Lögberg - 17.04.1952, Blaðsíða 2

Lögberg - 17.04.1952, Blaðsíða 2
* é \ 2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 17. APRÍL, 1952 -----------------------«----------------------------------------------------------------- Hvað gerðist í febrúar? MINNING ÞJÓÐHÖFÐINGJA. Útför forseta íslands, herra Sveins Björnssonar, fór fram með mikilli viðhöfn. Húskveðja var fyrst að Bessastöðum og tal- aði þar Bjarni Jónsson vígslu- biskup. Síðan var kveðjuathöfn í Alþingishúsinu og töluðu þeir þar forsætisráðherrann og for- seti sameinaðs Alþingis. Þá var haldið í dómkirkjuna og var þar mikill söngur og biskupinn yfir íslandi las ritningarkafla. Síð- asti þátturinn fór fram í kapell- unni í Fossvogi, þar sem Bjarni Jónsson vígslubiskuþ kastaði rekum á kistuna áður en hún var á bál borin. Líkfylgdin var afar fjölmenn og gekk á undan henni fjölmennt fánalið-og lögreglu- sveit. Fleira stórmenni var við þessa jarðarför en nokkra aðra, fulltrúar erlendra þjóðhöfðingja, sendiherrar, ræðismenn, ráð- . herrar, alþingismenn og em- bættkmenn, svo og 1 fulltrúar hinna ýmsu stétta þjóðfélagsins. Minningarguðsþjónusta um Georg VI. Bretakonung, er lézt hinn 6. febrúar, fór fram í dóm- kirkjunni í Reykjavík á útfarar- degi hans 15. febrúar. Voru þar viðstaddir ráðherrar, sendiherr- ar erlendra ríkja og sendifull- trúar og helztu embættismenn íslenzkir. MANNALÁT. Á bæjarstjórnarfundi hinn 7. febrúar var Guðmundur Ás- björnsson kosinn forseti bæjar- stjórnar í 27. sinn. En viku seinna andaðist hann af heila- blóðfalli, 72 ára að aldri. Hann hafði setið í bæjarstjórn óslitið síðan 1918 og hafði haft heilla- drjúg áhrif á öll bæjarmál um 34 ára skeið og kunnugri þeim en flestir aðrir. Bæjarstjórn hélt sérstakan fund til þess að minn- ast hans hinn 21. febr. Daginn eftir var svo útför hans gerð með mikilli viðhöfn. Sigurjón Helgason bóndi að Geldingaholti í Skagafirði, d. 16. febr. 75 ára. V Alexander Valentínusson smiður frá (Ólafsvík, d. 19. febr. áttræður. Ingunn Stefánsdóttir, ekkja Einars Jónssonar alþingismanns að Geldingalæk, d. 20. febr. María Salome Kjartansdóttir, kona Páls Sigurðssonar trygg- ingalæknis, d. 20. febr. Þórður Ólafsson útgerðar- maður í Reykjavík, d. 22. febr. sextugur.. VEÐRÁTTA. í byrjun mánaðarins tepptust allir vegir hér sunnanlands vegna snjóa og gekk erfiðlega að opna þá aftur. Mjólkurflutning- ar til Reykjavíkur trufluðust mjög og varð að taka upp skömmtun á mjólk. Hér í bæn- um var færð afar ill fyrstu daga mánaðarins og lentu 50 bílar í árekstrum fyrstu vikuna. Hundr uð manna stóðu í snjómokstri og þurfti að ryðja snjódyngjum af þökum margra húsa, vegna þess að mannhætta var af snjóhruni. Hinn 4. febr. féll snjóskriða af þaki Landsbankans niður á út- byggingu, fór þar í gegnum glugga og kom með miklu kasti yfir reiknivél, sem stúlka vann við, en stúlkuna sakaði þó ekki. Margar fleiri snjóskriður féllu af þökum, en ollu þó ekki tjóni. Þessa daga tafðist sorphreinsun mjög í bænum, vegna þess að ekki var hægt að komast að sorpílátunum. Aðfaranótt 1. febr. gekk hríð og stórviðri yfir norðurland og olli miklu tjóni í