Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 06.09.1888, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 06.09.1888, Blaðsíða 2
106 Fyrir Rangárvallasýslu : 16. .Tón Sigurðsson í Syðstumörk og 17. Jón Hjörleifsson í Eystri-Skógum. Fyrir Arnessýslu: 18. séra Jón Steingrímsson í Gaulverjabæ. 19. séra Magnús Helgason á Torfustöðum. Fyrir Gullbringu- og Kjösarsýslu: 20. J>órður Guðmundsson á Hálsi og 21. Hannes Hafstein, cand. jur, Fyrir Heykjavík: 22. Björn Jónsson ritstjóri. Fyrir Borgarfjarðarsýslu: 23. Andrés Fjeldsted á Hvítárvöllum. Fyrir Mýrasýslu: 24. Asgeir Bjarnason í Knararnesi. Fyrir Snæfellsnessýslu: 25. sera Stefán Jónsson í Hítarnesi. Fyrir Dalasýslu: 26. Pétur Fr. Eggerz. Fyrir Isafjarðarsýslu: 27. Skúli Thoroddsen sýslnmaður og 28. séra |>orsteinn Benediktsson á Rafns- eyri. Barðstrendingar höfðu fyrstir manna lilaupið til að kjósa fulltrúa til J>ingvalla- fundarins, en ekki varð uthaldið meira en svo, að enginn mætti af peirra hendi. I Vestmannaeyjum lurfa menn að lík- indum verið óttaslegnir fyrir hinni ógurlegu styrjöld, er . hreppsnefndarmaður Vest- mannaeyinga sagði fyrir a síðasta pingi, að iilossa myndi upp á meginlandinu, og pví eigi vogað sér yfir Vestmannaeyjasundið. Ekki höfðu hinir konungkjörnu viijað aðhyllast vinsamlegar bendingar „J>jóðvilj- ans“ að mæta á |>ingvöllum, til þess að samlaga skoðanir sínar vilja hinna ókon- ungkjörnu landa sinna, og pannig efla sátt og samlyndi á landi voru, heldur upp á estrupsku kinkað kollinum heiina fyrir, Alls voru, eptir pví sem taldist til, mætt frek 200 manns á J>ingvöllum, flest- ir úr Reykjavík og nærsýslunum, en' pó einnig ýmsir rir fjarlægum héruðum auk fulltrúa og pingmanna. Milli funda skemmti söngflokkur úr Reykjavík með söng í Al- nmnnagjá. Forseti var kosinn Björn ritstjóri Jóns- son með 20 atkv,, en varaforscti Skúli sýslumaður Thoroddsen með 22 atkv. For- seti kaus sér til skrifara, með sampykki fundarins Einar prest Jónsson í Miklabæ og Jón prest Steingrímsson í Gaulverjabæ, Fundurinn ákvað, að allir peir, er við- staddir voru, skyldu hafa málfrelsi, pó svo, að fulltrúar og alpingismenn gangi fyrir öðrum, og fulltrúar pvi að eins fyrir ping- mönnum, að peir eigi liefði áður tekið til máls um pað málefni, sem pá var ú dag- skrá. J>essi mál komu til umræðu og álykt- unar á fundinum: I. Stjórnarskrá rm álið var efst á dagskrá, og stóð undirbúningsumræðan um pað mál frá kl. 1 til 4 og frá kl. 5 til 7 e. h. 20. ágúst, Fulltrúar úr kjör- dæmum miunihlutamanna hófu flestir ræð- ur sínar með pví að lýsa óhappi pví, er hent hefði kjördæmi peirra á síðasta pingi, að eiga minnihlutamenn í pingmannssæti, pvert á möti vilja meiri hluta kjósenda. I Húnavatns-, Skagafjarðar-og Gnllbringu- og Kjósarsýsln liöfðu komið fram tillögur í pá átt, að senda konungi ávarp um að leggja frumvarp til stjórnarskipunarlaga fyrir næsta alpingi, en tillögur pessar mættu öflugri mótspyrnu og var heldur eigi fram- fylgt af neinni alvöru, pótti mönnum sem neðri og efri deild alpingis hefðu að und- anförnu spreytt sig nógu mikið á allra- handa ávarpatildri sér til lítils gagns eða sóma. Einn einasti fulltrúanna, Hannes Hafsteinn, var mótfallinn