Lögberg - 24.07.1941, Page 1
PHONE 86 311
Seven Lines
*****
CQt- ^
ers u' a ^
Servioe
and
Satisfaction
ftir
aQ'
PHONE 86 311
Seven Lines
*“S
s»‘5s5S>*
Cot
For Better
Dry Cleaning
and Laundry
MRS. G. F. JÖNASSON
Pjallkona íslendingadagsins á Gtmli þ. 4. ágúst næstkomandi
. . KATHRYN ARASON
America á Islendingadegin-
I*1*1 á Gimli þann 4. ágúst næst-
k°mandi.
Frá stríðinu milli
Þjóðverja og Rússa
Þótt stríðsfréttirnar frá Ber-
lín og Moskva séu næsta mis-
munandi, þá verður þó ekki um
vilst, að Þjóðverjum sækist inn-
rásin treglegla, og hefir þegar
orðið þeim næsta kostnaðarsöm;
hafa þeir nú sótt á i meira en
mánuð, án þess að til verulegra
úrslita hafi komið, þrátt fyrir
það, þó ekki sé horft í manns-
lífin; hvort þeir hafi Smolensk
á valdi eður eigi, er enn ekki
með fullu vitað; en vegna þess
hve mikil járnbrautamiðstöð sú
borg er, hlýtur hún að teljast
mikilvæg fyrir hvorn hernaðar-
aðilanna sem er, því þaðan er
beinust braut og skemst til
Moskva; nýjustu fregnir stað-
hæfa, að viðnámsþróttur Rússa
á hinum þremur megin vígstöðv-
um, hafi mjög færst í auka síð-
ustu daga, og klofið djúp skörð
í hinar þýzku innrásarfylkingar.
Josef Stalin hefir persónulega
tekið að sér alla yfirstjórn rúss-
neska hersins.
Hert alvarlega á sókn
^ endingadaginn á Gimli þann
úgúst næstkomandi.
^firlaríkin veita Bretum
stórlán
, . ra Washington er símað á
)r*Öjudaginn, að Bandaríkja-
tjóm hafi
14
retu
ákveðið að veita
ni nú þegar $425,000,000
til vörukaupa.
Brezki loftflotinn veittist svo
þunglega að þýzku iðnaðarborg-
unum Frankfurt og Mannheim
á þriðjudaginn, að slíkt er tálið
magnaðasta árásin, er Bretar
hafi fram að þessu gert. Stað-
hæfa fregnir frá London, að tjón
á hergagnaverksmiðjum hafi
orðið gífurlegt; jafnframt þessu
sættu borgirnar Dunkirk, Rotter-
dam og Ostend, ítrekuðum loftá-
rásum.
Nýr upplýsingaráðherra
Mr. Duff Gooper, sem veitl
hefir forustu upplýsingaráðu-
neytinu brezka, er farinn frá því
embætti, og hefir fengið nýja
stöðu á Indlamdi. Eftirmaður
hans verður Mr. Brendan
Bracken, einkaritari Churchill
forsætisráðherra; e‘r hann nafn-
kunnur blaðamaður og vinsæll
mjög af alþýðu manna. Það er
vandaverk, og ekki ávalt vinsælt,
að vera upplýsingaráðherra á
stríðstímum, og fékk Mr. Cooper
oft sína vöru selda á þeim vett-
vangi.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. JÚLl, 1941
NÚMER 30
DORIS RLONDAL
Miss Canada á fslendingadegin-
um á Gimli þann 4. ágúst næst-
komandi.
Róstusamt í Noregi
■a
Þau tíðindi bárust út um heim
á mánuidagskveldið var, að upp-
reisn hafi komið upp í þýzka
setuliðinu í Bergen er orsakað
hafi innbyrðis manndráp; fylg-
ir það sögu, að nokkrir þýzkir
herforingjar hafi fallið í viður-
eign þessari, og lík þeirra graf-
in verið að næturlagi með það
fyrir augum, að atburðurinn
vekti sem minsta athygli; þó er
mælt, að fregn þessi hafi læzt
sig eins og eldur í sinu um
þveran og endilangan Noreg.