Siglufirði. Reif veðrið þök af húsum, þar á með- al hluta af þaki tunnuverksmiðj- unnar. Rafleiðslur og símalínur slitnuðu svo að rafmagnslaust varð í bænum og símasamband rofnaði. Þessa sömu nótt braut ofviðrið 70 símastaura á 4 km. leið í Axarfirði. , 3. febr. ætluðu nokkrir starfs- menn Sogsvirkjunarinnar austur yfir Hellisheiði í snjóbíl. Var þá versta veður og bilaði bíllinn á heiðinni svo að senda varð leið- angur frá Reykjavík fólkinu til hjálpar. Viku af mánuðinum mátti svo heita að vegir væri orðnir slark- færir hér syðra. 6.-7. febr. gekk stórviðri yfir austurland og norðurland. Urðu þá talsverðar skemmdir í Aust- fjörðum, reif veðrið þök af hús- um, sleit rafmagnslínur og gerði ýmsan annan óskunda. ÍJSkaga- firði var svo mikil fannkoma að hesta fennti. Asahláku og stórrigningu gerði hmn 17. febr. víða um land og hélzt það veður í 3 daga. Snjór var víðast mikill fyrir og urðu því miklir vatna vextir víða, svo sem í Þykkvabæ, Borgarfirði, Kjósinni, Króksfirði, Svínadal í Húnavatnssýslu, Eyjafirði og víðar. Varð af nokkurt tjón. Svo mjög tók upp snjó í þess- um leysingum að hinn 21,’febr. komust langferðabílar frá Reykjavík til Akureyrar í fyrsta skipti á þessu ári og höfðu ekki verið nema tvo daga á leiðinni. Hellisheiðarvegur hafði verið ófær vegna snjóa síðan 22. des., en hinn 26. var byrjað að ryðja snjónum af honum. Voru skafl- arnir þá enn tveggja metjra djúpir sums staðar. Skíðaskál- inn í Hveradölum hafði þá verið lokaður frá áramótum vegna snjóþyngsla, því allan þann tíma var bílum ófært þangað. Hellis- heiðarvegurinn var opnaður 28. febr. AFLABRÖGÐ. Fyrra hluta mánaðarins voru slæmar gæftir og afli tregur. Markaður var þá lélegur í Eng- landi, en hækkaði heldur þegar á leið mánuðinn. Fyrstu vikuna í febr. seldu 14 togarar þar fyrir 4.7 millj. króna, en seinustu vik- una seldu 10 togarar fyrir 3.9 millj. kr. Alls voru farnar 34 söluferðir til Englands í mán- uðinum og nam salan samtals 15.6 millj. króna. — Seinna hluta mánaðarins glæddist afli á djúp- miðum og bátar, sem þangað gátu sótt fengu góðan afla. Birt var skýrsla um fiskaflann árið sem leið og var hann alls 370.655 smálestir, þar af síld 84.617 smál. (1950: heildarafli 323.027 smál., þar af síld 60.441 smál. — 1949: heildarafli 327.322 smál. þar af síld 71.407 smál.). Af þorskafla síðasta árs höfðu togarar fengið 185 þús. smál., en bátar 100 þús. smál. Allur fyrra árs afli hafði verið seldur í þess- um mánuði, og voru söluhorfur góðar á þessa árs framleiðslu. Verkfall á togurum hófst 22. febr. eftir árangurslausar samn- ingaumleitanir. Náði það til togara í Reykjavík, Háfnarfirði, Keflavík, Patreksfirði, ísafirði, Siglufirði og Akureyri. í Nes- kaupstað og Eskifirði höfðu sjó- menn ekki sagt upp samning- um. I Vestmannaeyjum höfðu þeir sagt upp samningum, en ekki viljað verkfall. — Sátta- umleitan hófst 27. febr. en ekki hafði gengið saman um mánaða- mót. En þá höfðu tveir togarar stöðvast. BRUNAR. í öndverðum mánuðinum kom upp eldur í nýju íbúðarhúsi í Botni í Mjóafirði vestra. Brann efri hæð og loft alveg, en neðri hæðinni bjargaði steinsteypt loft. Óviti