála. ■ urlista og stuðningsmanna Reykjavíkurlist- ans vilja að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni. Jafn stór hluti sjálf- stæðismanna er hins vegar þeirrar skoðunar að flugvöllurinn eigi að vera áfram á sínum stað í Vatns- mýrinni. Munurinn á afstöðu fólks til mál- efnis skipt eftir stuðningi við stóru framboðin er hvergi meiri en þegar spurt er um Línu.Net. Yfirgnæf- andi meirihluti stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins vill ekki að Orkuveita Reykjavíkur verji fé til að byggja Línu.Net upp. Tveir af hverjum þremur stuðningsmönn- um Reykjavíkurlistans telja hins vegar frekar eða mjög æskilegt að Lína.Net verði byggð upp með stuðningi Orkuveitunnar. Það er aðeins í tveimur mála- flokkum sem stuðningsmenn begg- ja framboða eru nokkuð sammála. NESJAVELLIR Sjáflstæðismenn eru flestir þeirrar skoðunar að Orkuveitan eigi ekki að leggja fé til Línu.nets. Kjósendur R-listans eru ekki sammála. Þarna greinir stóru framboðin á.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.