Kosinn í bœjarráð
Við auka kosningu til bæjar-
stjórnar i Winnipeg, sem fram
fór i 3. kjördeild á föstudaginn
þann 18. þ. m., fóru leikar þann-
ig, að M. J. Forkin, fyrrum bæj-
arráðsmaður, var kosinn með
allmiklu afli atkvæða umfram
þrjá keppinauta sína. Mr. Forkin
taldist um eit skeið til flokks
Kommúnista, en bauð sig fram
að þessu sinni utanflokka.
Sæti þetta losnaði i bæjarstjórn,
er Mr. Penner, fulltrúi kommún-
ista, misti réttindi sín, er
kommúnistaflokkurinn var levst-
ur upp eftir að núverandi styrj-
öld braust út.
Þingrof í British
Columbia
Forsætisráðherra British Col-
umbia fylkis, Mr. Pattullo, hefir
lýst yfir því, að hann hafi á-
kveðið að rjúfa þing, og að nýj-
ar kosningar fari fram í næst-
komandi októbermán. Flokka-
skifting í fylkisþinginu var á
þessa leið: Liberalar, 31; Kon-
servatívar, 8; C.C.F., 7. 141
verkamannaflokks taldist 1, og
1 þingmaður tjáðist utanflokka.
Þetta verður í þriðja skiftið sem
Mr. Pattullo gengur til kosninga
sem foringi Liberalflokksins i
Columbia, og mun honum enn
mega teljast sigur vís.
MRS. H. S. ERLENDSON
Fjallkona fslendingadagsins á Hnausum þ. 2. ágúst næstk.
Stórmannleg gjöf — Sigurður
Jónasson lögfræðingur gefur
stjórn Islands höfuðbólið Bessa-
staði fyrir ríkisstjórabústað
Frú Gerður Steinþórsson, sem
um þessar mundir dvelur hér í
borginni ásamt manni sínum,
Eggert Steinþórssyni, lækni, lét
Lögbergi vinsamlegast í té þá
merku frétt, sem hér um ræðir;
en fregnin barst henni bréflega
frá foreldrum sínum, þeim
Jónasi alþingismanni Jónssyni
og frú hans.
Bessastaðir eru frægt höfuð-
ból í þjóðmenningarsögu íslands,
sem vafalaust á eftir að varpa
ljóma á nafn þjóðarinnar í
framtiðinni; þennaa fagra og
sérkennilega stað hefir nú Sig-
urður Jónasson, lögfræðingur,
gefið stj-órn fslands fyrir rikis-
stjóra eða forseta-bústað; hefir
hann látið gera miklar umbætur
á staðnum, og fær rikisstjórn-
inni hann til umráða í góðu ásig-
komulagi. Talið er víst, að
fyrsti rikisstjóri íslands, hr.
Sveinn Björnsson, setjist að á
Bessastöðum áður en langt um
líður.
Sigurður Jónasson, lögfræð-
ingur, hefir tvisvar komið til
Winnipeg, og eignast hér margt
vina; hann er athafnainaður
mikilL og stórtækur vel. Mun
það meðal annars lengi í minn-
um haf, er hann endurheimti
Geysi í Haukadal fyrir Ísland, án
tillits til kostnaðar; en þessi
heimsfrægi goshver hafði sem
vitað er, verið seldur erlendum
mönnum fyrir þrjátíu silfur-
peninga, eða eitthvað því um
líkt.
Frá Islandi
Tveir menn drukna
í Kolkuósi.
Síðastliðinn þriðjudag vildi
það slys til við Kolkuós í Húna-
vatnssýslu, að tveir rnenn drukn-
uðu, er kláfferja, sem þeir voru
i, féll i ána.