kveikti í gluggatjöldum í Höfðaborg 103 í Reykjavík, meðan móðirin brá sér frá. Þeg- ar hún kom aftur var eldur orð- inn allmagnaður en henni tókst með aðstoð aðkomufólks að slökkva og þótti það rösklega af sér vikið. Afaranótt 13. febr. kom eldur upp í hraðfrystihúsi í Þorkötlu- staðahverfi í Grindavík og urðu á því nokkrar skemmdir. Menn gátu haldið eldinum í skefjum með snjó þangað til náðist í vatn. Aðfaranótt 19. febr. kom eld- yr upp í íbúðarskála í Laugar- neshverfi og brann hann allur að innan og varð engu bjargað Tvær konur og tvö börn, sem í skálanum voru, björguðust nauðulega út um glugga. SLYSFARIR. • Skipverji á Brúarfossi lenti í umferðarslysi í Rotterdam í Hol- landi og missti annan fótinn. 6. febr. varð það slys í við- gerðarstöð Olíufélagsins á flug- vellinum í Reykjavík, að maður brenndist til bana og annar hlaut mikil brunasár. Sama dag fórst vélskipxð Ey- firðingur frá Akureyri hjá Æðey í Orkneyj um og fórust allir mennirnir, sjö að tölu. Þennan dag féll drengur á 2. ári út um glugga á annari hæð á húsi í Reykjavík, en kom nið- ur í snjóskafl og sakaði ekki. í stórhríðinni hinn 7. febr. varð Stefán bóndi Benediktsson á Þorvaldsstöðum í Vopnafirði úti í túninu heima hjá sér. 13. febr. fannst lík í höfninni í Hafnarfirði og reyndist vera af manni, sem hvarf þar 12. nóv. og hafði verið skipverji á s.s. Fagrakletti. Aðfaranótt 21. varð verka- maður hjá Sogstöðinni undir grjótskriðu og var skriðan 8 metra þykk ofan á honum. Eftir mikið erfiði náðist hann og var þá lítt skemmdur og þótti það ganga kraftaverki næst. Það slys varð þann 20. á tog- aranum Agli rauða, er þá var að veiðum, að maður lenti með höfuðið milli vírkeflis og járn- slár og beið bana. 27. beið maður bana í grjót- námi Reykjavíkur hjá Elliðaár- vogi. 25. féll fullorðin kona í Reykja vík niður stiga og beið bana. 29. brenndist starfsmaður hjá Mj ólkursamlaginu á Sauðár- króki allmikið á gufu. S. d. Maður, sem var að smíða í nýju húsi í Reykjavík féll nið- ur stiga og beið bana. ÍÞRÓTTIR. 1. febr. tóku 4 íslendingar þátt í Holmenkollenmótinu í Osló. Keppendur voru 50 og urðu ís- lendingarnir 14., 21., 28. og 34. í röðinni. Skjaldarglíma Ármanns var þreytt 10. febr. Sigurvegari varð Rúnar Guðmundsson. Skautamót Islands fór fram í Reykjavík og lauk 12. Kristján Árnason varð íslandsmeistari. Stórhríðarmótið (hið árlega skíðamót á Akureyri) fór fram í annari viku febr. Þar vann K. A. Morgunblaðsbikarinn í 5. sinn og nú til eignar. Vetrarkeppni Olympíuleik- anna lauk í Osló 25. Nokkrir íslenzkir * skíðamenn höfðu keppt, en sóttu engan sigur þangað. HEILBRIGÐISMÁL. Stúdentafélag Akureyrar hóf baráttu fyrir því að fullgera fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri. Á fundi 7. febr. gaf það 5000 kr. í þessu skyni og fóru þá margir að dæmi þess og næstu daga streymdu að gjafir, er námu um 50.000 króna. Seinna í mánuðinum undirbjó félagið allsherjar fjársöfnun. 10. afhenti Kvenfélag Kefla- víkur sjúkrahúsinu þar vönduð röntgentæki og 44.000 kr. \ pen- ingum. Þetta sjúkrahús er eigi tekið til starfa enn. 13. var bannað að flytja inn erlent verkafólk á þessu ári vegna ótta við að með því mundi geta borizt gin- og klaufa- veiki til landsins. Búnaðarfélagi var falið að ógilda gerðar vist- ráðningar. 