Lögberg - 19.06.1930, Blaðsíða 5

Lögberg - 19.06.1930, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. JÚNÍ 1930. Bls. 5. Kutjepoff Wlnnlpeft 100 Plnder Block • Saskatoon 401 Lancaster Bldft. Calftary 10053 Jasper Ats. Edmonton 622 W. Hasttafts 8t. Vancourer 36 Welllnaton St. West Toronto 127 St. Sacrament Street Montreal Elzta eimskipasamband við Canada 1840—1930 Nú er tíminn til að annast um farar-útbúnað bræðra, systra, eig- in-kvenna, barna, foreldra, ást- meyja og unnusta á gamla land- inu, er flytja ætla til Canada. Cunard línan hefir hlotið frægð fyrir ágætt fæði, fljótar ferðir og sanngjarnt verð. Vér höfum skrifstofur í öllum löndum Norðurálfunnar, er greiða jalfnt fyrir einstaklingum sem fjölskyldum. Vér sendum pen- inga fyrir yður til Norðurálfunn- ar fyrir sanngjöm ómakslaun. Ef þér heimsækið gamla land- ið, þurfið þér vegabréf, sem og endurkomu skírteini. Vér hjálp- um yður til að koma þessu í kring. Skrifið oss á móðurmáli yðar í sambandi við upplýsingar, er yð- ur verða í té látnar kostnaðar- laust. CllN^IRJD -<^«dun Scrvice Hitt og þetta Amerísk auglýsing. Sagan gerist í 'Ameríku — í stórborginni New York. Þar hafði verið reist glæsilegt nýtízku hó- tel, þar sem auglýstar voru sér- staklega góðar og sérstaklega ó- dýrar ostrur. Ostrur þykja góð- ur matur og viðskiftavinir hótels- ins urðu þegar frá fyrstu byrjun fjölmargir. En þó var gestgjaf- inn engan veginn ánægður — hann vildi hafa miklu fleiri. Svo einn góðan veðurdag finnur einn gestanna dýrindis perlu í einni ostrunni. Ætlar hann að lauma henni í vasa sinn, — en gestgjaf- inn hafði tekið eftir honum og kom nú og heimtaði perluna. Gesturinn neitaði að láta hana af hendi svo að úr þessu urðu mála- ferli, sem enduðu þannig, að gest- urinn vann. En skðmmu seinna fanst önnur perla í ostrunum. Og að þessu sinni sýndi gesturinn hana öll- um, því að nú gat hann skírskot- að til lagafyrirmælis, sem mælti svo fyrir, að hver sá, sem fyndi perlu, ætti hana. Fleiri perlur fundust í ostrun- um á hótelinu, og loks komuust blöðin í málið.; þetta var efni fyrir þau. Blaðamaður nokkur snapaði það uppi, hvar þær væru teknar, og það stóð heima, þar voru töluvert stundaðar perlu- veiðar. — Og nú “sprakk bomb- an’.’ allir vildu freista gæfunsar við perluveiðarnar í “ostruhótel- inu,” það yfirfyltist á skömmum tíma — og nú var gestgjafinn ánægður. 1 Málið var ofur I eijnfalt. skúffu gestgjafans lá slifsisnæla, það vantaði að eins í hana perl- una. Hjá nælunni lágu nokkrir reikningar, sem allir hljóðuðu upp á ódýrar perlur. Auglýsing var sniðug og hún margborgaði sig. —Lesb. Dr. Paul Hermann látinn. Hinn alkunni íslandsvinur oé fræðimaður, dr. Paul Hermann, prófessor, er nýlega látinn í Torgau á Þýzkalandi. Hann var fæddur 10. desember 1866 og varð því tæpra 64 ára að aldri. Háskólanám stundaði hann við háskólana í Berlín og Strass- burg og lagði stund á gömlu mál- in, Austurlandafræði, þýzku og guðfræði. Yfiirkennaraprófli lauk hann 1891. Hann ferðaðist hér um Island á árunum 