Þeir, sem druknuðu hétu Hall-
dór Bjarnason á Melstað og Jón
Jóhannesson á Kolkuósi.
Menn voru þarna nálægt og
tókst þeim að ná mönnunum
upp úr ánni, en þá voru þeir
báðir meðvitundarlausir. Lifg-
unartilraunir voru gerðar á þeim
og kom læknirinn frá Sauðár-
krók og gerði lilgunartilraunir,
en þær reyndust árangurslausar.
—(Mhls. 26. apríl).
* * *
Rikistjórnin mótmælir
flugvallargerðinni
*
í sambandi við umræður í Nd.
Alþingis s.l. miðvikudag, um
breytingu á loftferðalögunum,
beindi Jóhann G. Möller fyrir-
spurn til rikisstjórnarinnar um
það, hvaða afstöðu hún hefði
tekið til flugvallargerðar Breta
og byggingar hermannaskála hér
í Reykjavik.
Ennfremur, hvort nokkuð væri
hæft í því, að hægt hefði verið að
koma í veg fyrir, að flugvöllur-
inn yrði bygður á þessum stað.
Kvað þingmaðurinn marga bæj-
arbúa fýsa að vita, hver afskifti
ríkisstjórnarinnar hefðu verið af
þessum málum.
Ólafur Thors atvinnumálaráð-
herra varð fyrir svörum af hálfu
stjórnarinnar.
Lýsti hann því yfir, að ríkis-
stjómin hefði á sínum tima
harðlega mótmælt flugvallargerð-
inni á þessum stað við hrezka
setuliðið. Ennfremur því, að
bækistöðvar hermanna yrðu
reistar hér innan bæjar.
—(Mbls. 26. april).
* * *
Höfðingleg gjöf til Sambands
íslenzkra berklasjúklinga
Undanfarin tvö ár hefir Sam-
band íslenzkra tberklasjúklinga
— S.f.B.S. — leitað til þjóðar-
innar um fjárframlög til styrkt-
ar berklasjúklingum í landinu.
Er þá einkum haft í huga að
nota það fé, er safnast, til þess
að koma upp vinnuheimili fyrir
sjúklinga, er burtskrifast af
berklahælunum. Hefir þegar
safnast álitleg fjárupphæð í
þessu skyni, og fer stöðugt vax-
andi.
Frá Hólmavík hafa borist á 3.
þúsund krónur, er þar var safn-
að nú nýlega, og úr Stykkis-
hólmi hafa borist 800 krónur,
svo að hæstu upphæðirnar séu
nefndar, er borist hafa nýlega.
En rausnarlegasta gjöfin, sem
vinnuheimilissjóði hefir borist
frá einum manni, er gjöf frá
Jóhannesi Reykdal á Setbergi.
Lét hann færa sambandinu 500
krónur. Er þetta svo fagurt
fordæmi og göfugmannlegt, að
S.f.B.S. færir honum hjartanleg-
ar og hugheilar þakkir fyrir
drengskap hans og rausnarskap.
Fyrir hönd S.í.B.S.
Miðstjórnin.
—(Mbl. 2. mai).
* * *
Morgunblaðið frá 27. marz get-
ur nýrrar bókar um spíritisma í
þýðingu eftir séra Jón Auðuns;
STEFANIA SIGURÐSON
Miss Canada á íslendingadegin-
um á Hnausum þann 2. ágúst
næstkomandi.
TIíOR TIIORS
aðalræðismaður fslands í Banda-
rikjimum, er mælir fyrir minni
íslands á íslendingadeginum á
Gimli þann 4. ágúst næstk.
bók þessi er eftir nafnkendan,
franskan rithöfund, Leon Davis
að nafni; bókin nefnist “í þjón-
ustu æðri máttarvalda,” og hefir
þýdd verið á fjölda tungumála,
og nú seinast á íslenzku.