14. afhenti Krabbameinsfélag- ið Röntgendeild Landspítalans að gjöf fullkomin geislalækn- ingatæki, er kostað höfðu 250.000 króna. FLUGMÁL. í byrjun febrúar var flugleið- um innan lands skipt milli flug- félaganna tveggja, er haldið hafa uppi samgöngum í lofti. Loft- leiðir töldu sig bera skarðan hlut frá borði og tilkynnti að það gæti ekki haldið uppi áætlunar- ferðum. Ráðuneytið fól þá Flug- félagi íslands að halda uppi á- ætlunarferðum á þeim flugleið- um, er Loftleiðum voru ætlaðar. Seinna í mánuðinum seldu Loft- leiðir flugvélina Helgafell til Spánar. Hafði hún áður aðallega verið í förum milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. TRYGGINGAR. Brunabótafélag íslands bauð Akureyrarbæ að lækka vátrygg- ingariðgjöld húsa þar um allt að 20% ef bærinn kæmi á hjá sér fullkomnum brunavörnum. Auk þess bauðst félagið til að lána bænum hálfa milljón króna í þessu skyni. Rafha í Hafnarfirði stofnaði vátryggingu fyrir öll rafmagns- áhöld frá sér. Seinna stofnuðu svo rafvirkjameistarar í Reykja- vík aðra vátryggingu fyrir alls konar rafmagnsáhöld. ÚTHLUTUN STYRKJA. Úthlutað var fjárstyrk lista- imanna kr. 609.200, sem skiptist í 101 stað. Alls höfðu borizt 180 umsóknir um styrk. Menntamálaráð úthlutaði 720. 000 kr. í námsstyrki. Voru það framhaldsstyrkir til 88 náms- imanna og nýir styrkir til 56 námsmanna. Auk þess gerði Menntamálaráð tillögur um að veita 45 námsmönnum námslán, samtals 192.500 kr. 44 íslendingar hlutu styrk úr Sáttmálsjóði, samt. 26.900 d. kr. TOGARAR SELDIR. Tveir gamlir togarar, Hauka- nes og Baldur, voru seldir til Belgíu, sem bíotajárn. Þýzkur dráttarbátur Harle var sendur hingað til að sækja togarana. Djúpt út af Vestmannaeyjum bilaði stýri hans, en varðskipið Ægir kom honum til hjálpar og dró hann til hafnar þar sem hann fékk viðgerð. Lagði hann svo af stað með togarana í eftir- dragi hinn 28. og voru þeir báðir hlaðnir brotajárni. Hallgrímur Benedikísson stór kaupmaður var kosinn forseti bæjarstjórnar Reykjavíkur í stað Guðmundar heit. Ásbjörns- sonar. Fjársöfnun Rauða krossins handa fólki á flóðasvæðinu í Pó- dalnum á ítalínu er nú lokið. Höfðu safnazt 260.000 kr. í pen- ingum og mikið af fatnaði. Almennings þvofiahús tók til starfa í Reykjavík. Eru þar 18 þvottavélar, tvær stórvirkar vindur og þurkvél, sem konur geta fengið til afnota. s Þjóðminjasafnið nýja var formlega afhent ríkisstjórninni hinn 22. Húsið hefir kostað 7.2 milljónir króna og verið 6 ár í smíðum. Þessa atburðar minnt- ist háskólaráð og heimspekideild háskólans með því að kjósa heiðursdoktora þá Matthías Þórðarson fyrv. þjóðminjavörð og Haakon Shetelig prófessor í Bergen í viðurkenningarskyni fyrir ómetanleg störf þeirra í þágu íslenzkra þjóðfræða. Skógræklarfélag Eyfirðinga hélt aðalfund sinn 17. Það starf- ar í 9 deildum. Árið sem leið hafði það látið gróðursetja 44.000 plöntur. Nýr barnaskóli var vígður í Keflavík. Er það mikið hús og hefir verið rúm 3 ár í smíðum og kostað 7 