1904, 1908, 1911 og 1914. Hafði hann, styrk frá mentamála- ráði Þýzkalands til þeirra ferða- laga. Varð hann gagnkunnugur landi og þjóð og tók ástfóstri við hvort tveggja, eins og sjá má á bók hans: ísland og íslendingar. Hann þýddi nokkrar íslenzkar bækur á þýzku og þykja þær þýð- ingar vel af hendi leystar. Yfir- leitt var hann einn af þeim beztu málsvörum, sem vér höfum átt í Þýzkalandi, og er þá mikið sagt. •— Mgbl. 16. maí. FLUTTA FUNDI í Goodtemplarahúsinu þann 9. þessa mánaðar. Kæru landar! Eg veit að þið hafið allir fylli- lega skilið það, er eg hefi sagt um stefnu félagsins Vínlands- blóm. Eg óska pess, að þið getið séð að það er sómi vor að hlynna að þessum málum. Eg óska að sem flestir skrifi nafn sitt á stefnu- skrána og hjálpi af fremsta megni að vinna að þessum málum. Eg bið þess, enn fremur, að þið lítilsvirðið ekki þetta málefni, þótt það sé aðeins veiðimaður og skóg- armaður, og það ómentaður, sem fiutt hefir þetta málefni. Hér er málefni, er allir íslendingar geta unnið að, án þess að verða ósátt- ir út af því. Það er málefni, er vinnur að því að þvi fagra, að því göfuga og góða, með óbrotna stefnuskrá, sem allir geta skilið. Eg bið ykur, sem farið heim til gamla landsins, að skila kærri kveðju frá Vínlandsblómi, og seg- ið þeim þar heima, að við munum halda áfram í því að vinna að endurreisn skóganna á íslandi í sambandi við vini vora þar. Að vér finnm það skyldu vora, að vér elskum land vort og tökum undir með skáldinu: “Og þig eg elska, mín eigin þjóð, Með ættarbragð frá fyri tíðum. Sem fóstrar sveina með frjálsan móð, Og fljóðin skær sem blóm í hlíðum. Eg elska þig á bjartri vonar 1 braut, Hin beztu gæði hrynji þér í skaut, Ver hvað þú varst, Þá vegsemd barst, Og sönnum frelsis notum náðu.” Segið þeim heima, að við, sem ungir fórum frá landinu, elskum alt sem íslenzkt er, að mæður vor- ar kendu oss að elska landið, er ól þær upp, landið, sem gaf oss umhyggjusama og elskuríka móð- ui. Hamingjan fylgi ykkur öllum, og gefi ykur gleði og ánægju, og um fram alt góða heilsu, að þessi ♦ freð örvi tilfinningar ykkar, til þess að vilja græða gömul sár fósturjarðarinnar. Að þið komið í lið með Vínlands- blómi, og hjálpi oss að láta það blómgast og sá sínu fræi, til fósturjarðarinnar. Björn Magnússon. Aljekkin, skákmeistarinn heims- frægi, dvaldi nýlega í Noregi, og tefldi þá fjölskákir við marga af frægustu taflmönnum Norð- manna. Þess er t. d. getið, að hann tefldi við 35 Oslotaflmenn í einu og vann af þeim 24 skákir, gerði jafntefli í 7, en tapaði að- eins 4. í Rúmeníu var verið að yfir- heyra kommúnista einn, er hafði gert sig sekan í upþoti. Tveir kommúnistar aðrir brutust inn í réttarsalinn, köstuðu reykbomb- um, og tókst þeim að hafa félaga sinn á burt með sér. Rúmlega 3 mánuðir eru nú liðnir síðan Kutjepoff hershöfð- ingi hvarf. Franska lögreglan hefir yfirheyrt um 2000 vitni út af hvarfi hans. — Hér í blaðinu var nýlega skýrt frá framburði eins vitnanna. Vitnið, ónafn- greind rússnesk kona, kvaðst hafa séð