endurskoðun stjórn- arskrárinnar; tfndi hann til hinar vanalegu mótbárur minnihlutamanna, t. d. að stjórn- arskráin væri fullgóð, aukapingskostnaður óbærilegur, stjórnarskrárfrumvarpið frá 1887 væri „maskeruð republik“, sem enginn kon- ungur og engin stjórn gæti sampykkt, stjórnin kynni að hafa pað til að eyði- leggja landsbankann, ef stjórnarskrármúlinu væri haldið áfram o. s. frv. Kenningum H. H. var svarað af Skúla Thoroddsen, ; Benedikt Sveinssyni, A. Fjeldsted o. fl„ og bæði hinn fulltrúinn úr Gullbringu- og Kjósarsýslu, Guðmundur Magnússon í Ell- iðakoti og séra Jens Pálsson mótmæltu pví, ! að skoðanir H. H. ættu nokkuð skylt við ! skoðanir Gullbringu- og Kjósarsýslubúa. ! |>öttust peir hafa „keypt köttinn i sekkn- um“, par sem H. H. brást svo mjög von- um peirra. Kl. 7 e. li. var sampykkt að hætta umræðum um stjórnarskrármálið; höfðu pá flestir fulltrúar, ýmsir alpingismenn og aðr- ir látið skoðanir sínar f Ijósi. Sampykkt var að kjósa 7 manna nefnd í málið og hlutu kosningu: Skúli Thoroddsen með 21 atkv, séra Páll Pálsson — 18 — séra Jón Steingrímss. — 15 — Pétur Jónsson — 14 — próf. Jón Jónsson með 13 atkv. Páll Pálsson í Dæli — 12 — Andrés Fjeldsted — 11 — Alyktunarumræða um stjórnarskrár- málið fór lram 21. ágúst á síðari fundin- um pann dag kl. 2 og 30 mín. e. h. Fram- sögumaður nefndarinnar Skúli Thoroddsen skýrði frá áliti nefndarinnar, og voru til- lögur hennar sampykktar svo liljóðandi: 1. „Fundurinn skorar á alpingi, að semja og sampykkja frumvarp til endurskoð- aðra stjórnarskipunarlaga fyrir Island, er byggt sé á sama grundvelli og fari f líka stefnu og frumvörpin frá siðustu pingum, pannig að landið fái alinnlenda stjórn með fullri ábyrgð fyrir alpingi". Sampykkt að viðhöfðu nafnakalli með 26 atkv. gegn 1 (H. Hafst.). 2. „Fundurinn skorar á pá alpingis- menn, er eigi fylgdu stjórnarskrárfrum- varpinu 1887, að gefa nú pegar kjósend- um sínum fullnægjandi loforð um að framfylgja framvegis stjórnarskrárbreyt- ingunni í frumvarpsformi hiklaust og rök- samlega, en leggja ella tafarlaust niður pingmennsku“. Sainpykkt með öllurn atkvæðum gegn 1 (H. Hafst. Uin pessa tillögu urðu heitar umræð- ur og langar, Forseti Björn Jónsson bar fram svo látandi breytingartillögu: „Fundurinn lýsir p,ví yfir, að liann álít- ur æskilegt, að kjördæmi peirra ping- manna, er eigi fylgdu stjórnarskrármál- inu á síðasta pingi, skori á pá að leggja niður píngmennsku sína, nema peir lofi pví skýlaust, að halda eptirleiðis hik- laust fram stjórnarskrárendurskoðuninni í frumvarpsformi í pá stefnu. sem farið er fram á í aðalályktuninni í pessu máli“. Og studdu peir hann að máli, séra Stefán M. Jónsson, séra Einar Jönsson og Jón Einarsson, en á móti mæltu: alpm. Sig. Stefánsson, séra P. Pálsson, Skúli Thor- oddsen o. fl., og svo lyktaði, að tillaga pessi var felld að viðhöfðu nafnakalli og sögðu Já: Arnör Arnason, Stefán M. Jóns- son, Einar Jónsson og Jón Einarsson, en Nei sögðu: Allir aðiár, nema foi’seti, sem hvorki greiddi atkvæði í pessu nuili né öðru, meðan hann stýrði fundi. Tillaga nefndarinnar var pví næst sam- pykkt með öllum atkv. gegn 1 (H. Hafst.).

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.