milljónir kr. Nýyrði. Menntamálaráð fól stjórn íslenzku orðabókarinnar (þeim háskólaprófessorunum Al- exander Jóhannessyni, Þorkeli Jóhannessyni og Einar ól. Sveinssyni) að hafa umsjón með skráningu og útgáfu nýyrða, og skulu þau gefin út í bók á sumri komanda. Eyjólfur Jóhannsson var skip- aður forstjóri Innkaupastofnun- ar ríkisins. Vélsf jóraskólanum barst að gjöf vönduð diesel-kennsluvél frá verksmiðju þeirri, sem smíð- aði diesel-vélarnar í nýju togar- ana. Heimdallur, Félag ungra Sjálf stæðismanna, hélt hátíðlegt 25 ára afmæli sitt hinn 16. Var þá gefið út veglegt minni’ngarrit og samsæti haldið í Sjálfstæðis- húsinu. Nýjung í símamálum. Hinn 11. varð sú nýjung í símamálum að talsímanotendur í Reykjavík geta hringt beint á miðstöðina í Borgarnesi og fengið samband við menn þar, án þess að lang- línumiðstöðin komi til skjal- anna. Gefist þetta vel, er ráðgert að koma á beinu talsímasam- bandi við fleiri staði, svo sem Akranes, Selfoss og Keflavík. Bæjarúlgerðin. Kaupgreiðslur hennar til sjómanna á árinu, sem leið, urðu 9 1/3 milljónir króna. Viðskipíasamningur var gerð- ur við Finnland til jafnlengdar næsta ár. Gert er ráð fyrir að Is- lendingar selji Finnum síld, síldar og fiskimjöl, lýsi o. fl. fyr- ir 750 þús. sterlingspunda, en kaupi af Finnum trjávið, bygg- ingarefni, pappír o. fl. fyrir 830 þús. sterlingspunda. Samsýning á höggmyndum, vatnslitamyndum og málverk- uqi norrænna áhugamanna var opnuð í Reykjav’ík 23. febr. Voru þar 128 verk til sýnis. Nýr söngvari, Ketill Jensson, hélt fyrstu söngskemmtun sína í Reykjavík 5. febr. og fékk ágæt- ar viðtökur. Fyrir 3 árum var hann sjómaður á togara, en hefir að undanförnu stundað söngnám í Milano á Italínu. Kemur að skuldadögum. ís- lendingur nokkur, er kom með skipi frá Svíþjóð 16. febr. var handtekinn af lögreglunni í Reykjavík við heimkomuna og játaði á sig að hafa gert ofbeldis- árás á mann hér í bænum í maí 1950. Síðan hefir hann verið er- lendið. Hollensk bóndahjón voru á leið vestur um haf með flugvél. Á meðan flugvélin stóð við á Keflavíkurflugvelli varð konan léttari og ól stúlkubarn. Frestað- ist því för þeirra. Litla stúlkan var látin heita María Fransisca ísafold Meeks, svo að hún er kennd bæði við landið og flug- völlinn. Henni bárust miklar gjafir frá starfsfólki flugvallar- ins. Alvinnuleysisskráning. Sam- kvæmt skráningu atvinnulausra í byrjun mánaðarins, voru töl- urnar þessar í fjölmennustu kaupstöðunum: Hafnarfirði 72 (þar af 40 einhleypir), á Akur- eyri 131 og í Reykjavík 718 (þar af 49 konur). Hraðfrysiisiöð og beinamjöls- verksmiðja tóku til starfa í Höfn í Hornafirði í byrjun mánaðar- ins. Lánadeild fyrir smáíbúðarhús í kaupstöðum og kauptúnum tók til starfa í þessum mánuði sam- kvæmt lögum frá seinasta Al- þingi. G^inga fyrir um lán barna fjölskyldur, ung hjón er stofna heimili og fólk sem býr í heilsu- spillandi íbúðum. Lánstími er 15 ár, vextir 5%%. Lán eru veitt gegn 2. veðrétti í húsunum og mega ekki vera hærri en 30 þús. á hverja íbúð. Bílar töldust samtals 10.634 á öllu landinu, fólksbílar 6420, vörubílar 4214. Auk þess voru 294 bifhjól. Viðskiptajöfnuður