gráan og rauðan bíl keyra til strandar nálægt Cabourg í Nor- mandí þann 26. janúar, 4 menn stíga út úr bílnum og báru þeir karlmann á milli sín. Hann virt- ist meðvitundarlaus. Bátur beið þeirra við flæðarmálið og flutti þá út til skips^ sem lá úti frá ströndinni. Eins og kunnugt mun vera, var Kutjepoff rænt þ. 26. jan., og ræningjarnir óku burt með hann í gráum bíl. Einn þeirra ók á eft- ir í rauðum bíl. Franska lögreglan hefir nú rannsakað framburð rússnesku konunnar og yfirheyrt önnur tvö vitni, sem sáu rauða og gráa bíl- inn í Normandí umgetinn dag. Lögreglan segir, að rannsóknin hafi leitt það í ljós, að framburð- ur rússnesku konunnar sé réttur. ’Telur lögreglan víst, að það hafi verið Kutjepoff, sem var fluttur til skipsins. Hins vegar veit lögreglan ekki, hvert skipið hefir farið með Kut- jepoff. Og lögreglan hefir held- ur ekki getað aflað sér fullnægj- andi upplýsinga um hverjir hafi* rænt Kutjepoff. Franskur lögmaður, Grandcollet að nafni, hefir tilkynt lögregl- unni, að hann hafi séð gráan og rauðan bíl í Normandi þann 26. jan. Það lá við, að lögmaðurinn yrði undir öðrum þeirra. Bíllinn nam, því staðar og Grandcollet sá þá suma farþeganna í bílnum allgreinilega. Hann sá nýlega mynd af rússneska tékjerindrek- anum Jannovits í frönskum blöð- um, og segist Grandcollet vera sannfærður um, að Jannovits hafi verið einn þeirra, sem hann sá í fcílnum í Normandi. — Jannovits var fyrrum yfirmaður leyniþjóna rússatékunnar í París, en eftir Bessadovski hneykslið var hann sendur til Berlín. — Franska lög- reglan hefir nú komist að raun um það^ að Janovits hafi verið í París um það leyti, sem Kutje- poff var rænt. En henni liefir þó ekki tekist að fá sannanir fyrir því, að Jannovits sé einn af ræn- ingjunum. Rannsóknirnar út af hvarfi Kutjepoffs halda áfram, en menn gera sér litlar vonir um frekari árangur. Miller hershöfðingi er foringi landflótta rússneskra liðsforingja síðan Kutjepoff hvarf. Miller hefir nýlega verið í Belgrad. Þar búa margir rússneskir flótta- menn..1— Miller kveðst hafa feng- ið vissu fyrir því, að Kutjepoff sé í Moskva og enn þá á lífi. Tel- ur Miller líklegt, að Rússar reyni að pina Kutjepoff til sagna um starfsemi rússneskra flóttamanna erlendis. Ekki er kunnugt hvaða heimildir Miller fyrir þessu. Verð- ur því ekkert um það sagt, hvort þessi frásögn hans er ábyggileg. En því verður ekki neitað, að það er mikill fengur fyrir Rússa, ef þeim skyldi hafa tekist að ná Kut- jepoff lifandi á sitt vald. Því Kut- jepoff var allra manna fróðast- ur um starfsemi andstæðinga kom- múnista erlendis. Og það er eng- an veginn nýtt, að andstæðingai* kommúnista séu píndir til sagna í fangelsum í Rússlandi. P. —Mgbl. Otto Stöterau kemur hingað meS Dr. Alexandrine á sunnudagínn, og munu þeir halda hljómleika sína, hinu fyrstu, á mánudag í Nýja Bíó. Er þess að vænta, að bæjarbú- ar fjölmenni þangað, því að langt er síðan selloleikur hefir heyrst hér, og eiga þeir annars kost á að heyra? hverjum framförum Þór- hallur hefir tekið