Lögberg - 05.04.1934, Blaðsíða 2

Lögberg - 05.04.1934, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. APBIL 1934 Leiðtogar og menning Eitt af aÖalsmerkjum mannanna er það, hversu minnugir þeir eru á leiðtoga sína. í minningum leiÖ- toganna eiga menn ekki aÖeins end- urminninguna um þá sjálfa, heldur lífsstarf þeirra alt og ávexti þess. Flestar þjóÖir hafa átt ágæta leiÖ- toga á ýmsum tímabilum, menn, sem hafa vakað yfir velferð samferða- manna sinna, menn, sem hafa barist hlífðarlaust fyrir rétti þeirlra og með stakri ósíngirni leitt þá í gegn- um erfiðleika og torfærur til full- komnara lífs og meiri þroska. Vér íslendingar höfum átt slíka menn. Ekki aðeins átt þá, heldur er hin afskekkta, litla, íslenzka þjóð tiltölulega auðug af þeim. Vestur-íslendingar! eruð þér nhnnugir Hallgríms Péturssonar, sveitaprestsins íslenzka, sem við erfið lífskjör og ægilegan sjúkdóms- kross var ljós á vegum íslenzku þjóðarinnar og lampi fóta hennar; —skáldið guðlega, er svo vel söng, “að sólin skein í gegnum dauðans göng,’’ sem með ljóðum sínum færði frið, hugrekki, trú og von inn í hvert hús og hrevsi þjóðarinnar á rauna- og erfiðleikatimum hennar, og ávalt siðan, ungum jafnt sem gömlum, lærðum sem ólærðum, fá- tækum jafnt sem ríkum, heilbrigðum jafnt sem sjúkum og að “vertu, Guð faðir, faðir minn,” voru síðustu orð- in, sem æsku-sveinninn eða æsku- meyjan sofnaði með á vörum sér, og það voru og eru líka Ijóðin hans, sem síðast hljóma til eyrna íslend- inga er þeir í hinsta sinn kveðja ást- vini sína við gröfina og hafa gjört það sífelt nálega í 300 ár. Ekki veit eg hvers virði, í aurum eða krónum, eða dollurum eða centum, að leið- sögn Hallgríms Péturssonar hefir verið Vestur-Islendingum og hinni islenzku þjóð, og það dæmi getur vist enginn reiknað. Hitt veit eg fyrir víst að það er hverjum einum af oss holt, og öllum íslendingum 5 heild, að vera minnugir á slíkan leiðtoga. Annar leiðtoginn, íslenzki, var Jón Sigurðsson, glæsimenni eitt það mesta, er íslenzka þjóðin hefir átt, bæði hvað gáfur, vallarsýn og þekk- ingu snerti, en glæsilegastur að göfgi og réttsýni. Á unga aldri hafnar hann öllum hefðar- og hálaunastöð- um, til þess eins að geta unnið ætt- þjóð sinni og ættlandi sem mest gagn. Að geta greitt fram úr erfið- leikum þjóðar sinnar var hans glæsi- legasta von,—að knýta íslendinga saman til þróttmeiri framsóknar, var metnaður hans, og að fá lyft þióð sinni upp úr kvíðafullu sinnuleysi og fákunnáttu, upp í fjallsvala nor- rænnar karlmensku og þroska, voru honum laun nóg. Sjálfur fór hann alls á mis til þess að því takmarki væri hægt að ná, og krafta sina alla og líf helgaði hann því starfi, að þú og eg mættum ráð.a okkur sjálfir eða sjálf, og þroskast samkvæmt gáfna- fari og eðlisuppruna, óháð af annar- legu valdi. Jón Sigurðsson var nefndur sómi íslands sverð þess og skjöldur; en hann var meira en þetta, hann var kennifaðir og fyrir mynd hinnar íslenzku þjóðar, og þegar eg segi hinnar íslenzku þjóðar, þá á eg við alla hina eldri íslendinga, sem í Ameriku eru búsettir, sem beinlínis hafa komið undir áhrif áf verkum þessa manns og notið ávaxt- anna af lífi hans. Eitt af aðal áhugamálum Jóns Sigurðssonar voru mentamálin, að þau væru sem heilbrigðust og ís- lenzkust, þrátt fyrir ósjálfstæði