við útlönd var óhagstæður um 5,9 millj. kr. í þessum mánuði. —Lesb. Mbl. Mirmingarorð Þorstína Soffía Þorsteinsdóttir Borgfjörð var fædd 22. febrúar 1868 í Mýnesi í Suður-Múla- sýslu. Hún lézt 28. marz s.l. á heimili dóttur sinnar og tengda- sonar, Mr. og Mrs. Sigurjón Jónasson, Mary Hill, Man. For- eldrar Þorstínu voru þau hjónin Þorsteinn Vilhjálmsson frá Hjartarstöðum og Jóhanna Vil- hjálmsdóttir frá Mýnesi. Þor- steinn faðir hennar varð úti heima á íslandi árið 1867, tveim mánuðum áður en dóttir hans fæddist. Hún hét því í höfuð föður sínum. Þorstína var tekin til fósturs af föðursystur sinni Soffíu Vilhjálmsdóttur konu Jóhannesar Sveinssonar Hólm. Hún átti einn bróðir og tvær systur; Guðný og Gunnar dóu heima á íslandi, Kristín, Mrs. Eyjólfur Nicholson, dó í Min- neota, Minn. Þorstína kom frá íslandi til Bandaríkjanna árið 1891 og stað- næmdist fyrst í Minneota. Þar mætti hún æskuvini sínum Ein- ari Guðmundssyni Borgfjörð. Þau giftust árið 1892 og fluttu sama ár til Mary Hill við Lund- ar, Canada. Þar áttu þau heimili til æviloka. Einar dó árið 1939. Þau áttu sjö börn: Jóhann Soffanías dó úr spönsku veik- inni árið 1919, hann var í heims- stríðinu 1914—1918; Gunnsteinn, Ingi og Sveinbjörg eru í heima- húsum; Jóhanna, Mrs. Sigurjón Jónasson, og Guðný, Mrs. Kjart- an Goodman, eiga heima á Mary Hill; Lilja Guðrún, Mrs. Th. Thorgilsson, á heima við Lundar. Barnabörn þeirra eru fjögur. Þorstína var stilt og siðprúð, góð kona og elskuleg móðir. Hún var guðrækin og las guðs orð mikið af hjartans þrá. Hún átti við mikið heilsuleysi að stríða seinustu árin og var alveg rúm- föst í fimm ár. Hún bar sína þungu byrði með stakri still- ingu, var nærgætin og blíð við alla. Hún þráði dauðann sem góðan vin. Nú hefir hún fengið hvildina, sem hún bað um svo heitt og innilega. Vinir hennar og ættingjar gleðjast yfir að hún er bænheyrð. „Þá hrörnar sjónin, heyrn og mál mig heyra lát það innst í sál af vinar vörum þínum. Hve himnaríki indælt er og að þú hefir búið mér þar vist og vinum mínum.“ Jarðarförin fór fram frá Lút- ersku kirkjunni á Lundar þann 2. apríl. Séra Jóhann Fredriksson jarðsöng. For VIGOR, SIZE, HARDINESS Early Maturity Heavy Production of Big Brown Eggs— GET BRETGOLDS, THE NEW R.I.R. x B.R. CROSS — A worthy addi- tion to the popular line of Bred for Productior CHICKS Unsexed 100 50 19.00 10.00 19.00 10.00 18.50 9.75 18.50 9.75 18.50 9.75 21.00 11.00 21.00 11.00 18.50 9.75 20.00 10.50 20.00 10.50 20.00 10.50 22.50 11.75 100% live APPROVED Bretgolds White Rocks New Hamps Austra x White Hamp x Leg. Light Sussex Blk. Australorps R.O.P. SIRED White Leg. Barred Rocks New Hamps R.I. Reds Lt. Sussex COCKERELS arr. gtd. Pullets Pullets 100 50 32.00 16.50 32.00 16.50 34.00 17.50 35.00 18.00 35.00 18.00 34.00 17.00 34.00 17.50 36.00 18.50 34.00 17.50 36.00 18.50 36.00 18.50 36.00 18.50 96% acc. Pioneer Hatchery 416 Corydon Ave. _ Winnipeg, Man. Producing High Quality Since 1910. licks KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMU N DSSON FREYJUGATA 34 . REYKJAVÍK 0 í /

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.