þau þrjá ár, sem hann hefir verið utan. Má nærri geta, að nám hans hefir ekki verið tekið með sitjandi sæl- unni; sleitulaus vinna og nám hafa tekið allan tíma hans. Hann hefir, frá því hann fyrst byrjaði að læra, verið sjálfstæður og unn- ið fyrir sér jafnframt, barist á- fram án hjálpar. Otto Stöterau er þegar orðinn kunnur hér af hljómleikum sínum með Þórhalli, og er óþarfi að fjölyrða um hann frekar. — Mgbl. Dr. Sig. Júl. Jóhannesson og Mrs. Halldóra Þorbergsdóttir. flutt í silfurbrúffkaupi. —Hann og hún, þá og nú.— » Aldarfjórðunginn yfir rís albjört sólroðin Paradís, lauguö kærleikans lindum, litskrúðug hugar blika blóm, blærinn hvíslar í þýðum róm frá hugsjóna háum tindum. Hann hjalar svo blítt um mann og mey, sem mættust á ferð í kyrrum þey, broshýr og létt í lundu. Frá ásta guðinum örin fló, ánægður brosti—glaður hló hjörtun þá heitin >bundu. Ennþá standa þau hlið við hlið hasla sér eigna-réttar svið á f jarskyldu feðra láði. Styrk hafa kreikað um klökug tún, hver hefir betur stutt en hún, vönduð að viti og ráði? Hann svífur til flugs í sólna geim syngur um frelsi og bjartan heim, andar i annara sálir ylurinn berst með brosi hans frá bjarma hins rétta, innra manns, þó oft séu áfangar strjálir. Hann liknar oft þvi sem litdauft er, hann lætur það tendra Guð í sér, í lághreysi gengur glaður. Hann veit að fátækir finna til, fús er böndin að gjöra skil sem læknir og líka maður. í heima reiti margt gullið grær, þau gróðursettu þar rósir tvær í auðugu andans skjóli. Æskan lætur sín ljósa fjöld leiftra samúð á elli kvöld svo hlítt verður heima bóli. Indo. Maður nokkur í Prag var að berja konuna sína, svo að nábúar hans sáu til. Vakti það athæfi hans svo mikla gremju, að múgur manns safnaðist að og myndi hafa drepið manninn án dóms og laga, ef lögreglan hefði ekki skorsit í leikinn. LÆKNAR NÝRNA- OG blöbru-sjúkdóma. Veikindi í nýrunum og blöðr- unni valda þvö, að maður þarf oft að fara uþp úr rúminu á nóttunni og veldur pað oft svefnleysi og fleiri óþægindum. Þetta kemur aðallega til af óhollum efnum í líkamanum, sem ekki komast burtu vegna hægðaleysis. Nuga- Tone læknar hægðaleysi, hreins- ar líkamann um leið og það styrk- ir líffærin, eykur matarlystina, bætir meltinguna, veitir endur- nærandi svefn og kemur heils- unni yfirleitt í gott lag. Nuga-Tone er, ágætt fyrir aldr- að fólk, sem er orðið lasið og veikburða, engu síður en þá, sem ungir eru. Það er ástæðulaust, að vera sárlasinn, þegar hægt er Nuga-Tone er. Allir, sem meðul selja, hafa það. Ef sá, sem þú skiftir við, hefir það ekki við hendina, þá láttu hann útvega það frá heldsöluhúsinu. SOLDÁN S-AUÐURIN N Skörpustu lögmenn Evrópu hafa nú í fimm ár samfleytt haft til með- ferðar geysimikið erfðamál á hend- ur grísku stjórninni og voldugustu olíufélögum heimsins, og nú lítur út fyrir að þeir ætli að vinna máliS fyrir hönd erfingja Abdul Ilamid, aS minsta kosti hefir gr’fcka stjórn- in orðiS aS láta undan. Þegar Ungtyrkir ráSu Abdul Hamid frá völdum áriS l9°9> var hann talinn