og fátækt þjóðarinnar. Ef að Jón væri kominn hér á meðal Vestur íslend- inga og sæi aðstöðu okkar gagnvart þjóðræknismálum vorum og sínum yfirleitt, og það hve efitt að þessi eina, íslenzka mentastofnun—menta- stofnun, sem bygð er á ávöxtum þeim, sem hann með lífi sínu sáði til—á uppdráttar. Hvað haldið þið að hann mundi segja, eða hugsa? Eg veit það ekki, en hitt veit eg, og það fyrir víst, að það margborgar sig fyrir alla Vestur-íslendinga að vera minnugir annars eins leiðtoga og Jón Sigurðsson var, og á fyrir- mynd þá, sem hann með starfi sínu og lífi gaf. Árið 1883 kom til Ameríku glæsi- legur maður frá Islandi, sem í mörgu svipaði til Tóns Sigurðssonar og sem Þörhallur biskup sagði um, að mesta leiðtoga hæfileika hefði haft, allra íslendinga á síðari öldum, að Jóni Sigurðssyni einum undan- skildum; það var séra Jón Bjarna- son. Hann var óvanalega miklum gáfum gæddur, mentaður vel og glæsilegur að vallarsýn, en glæsileg- astur, eins og nafni hans, fyrir ó- síngirni, fórnfýsi og andans göfgi Séra Jón, eins og Jón Sigurðsson, átti kost á vellaunuðum hefðarstöð- um og lífsþægindum, en hann hafn- aði því öllu til þess að veita fólki sínu forystu og umönnun í frum- skógunum við Winnipegvatn,—líða þar með því súrt og sætt og leið- beina því og aðstoða í erfiðleikum þess. En sú saga er öllum ógleym- anleg, og ekki sízt þeim, sem báru með honum hita og þunga dag- anna þar, og fóru með honum um vegleysurnar á milli litlu bjálka- kofanna. Teningunum var nú kast- að. Þörfin auðsæ; skyldubrautin skýr og út af henni víkur hann ekki til dauðadags. Lifsstarf séra Jóns Bjarnasonar vár nálega óslitin þjón- usta í þarfir menningarþroska Vest- ur-íslendinga, og hann gaf þeim alt sem hann átti bezt, án þess að hugsa um endurborgun eða laun. Hvers virði er yður, Vestur-lslendingar, starf og fórnfýsi þess manns? Er hún ekki þess virði, að þið látið nokkur cent af hendi rakna til þess að Halda við skólanum, sem ber hans nafn, sem hann sjálfur var frum- kvöðull að og unni ? Því eina var- anlega minnismerki, sem við íslend- ingar getum, ef við viljum, skilið eftir okkur sem tákn þess er allir leiðtogarnir, sem eg hefi minst á, unnu fyrir og lifðu fyrir, — tákn menningarþroska sjálfra vor og þjóðar vorrar. Finst yður að það mundi vera ofborgað ? Þessa dagana, sem eg er að leitast við að fá yður, landar mínir, til að sinna fjárþörf Jóns Bjarna- sonar skóla — leggja honum til $3,000.00, sem hann þarf nauðsyn- lega á að halda, þá eru Þjóðverjar að gjöra hið sama: að leita til sinna manna hér í Winnipeg, og annars- staðar, bæði í Canada og Bandaríkj- unum. Þeir fylgja þeirri aðferð, að taka samskot á meðal landa sinna, ECZEMA, KAUN og aðrir skinnsjúkdómar læknast og græðast af Zam-Buk er kirkjur þeirra sækja á föstudag- inn langa, og nam skólaoffur þeirra hér í Winnipeg, sem telur 45 full- orðna safnaðar meðlimi, $64.00, og þar var ekki um neina auðmenn að ræða. Þetta eru öll skandinavisku þjóðarbrotin að gjöra hér í álfu, á einn eða annan hátt, þau eru öll minnug leiðtoga sinna og menning- arþroska þjóða sinna. Hví skyldum við Vestur-íslendingar ekki vera það lika? Eigum við að vera einu eftirbátarnir, eina úrhrakið úr öllum hópnum? Það má aldrei verða. Vestur-Islendingar! einu sinni enn, og ef til vill i síðasta