Kvennablaðið - 30.11.1915, Blaðsíða 5

Kvennablaðið - 30.11.1915, Blaðsíða 5
KVENNABLAÐIÐ 85 kenslu. Tímann legðu konurnar fram, eins og karlmenn við sína þegnskyldu- vinnu. Hin margfróða, alþekta vísinda- og kvenréltindakona, dr. Lydia Wahlström, ritaði leiðara um þetta i blaðið »Röstrátt för Kvinnor« 1913, og komst þar að þeirri niðurstöðu, að »þelta mál kæmist eflaust ekki í framkvæmd fyr en kon- urnar sjálfar hefðu fengið kosningarrétt«. England. Enska kvenrétlindafélagið »Women’s Social and Political Union« hélt fund í Westminster í London p. 22. okt. síðastl., sem var að pví leyti eftirtektarverður, að pað voru ekki for- ingjarnir, pær mæðgur Mrs. og Miss Pank- hurst, sem til hans boðuða og stjórnuðu hon- um, heldur voru pað aðrar félagskonur, sem héldu hann til að mótmæia pví, að pessar for- stöðukonur hefðu algerlega vikið frá aðal-pró- grammi félagsins, og berðust nú fyrir algerlega gagnstæðum málum. Á fundinum var síðan borin upp og sampykt svohljóðandi fundar- sampykt: »Pessi fundur, samanstandandi af núverandi og nýlega verandi meðlimum »Women’s Social and Political Union« iýsir yfir smni óbreyttu trygð og hollustu við kvenréttindamálin og barattuna fyrir peim, og peirri trú sinni, að einungis peir hæfileikar og markmið, sem konur úr W. S. P. U. hafa barist og liðið fyrir, geti hafið mannkynið á hærra siðferðislegt stig og komið veruiegum framförum pess í framkvæmd, að petta mark náist að eins með stöðugri á- framhaldandi samvinnu kvenna um allan heim, bygðri á peirra pólitíska hjálparleysi og al- mennu bágbornu kjörum, með pví að vinna með stöðugri trúmensku að pví, að vernda og styrkja hagsmuni kvenna á pessum yfirstand- andi hættu- og neyðartímum, bæði fjárhags- lega og pjóðfélagslega. Pessi fundur mót- mælir enn fremur störfum og stefnu peirri, sem sljórn W. S. P. U. hefir tekið sér, að félagsins nafn og ræðupallar eru ekki framar notað fyrir kosningarrétiarmál kvenna eða til að ráða bót á óteljandi vandkvæðum og vanmætti atkvæðislausra kvenna, einungis vegna annara fyrirætlana, sem ekkert koma félaginu við og eru pví alveg gagnstæðar. Pessi fundur krefst einnig reikningsskila til endurskoðunar um tekjur og gjöld félags-' sjóðsins, sem ekki hefir verið gerð nein skilagrein fyrir síðan vorið 1914«. — Eins og lesendur Kvbl. muna, var pað ein- mitt petta félag, með pær Pankhurst-mæðgurn- ar í broddi fylkingar, sem mest barðist fyrir réttindúm kvenna á Englandi og bitrastir urðu fjandmenn Asquith-sljórnarinnar, sem gerði upptækt blað peirra og lét greipar sópa um peningaskápa félagsins i skrifstofum félagsstjórn- arinnar, pótt stjórnin yrði brátt að neyðast til að sleppa pví aftur, vegna fylgis hins gamla, fræga verkamannaforingja Keir Hardie. — En nú hafa pessar gömlu kvenréttinda-bardagakonur alger- lega lagt niður öll störf sín og baráttu fyrir kvenréttindamálum, en vinna nú afsamakappi fyrir ensku stjórnina að pvi að fá sem flesta sjálfboðaliða í stríðið, og fara til pess fyrir- lestraferðir um pvert og endilangt landið. Blað félagsins, »Suffragetta«, berst ekki lengur fyrir kvennamálum. Nú hafa pær Pankhurst- mæðgur skírt pað um og kalla pað »Britannia«, og er pað eitt af pvi, sem félagskonur áfella pær fyrir, með pví blaðið vinni algerlega að pvi að agitera fyrir stríðinu, pvert á móti ósk- um félagsins og prógrammi pess, og gangi al- gerlega inn í ófriðarpjónustu karlmannanna. Vmsar konur töluðu á fundinum, bæði til að áfella pær Pankhurst-mæðgur og til að ræða og draga upp pað prógram, sem félagið yrði nú að fara eftir. Voru pær samdóma um pað, að nú væru heppilegir tímar fyrir konur til að vinna að framgangi kveméttindamálanna, og að pær yrðu nú að vinna upp penna mista tíma með enn pá meiri atorku og kappi. Raddir ofan úr sveitunum, (Kafli úr bréfi til Kvbl.). »— Við erum nú eins og ríki maðurinn, sem lifði hvern dag í dýrðlegum fagnaði, en enn pá liggur Lazarus fyrir utan dyrnar og á sér ekkert hæli. Konurnar eru nú að skora hver á aðra, að safna fé til pess (nfl. spítalasjóð), en eg er hrædd um, að pað gangi seint; pær eru ekki vanar við að bafa peninga undir höndum og verða pví smátækar, ekki af pví, að pær tími pví ekki; pær gefa fátæklingum oft margra króna virði i fötum og mat, en pegar til peningaútlála kemur, kveður við ann- an tón. T. d. gaf ein af efnaöri konunum hér i sveit 50 aura og er hún pó enginn nirfill —«.

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.