einn af ríkustu mönnum heimsins. Á þeim 33 árum, sem hann ríkti sem einvaldsdrottin Tyrkjaveldis, var hann búinn aS nurla saman 160 milj. kr. i reiSu peningum og auk þess hafSi hann komist yfir feiknin öll af fasteign- um. MeSal þessara eigna hans voru bæSi verSmætar Zinknámur og auS- ugar olíulindir, sem gáfu honum um 60 milj. kr, i árlegan arS. — Til samans voru allar eignir soldánsins virtar á 6 miljarSa í krónum. Ungtyrkir tóku allan þennan auS í sínar hendur, en kynokuöu sér þó viS aS gera hann upptækan, hann hélt því áfram aS vera til sem ein- 'staklings eign, en var stjórnaS af ríkinu. Abdul Hamid dó áriS 1918 frá all myndarlegri fjölskyldu, eSa 9 löglegum eiginkonum og 13 börn- um. Þessi f jölskylda dreifSist út um INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS Amaranth, Man......... Akra, N. Dakota .. .. Árborg, Man........... Árnes, Man. . . . . .. Baldur, Man. .. .... .. Bantry, N.Dakota .. . Beckville, Man........ Bellingham, Wash. .. . Belmont, Man. .. .. . Bifröst, Man. .. .. Blaine, Wash.......... Bredenbury, Sask. .. . Brpwn, Man............ Cavalier, N. Dakota .. Churchbridge, Sask. .. Cypress River, Man. .. Dolly Bay, Man........ Edinburg, N. Dakota . Elfros, Sask.......... Foam Lake, Sask. .. Framnes, Man.......... Garðar, N. Dakota .. . Gardena, N. Dakota . Gerald, Sask.......... Geysir, Man........... Gimli, Man............ Glen'ooro, Man........ Glenora, Man.......... Hallson, N. Dakota . Hayland, Man.......... Hecla, Man............. Hensel, N. Dakota .. . Hnausa, Man........... Hove, Man. .. .\ .. . Howardville, Man. .. Húsavík, Man.......... Ivanhoe, Minn......... Kristnes. Sask........ Langruth. Man......... Leslie, Sask.......... Lundar, Man........... Lögberg, Sask......... Marshall, Minn........ Markerville, Alta. .. Maryhill, Man......... Minneota, Minn. .. . Mountain, N. Dakota . Mozart, Sask.......... Narrows, Man. .... . Nes. Man.............. Oak Point, Man. .. . Oakview, Man.......... Otto, Man............. Pembina, N. Dakota .. Point Roberts, Wash. Red Deer, Alta........ Reykjavík, Man. .. . Riverton, Man........... Seattle Wash.......... Selkirk, Man.......... Siglunes, Man. .... Silver Bay, Man....... Svold, N. Dakota .. .. Swan River, Man. .. Tantallon, Sask....... Upham, N. Dakota .. Vancouver, B. C. .. . VíSir, Man.............. Vogar, Man............. Westbourne, Man. .. , Winnipeg Beach, Man, Winnipegosis, Man. .. Wynyard, Sask......... .......B. G. Kjartanson. .. .. B. S. Thorvardson. .... Tryggvi Ingjaldson. .......F. Finnbogason. ...........O. Anderson. .......SigurSur Jónsson. .......B. G. Kjartanson. . .. Thorgeir Símonarson. ...........O. Anderson. .... Tryggvi Ingjaldson. .. Thorgeir Símonarson. ............S. Loptson ...............J. S. Gillis. .. .. B. S. Thorvardson. ..............S. Loptson. .......F. S. Frederickson. . .... ólafur Thorlacius. .... Jónas S. Bergmann. Goodmundson, Mrs. J. H. .. GuSmundur Johnson. .... Tryggvi Ingjaldson. .... Jónas S. Bergmann. .......SigurSur