sinni, bið eg yður að vernda Jóns Bjarnason- ar skóla frá falli og eyðilegging. Sendið honum þessa upphæð, sem hann þarf á að halda, ef nógu marg ir leggja hönd á plóginn, þá er upp- hæðin smá, sem hver og einn þarf að leggja til. Nokkur cent, , eða dollar frá hverjum dugar, ef marg- ir taka þátt. En gjörið það strax, eða eins fljótt og yður er unt, og sýnið með því, að þér eruð ekki síður minnugir leiðtoga yðar og menningarþroska þjóðar yðar, en aðrir frændur yðar frá skandinav- isku löndunum. J. J. Bíldfell. Sendið gjafir yðar til S. W. Mel- sted, 673 Bannatyne Ave., Winni- peg, féhirði skólans. Bók Hitlers “Mein Kampf” hefir nú verið bönnuð í Tjekkóslóvakíu. En í Þýskalandi koma í sífellu nýjar útgáfur af bókinni og hafa nú verið prentuð miljón eintök af henni en höfundurinn fengið 2 miljón mörk ritlaun. Hitler er talinn ríkasti maður af forustumönnum nazista og eiga 15 miljón mörk. Fyrir 12 árum átti hann ekkert, en lifði af 35 marka hermannastyrk á mánuði. Halldór Halldórson (Fæddur 2. ágúst 1866—Dáinn 7. marz 1933) Það hefir dregist að geta þess, að 7. marz 1933, lézt að Ericksdale sjúkrahúsi Halldór Halldórsson, bóndi úr Sigiunes- bygð. Halldór heitinn var sonur þeirra hjóna Halldórs Jóns- sonar frá Álfgeirsvöllum í Skagafirði og Ingibjargar Jónatans- dóttur frá Minna Árskógi við Eyjafjörð, bæði dáin; Halldór dó 28. apríl 1911, en Ingibjörg 15. maí 1922. Halldór heitinn var tekinn til fósturs af Guðnnindi Jóns- syni og Steinunni Hallgrímsdóttur, sem bjuggu á Mörk i Lax- árdal í Húnavatnssýslu. Til Manitoba kom hann árið 1900, og fór til foreldra sinna sem fluttu vestur um haf 1876 og bjuggu á Halldórsstöðum við íslendingafljót. Árið 1910 tók hann land við Pebble Beach, Man., og bjó þar, þar til hann flutti til Sigluness, Man., 1925, og bjó hann þar til æfiloka. 13. september 1014 gekk hann að eiga Stefaníu Baldvins- dóttur, og lifir hún mann sinn. Tíu -börn þeirra eru á lífi: Ingibjörg, Haraldur, Margrét, Karl, Anna, Halldór, Arnold, Svanhildur, Daníel og Gislína. Átta systkini Halldórs heitins eru á lifi: Páll, Geysir, Man.; Margrét Stefánsson, Pebble Beach, Man.; María Sigurdson, Geysir, Man.; Jón, Víðir, Man.; Þorbergur, Foam Lake, Sask.; Indiana, British Columbia og Tístran, Edmonton, Alta. Tveir bræður eru dánir: Tryggi, er bjó að Víðir, Man. og Jóhann, er hafði kaffisölu í mörg ár í Winnipeg og dó þar. Halldór heitinn var duglegur á meðan heilsan leyfði, var hann ágætis heimilisfaðir, svo langt sem að kraftar hans náðu. Hann var mjög hjálpsamur og lundstiltur. Greindur var hann og gleðimaður—hafði sérlega gaman af söng og skáldskap. Hann var vel heima í fornsögunum og var skemtilegur viðtals og ræðinn. A. Fimtánda ársþing þjóðræknisfélagsins Wynyard, 10. febr. 1934. Vér undirrítaCir félagar þjóðræknisdeild- arinnar “Fjallkonan” I Wynyard, felum hér með frú Mathildi FriSriksson fult umboð á atkvæði okkar á þingi pjððræknisfélagsins, er haida skal í Winnipeg í þessum mánuði: S. S. Anderson, H. S. Asdal, G. G. Gíslason, Mrs. Th. Jðnasson, Jakóbína Johnson, J. A. Reykdal, Waldimar Johnson, Friða Pálson, Sigga Björnsson, Árni Sigurðsson, Mrs. Frlða Sigurðsson, Ingvar Magnússon, A. S. Hall, Halldðra Gíslason, Gunnlaugur Gísla- son, Mrs. Ragnheiður Kristjánsson, I. Lin- dal, M. Ingimarsson, ólafur