Jónsson. . ............C. Paulson. . .. Tryggvi Ingjalds3on. ...........F. O. Lyngdal .......F. S. Fredrickson. .........O. Anderson, .. .. Col. Paul Johnson. .........Kr. Pjetursson. .. .. Gunnar Tómasson. .......Joseph Einarson. .........F. Finnbogason. ...........A. J. Skagfeld. G. Sölvason. ...........G. Sölvason. .............B. Jones. .........Gunnar Laxdal. .. .. John Valdimarson. ...........Jón Ólafson. ...........S. Einarson. ..............S. Loptson. .............B. Jones. .......O. Sigurdsoni .......... .. S. Einarson. ...............B. Jones. .......Col. Paul Johnson. ...........H. B. Grímson. ...........Kr Pjetursson. .........F. Finnbogason. ...........A. J. Skagfeld. .......Ólafur Thorlacius. ..............S. Einarson. ............G. V. Leifur. ...........S. J. Myrdal. ...........O. Sigurdson. ...........Árni Paulson. ....... G. Sölvason. ...........J. J. Middal. . .. Klemens Jónasson. .........Kr. Pjetursson. .........Ólafur Thorlacius. .......B. S. Thorvardson. ............J. A. Vopni. ..............C. Paulson. ........SigurSur Jónsson .........A. Frederickson. .. .. Tryggvi Ingjaldsson. ...........GuSm. Jónsson. .......Jón Valdimarsson ...........G. Sölvason. .. Finnbogi Hjálmarsson. ....Gunnar Johannsson. Minningar um Island. í bernsku minnar blíðum unaðs-draumi bjó eg sæl við foreldranna hlið, og hugði ei neitt að hröðum tímans straumi, en hló 0g lék mér náttúruna við. Ung eg var, með æsku-bros á vörum, árin sjö þá taldi man eg rétt, vænleg breyting varð á mínum kjörum, því vinna nokkur fyrir mig var sett. Að vakta tún um vor- og sumar-nætur, það var mitt starf um þriggja ára skeið; eg gekk til hvílu’, er aðrir fóru á fætur, og fékk að sofa unz á daginn leið. Man eg þá, um sólbjört sumar-kvöldin eg signdi mig og fól mig drottins náð, það eyddi kvíða’ og hræðslu heims við tjöldin, hánættið sem breiddi yfir láð. Man eg lika morgun-sólar ljóma, er mær upp rann og gylti fjalla tind, mér fanst þá Guðs rödd ávalt til mín óma, og í geisladýrð eg sjá hans mynd. Þessa helgu hugsjón vil eg geyma í hjarta mínu, meðan anda dreg, hún lýsir mér sem ljós til æðri heima og lífsins fegrar þyrnum-stráðan veg. $ V £ Asgerður Freeman. £ alla Bvrópu og hver yarð að bjarga sér sem auSið varð—einn af sol- dánssonunum varð þannig bílstjóri i Budapest—og smám saman virtist öll von úti fyrir fjölskylduna að fá nokkurn eyrir af öllum auðæfum soldánsins. Sapikvæmt friðarsamningunum urðu Tyrkir að láta all mikil land- flæmi af hendi, ög enginn kærði sig þá um að þar á meðal voru eignir þær, er Abdul Hamid á sínum tíma hafði komist yfir. En i Lausanne samningnum kom ákvæði um að réttur einstaklinga, sem eignir ættu í þessum héruðum, skertist í engu, þó þau kæmu undir annað ríki. Þetta komu nokkrir fjárbrallsmenn auga á og hugsuðu sér þegar til hreyfings. Þeir stofnuðu félag með því mark- miði að nota sér auðæfi soldánsins. Hinum 9 ekkjum og börnum þeirra var safnað saman og þau lát- in skrifa undir samning um að fela félaginu að heimta arfinn gegn því að það fengi 35% af þvi, sem inn- heimtist. Síðan hafa staðið yfir málaferli við Grikkja-stjórn og við oliufélögin, sem auðvitað voru búin að leggja olíulindirnar í Musul und- ir sig. _ Nýlega hefir Grikkja- stjórn orðið að beygja sig undir þann dóm að greiða 200 milj. kr. af þvi, sem hún hefir þagnast á arfin- um. Olíufélögin hafa engu viljað sinna kröfunum, en málaferlin halda áfram gegn þeim, og það er búist við, að þau einnig verði að greiða að fullu þann hlutann, sem þau hafa sölsað undir sig. —Dagur. SMÁVEGIS. Flugurnar þola ekki gulan lit. Þetta komst upp á Englandi ný- lega. Mönnum var það áður kunnugt, að ávextir þola illa hina bláu og útbláu geisla sólarljóss- ins. Þess vegna lét nú einn af hinum stóru verksmiðjueigendum er býr til allskonar ávaxtamauk, setja gular rúður í alla glugga, svo að bláu geislarnir kæmust ekki inn. Brá þá svo við, að allar flug- ur hurfu úr verksmiðjunni. Þær þoldu ekki gula ljósið. Þessu til stpðnings hefir hermaður nokk- ur, sem var í Egyptalandi og Pal- estínu á stríðsárunum, látið þess getið, að hann hafi einu sinni búið þar í gulu tjaldi, og þá tekið eftir þvíj að flugurnar settust á tjaldhælana og tjaldstrengina, eri aldrei á sjálft tjaldið. Helztu heimsfréttir .GAMAN OG ALVARA, — ný ljóðabók eftir Guttorm J. Guttormsson, komin á markaðinn. Kennir þar margra grasa, skiftist á hlátursefni og heimspeki, rímþrautir og ljóðaryskingar. Bókin er ort of Guttormi sjálfum, og nægir það til að hún fljúgi inn á hvert einasta heimili. The Columbia Press, Ltd., annast um prentunina, og er það næg trygging fyrir vönduðum frágangi. Prentvillur æra engan, því Þ. Þ. Þ. las prófarkirnar Þessi einkennilega ljóðabók er 190 blaðsíður, þéttprent- ðar, að stærð í líku broti og ljóðmæli Hannesar Hafstein, seinni útgáfan. Selst á meðan upplagið endist, á $2.00. Bókin send póstfrítt hvert á land sem er, en peningar verða að fylgja pöntun hverri. Sendið pantannr til höfundarins, Guttorms J. Guttormssonar, Riverton, Man. Bókina má einnig kaupa í búð Bergthórs Eimil Johnson, 890 Sargent Ave., Winnipeg. “Alþingi Islands þúsund ára” Minningar hátíð haldin að Silver Lake, Wash. 29. júní 1930 Skemtiskrá kl. 2 e. h. Forseti: H. E. Magnússon. Söngstj.: G. Matthíasson. 1. Ávarp forseta (lesið símskeyti til íslands) H. E. Magnússon 2. Ó, Guð vors lands ............... Söngflokkurinn. 3. Fjallkonan og tvær skjaldmeyjar, frá Vancouver, B. C. 4. Þú bláfjalla geimur.............. Söngflokkurinn. 5. Úlfljótur mælir lög fyrir þingi, frá Blaine, Wash. 6. Kvæði — “Til íslands” .... frú Jakobína Johnson. 7. Söngflokkur frá Blaine syngur, söngstj. J. M. Johnson. 8. Ræða—“Alþingi þúsund ára”..t. séra Fr. A. Friðriksson. 9. Norræni sto'fninn .............. Söngflokkurinn. 10. Ræða—Norræni stofninn ..... séra Alb. Kristjánsson. 11. Skógargildi ..................... Söngflokkurinn. 12. Eldgamla sísafold ...... ............ Allir. Dans frá kl. 7.30 til kl. 11 e. h.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.