Hall. Hér með vottast að ofanskráðir eru full- giidir félagar þjððræknisfélagsdeildarinnar “Fjallkonan” í Wynyard. Jðn Jðhannesson, forseti G. Goodman, skrifari. Hér með heimilum vér Mrs. Ástu Eyrik_ son að fara með atkvæði vor á þingi pjðð- ræknisfélags Vestur-lslendinga er hefst 1 Winnipeg, 20. febr. 1934: Mr. J. J. Henry, Mrs. J. J. Henry, J. Th. C. Henry, J. G. Henry, J. S. Einarsson, T. G. Goodman, Mrs. J. A. Sigurðsson, Mr. B. Theodore Sigurðsson, Mr. Jðn O. S. Sigurðs- son, Miss Elín G. G. Sigurðsson, Mrs. Björg Thorsteinsson, Kristinn Goodman, Sveinn A. Skaftfeld, H. Gilsson, I. C. Jðhannsson, Mrs. Guðrún Isfeld, Klemens Jðnasson, Kristján Bessason, Dóra Jðhannesson. Hér með vottum við að þessi heimilda skjöl séu rétt. Th. Thorsteinsson, skrifari Jðn Sigurðsson. Hér með heimilum vér Bjarna Skagfjörð að fara með atkvæði vor á þingi pjóðrækn- isfélags Vestur-íslendinea, er hefst I Win- nipeg 20. febr. 1934. Kristján Pálsson, Hávarður Elíasson, Ingibjörg Pálsson, Th. Skagfjörð, Mrs. Jafeta Skagfjörð, Einar Jðn Hinrikson, Theodðr Thordarson, H. Sturlaugson, G. F. Jðhannsson, Mrs. L. Benson, Mrs. K. J. Ólafsson, Guðmundur Guðmundsson, Grða Mentin, Ágúst Sæmundsson, Th. S. Thor- steinsson, B. Dalman. Hér með vottast að þessi heimilda skjöl séu rétt. Th. S. Thorsteinsson, skrifari. Jðn Sigurðsson. Hér með heimilum vér Th. Bjarnason að fara með atkvæði vor á þingi Pjððræknis- félags Vestur-íslendinga, er hefst I Winni- peg 20. febr. 1934. Einar Magnússon, Rakel Maxon, Arndís Ólafson, Jðn Ólafson, Sigurbjörg Johnson, Gestur Jðhannsson, J. Reykjalín, N. Dal- man, Jðhann Peterson, Magnús Johnson, Margrét Anderson, Jðhann Benson, Jðn Sigurðsson, Dora Benson. Hér með vottum vér að þessi heimilda skjöl séu rétt. Th. Thorsteinsson, skrifari. Jðn Sigurðsson. Vér undiritaðir meðlimir pjððræknisdeild- arinnar “Iðunn” að Leslie, Sask., felum hér með Páli Guðmundssyni umboð vort og at. kvæði á ársþingi pjððræknisfélags Islend- inga í Winnipeg, er haldið verður 20., 21. og 22 febr. 1934. R. Árnason, Th. Guðmundsson, W. H. Paulson, G. Gabríelsson, M. Kristjánson, H. Thorsteinson, J. Sigbjörnsson, S. Anderson, Mrs. S. Anderson, Paul F. Magnússon, Mrs. Anna Sigbjörnsson, Sigbjörn Sigbjörnsson, Mrs. Helgi Steinberg, Helgi Steinberg, Mrs. L. B. Nordal, L. B. Nordal, Bjarni Davlðs- son. Hér með vottast að ofanritaðir eru gildir og gððir meðlimir deildarinnar “Iðunn.” R. Árnason, ritari Paul Guðmundsson, forseti. Voru eigi komin heimildaskýírteini frá öllum deildum og gat þvl nefndin ekki lok- ið starfi að svo stöddu. Árni Eggertson gerði tillögu og Eirikur Sigurðsson studdi að þessi bráðabirgðar skýrsla kjörbréfa- nefndar sé viðtekin og nefndinni falið að halda áfram ðloknu starfi. Samþykt. Lagði þá dagskrárnefnd fram svohljðð- andi skýrslu um þingstörf: Dapskrárnefnd leggur til að þingmál séu tekin fyrir I eftirfarandi röð, jafnframt þvl, sem nefndin áskilur sér rétt til að auka við dagskrána, ef þörf gerist. 1. pingsetning 2. Skýrsla forseta 3. Kosning kjörbréfa'nefndar 4. Kosning dagskrárnefndar 5. Skýrslur embættismanna 6. Skýrslur deilda 7. Skýrsla milliþinganefndar 8. Fjármál 9. Útbeiðslumál , 10. Fræðslumál 11. Samvinnumál við Island 12. Útgáfa Tlmaritsins 13. Bðkasafn félagsins 14. Minjasafn 15. Sextugs afmæli þjððræknishreyfingar- innar. 16. Lagabrey tingar 17. Kosning embættismanna 18. Ný mál a) Kirkjulegt samband við ísland b) Söfnun sögugagna um vesturflutn- inga 19. ólokin störf 20. Pingslit. Ásmundur P. Jðhannseon gerði tillögu og Margrét Byron studdi að skýrslan sé við- tekin. Samþykt. Var þá komið fram yfir hádegi og gerði dr. Rögnv. Pétursson tillögu studda af Mar- gréti Byron að fundi sé frestað til kl. 1.30. Fundur var settur kl. 2 e. h. Fundarbók lesin og samþykt. Fjármál Tillaga frá dr. Rögnv. Péturssyni studd af S. B. Benediktssyni að forseti skipi 3 manna fjármálanefnd, er starfi yfir þingið. Samþykt. Forseti tilnefndi þessa: Á. P. Jðhannsson, Loft Matthews og Jðn Janusson, Foam Lake. pá var lesin skýrsla Rithöjundasjóðsnefnd- ar, er sýndi að safnast hefði á árinu $145.27. Dr. Rögnv. Pétursson gerði tillögu og Asm. P. Jóhannsson studdi að skýrslan sé viðtekin og þeim Jðnasi Jðnassyni og G. J. Oleson, Glenboro og Jðni Kernested, Winni- peg Beach, sérstaklega þakkað starf þeirra. Samþykt. Páll Guðmundsson, Wynyard, mintist á ýmsa erfiðleika, er deildir hefðu við að stríða. Flestar þessar deildir sagði hann hefðu bókasöfn og væri æskilégt, ef hægt væri, að kaupa bækur I stórum stll frá ein- hverri miðstöð og skifta svo upp á milli deilda, og hafa bðkaskifti. Einnig kvað Hann heppilegt, ef mögulegt væri, að senda mann einu sinni á ári til deildanna, til þess að hjálpa til við samkomuhöld. Jðn Jðhannson, Wynyard, sagði að æski_ legt mundi einnig að stjðrnarnefndin hefði alt af við og við bréfaviðskifti við deildirn- ai', jafnvel þð það yki á verk nefndarinnar. Séra Guðm. Árnason lagði áherzlu á að fá lestrarfélög þar sem þau væru út um bygð- ir til að ganga I pjððræknisfélagið sem deild- ir svo strykur yrði fyrir hvortveggja. J. P. Sðlmundsson fanst stjðrnarnefndin hafa verið lintæk á síðustu árum I störfum sínum gagnvart útbreiðslumálum. Páll Guðmundsson gerði tillögu og Jðn Jðhannsson studdi, að forseti skipi 5 manna nefnd I þetta mál. Samþykt. pessir voru skipaðir: Jðn Jðhannsson, Wynyard, Jðhann P. Sðlmundsson, Páll Guðmundsson, Wynyard, Guðm. Árnason og Matthildur Friðriksson, Kandahar. Frœdslumál Tillaga frá S. B. Benediktssyni studd af séra Guðm. Árnasyni að 3 manna nefnd sé skipuð I þetta mál. Samþykt. Útnefndi forseti: Prðf. Richard Beck, Jðn Asgeirsson og Hjálmar Glslason. Samvinnumál við fsland Gerði prðf. Richard Beck tillögu og Jðn Ásgeirsson studdi að forseti skipi 5 manna nefnd. Samþykt. Skipaði forseti I nefndina: Dr. Rögnv. Pét- ursson, Mrs. Eirlksson, Selkirk, próf. Richard Beck, Bjarna Skagfjörð, Selkirk og Friðrik Sveinsson. Pá gat forseti þess að bendingar hefðu komið um hvert æskilegra væri að erindi það, er dr. Rögnv. Pétursson ætlaði að flytja á þinginu, yrði flutt að kvöldinu ki. 8 og annar staður fenginn, þar eð Goodtemplara- húsið fengist aðeins til kl. 6 þenna dag. Sagði hann að Sambandskirkja væri fáan- leg og ef þingheimur æskti þess mætti breyta tlmanum. Urðu um þetta nokkrar umræður og gerði J. P. Sðlmundsson tillögu studda af Sig. Vilhjálmssyni að fyrirlesturinn sé hafður I Sambandskirkju kl. 8 að kveldinu. Breytingartillögu gerði Á. P. Jðhannsson, studda af S. B. Benediktssyni að byrja fyr- irlesturinn kl. 4 og 45 mínútur, svo að fyrir- lesari hafi nægan tlma fyrir erindi sitt. Var þá gengið til atkvæða og breytingatillagan samþykt með 43 atkvæðum gegn 30. Var þá lesin skýrsla milliþinganefndar I íþrðttamálum. Var hún lesin af Jðnasi W. Jðhannssyni og er sem fylgir: Skýrsla Milliþinganefndar í íþróttamálum Verkahringur' þessarar milliþinganefnd- ar er kosin var á síðasta þingi var eingöngu sá, að stjðrna hockey samkepni um “Horn” Pjððræknisfélagsins, sem gefið var hinni uppvaxandi, íslenzku kynslðð og þeirra ieikbræðrum til minnis um púsund ára af- mælishátíð Islands 1930. Samkepninni var stýrt af Mr. J. Snydal, er skipaðl forsæti I nefnd þessari. Með honum eru I ráði J. Walter Jóhannsson og Karl Thorláksson. Hockey samkepni þessi fðr fram dagana 25. og 27. febrúar 1933. Skautaflokkar þeir eru þðtt tðku I sam- kepninni voru 6. Utanbæjar frá Selkirk, Gimli og Árborg og frá Winnipeg: Pla_mors, Morning Glory og Falcons. Sigurvegarar urðu Falcons og hlutu þeir “Hornið” fyrir árið 1933. Fyrir sérstaka velvild Mr. Fred Hutchi- son’s, forráðamanns Olympic skautaskál- ans, komst nefndín að gððum samningum við þann skautaskála og fðru leikarnir þar fram. Nefnd þessi hafði engu fé yfir að ráða og varð þessvegna að bera slna eigin byrði. pessi sama nefnd hefir einnig séð um undirbúning að samskonar skautasamkepni þetta ár, 1934, er haldin verður snemma I marz I Olympic skautahringnum. par sem útlit er fyrir elns gðða þátttöku að þessu sinni og I fyrra, viljum vér biðja alla gðða íslendinga að styðja þetta málefni eins og þeim er mögulegt. Febr. 20. 1934. Á þingi ppððræknisfélags- ísl. I Vesturheimi. Jack Snydal J. Walter Jðhannsson C. Thorlaksson. ' Gerði Ásm. P. Jðhannsson tillögu og S. B. Benediktsson studdi, að skýrslan sé viðtekin. Samþykt. Útgáfa Tímaritsins Tillaga frá Ásgeir Bjarnason, Selkirk, Studd af S. B. Benediktsson, að forseti skipi 3 manna nefnd I málið. Samþykt. Skipaði forseti I nefndina: Séra Guðm. Árnason, pðrð Bjarnason, Guðm. Eyford. Bókasafn félagsins Séra Guðm. Árnason gerði tillögu og S. B. Benediktsson studdi að 3 manna nefnd sé sett í málið. Samþykt. Útnefndi forseti þessa: G. P. Magnússon, Jðnas Jðnasson, Halldðr Gíslason. Minjasafnið Síg. Vilhjálmsson gerði tillögu og B. E. Johnson studdi, að 3 mar.na nefnd sé skipuð 1 málið. Samþykt. Tiinefndi forseti: Friðrik Sveinsson, Guðman Levi og Gretti L. Jðhannsson. Sextugs afmœli pjóðrœknishreyfingarinnar i Vesturheimi Ásgeir Bjarnason, Selkirk, gerði tillögu og séra Gúðm. Árnason studdi, að 5 manna nefnd sé skipuð af forseta I þetta mál. Sam- þykt. Voru þessir tilnefndir: Á. P. Jðhanns- son, séra Guðm. Árnason, Elln Hall, Jðn Jóhannsson, Jðn Janusson. Lagahreytingarnefnd Dr. Rögnv. Pétursson gerði tillögu og Margrét Byron studdi að þessi liður sé lagð- ur yfir þar til stjórnarnefndin hafi gert. grein fyrir tillögum slnum I málinu. Samþykt. , D. Rögnv. Pétursson gerði tillögu og Margrét Byron studdi, að þessi liður sé lagður yfir þar til stjðrnarnefndin hafl gert grein fyrir tillögum sinum I málinu. Samþykt. Ný mál Dr. Rögnv. Pétursson gerði tillögu og Guðmann Levi studdi, að þriggja manna nefnd sé skipuð til að athuga og taka við tillögum um ný mál, að undanteknum A. lið á dagskránni. Samþykt.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.