Dagskrá II - 22.05.1902, Blaðsíða 4

Dagskrá II - 22.05.1902, Blaðsíða 4
4 DAGSKRÁ II. BÓKASAFN “SKULDAR.” Goodtemplara stúkan “Skuld” á all- mikiS og vandaö bókasafn, sem öllum er heimilt aðgöngu gegn mjög lítilli borgun. Safniö er geymt á skrifstofu Dagskrár og hefir Sig. Júl. Jóhannesson umsjón yfir pví. Bókalisti er til sýnis og útlán af safninu kl. til 7)4 á hverjum degi. Allar upplýsingar fúslega gefnar. þeir sem vildu gefa safninu bækur eru mjög kærir gestir á skrifstofu Dagskrár. JÓLARŒÐA. Eigi ég aö segja ykkur pær óskir, sem insta sæti skipa í hjarta mér, pá eru þær þessar: aö á næstu jólum hefðu allir konungar og keisarar slept tilkalli til þeirra stöðu og leyft fólkinu aö stjórna sér sjálfu; að allar aðals- og auðmanna- eignir í heiminum yrðu af handhöfum þeirra viðurkendar eign fólksins, og skift meðal þess eftir réttum hlutföllum; að páfinn kastaði kórónunni þreföldu og öll- um helgiskrúðanum og teldi sig ekki leng- ur fulltrúa guðs með ótakmörkuðu og ó- skeikulu dóms- og framkvæmdarvaldi, heldur eins og hvern annan ítalskan borg- ara; að allir kardínalar, erkibiskupar, biskupar, prestar og trúfræðingar viður- kendu þann sannleika að þeir vissu ekki neitt í guðfræði, ekkert um himnaríki, né helvíti; ekkert um ásigkomulag manns- sálarinnar eftir dauðann; ekkert um djöfla né drauga, guði né engla; að þeir legðu mesta áherzlu á það við söfnuði sína, að þeir hugsi fyrir sig sjálfir og lifi ávalt og komifram, sem mannlegirmennogkvenn- legar konur, og kappkosti að auka ham- ingju sína og bræðra sinna, Að allir kennarar — ekki sízt sunnudagaskóla- kennarar—kæmu sér saman um að kenna það eitt, er þeir vissu að væri sannleikur, en sleptu eldri og nýrri hugmyndum, sem lítinn sannleiksgrundvöll hafa á að hvíla. Að allirþjóðmála skúmar breyttust í sanna stjórnvitringar, sem legðu áhuga á að gjöra lönd og þjóðir frjálsar og virtu gagn og heill almennings meira en tiltölulega lítinn persónulegan hagnað. Að allir ritstjórar blaða og tímarita segðu ein- tóman sannleika og létu allar heimu- legar sakir manna afskiftalausar. Að öllum drykkjuskap væri útrýmt, að öHum líkamlegum hirtingum yrði hætt á hverju haimili, í hverjum skóla, á vitfirringa- stofnunum, betrunarhúsum og tangelsum. Grimd drepur hið maunlega en vekur hið dýrslega. Lipurð og prúðlyndi betrar og göfgar. Ég vildi ennfremur óska að sjá réttláta skifting hagnaðarins milli inn- stæðu og vinnu, svo erfiðismaðurinn gæti blandað dálitlu af júní saman við desem- ber æfi sinnar. Ég vildi sjáalþjóðadóm- stól, þar sem öll ágreiningsmál þjóðanna yrðu útkljáð, svo að öllum þeim hundruð- um þúsunda, sem pínast undir oki hern- aðarskyldunnar, veittist mannlegt frelsi, en hergögn öll fengju að ryðga og rotna niður í alheimsfriði. Ég vildi í fáum orð- um sjá heiminn frjálsan og frían og laus- an við hjátrú og ranglæti, — þetta verður að duga til næstu jóla — síðar má vera að ég eigi fleiri óskir. R. G. Ingersoll. DUGLEGIR DRENGIR. þorvaldur þorvaldsson er útskrifaður af háskóladeildinni víð Wesley-skólann, og fékk hann ágætiseinkunn og heiðurspen- ing að verðlaunum. Stefán Guttormsson og Runólfur Fjeldsteð tóku próf upp í háskóladeildina ; fékk Stefán $60 verð- laun fyrir frábæra kunnáttu í reikningi og latínu, og Runólfur fékk $40 verðlaun fyrir ágæta kunnáttu í grísku. María Anderson tók einnig gott próf upp í há- skóladeildina. það er ánægjulegt fyrir Islendinga hversu mikinn dugnað og skarpleik þessir þrír piltar hafa sýnt. þorvaldur hefir ýkjalaust þroskaðastar og heilbrigðastar skoðanir allra ungra náms- manna hér á meðal Islendinga. Ef alt fer að sköpum, ætti hann að verða and- legf stórmenni á meðal vor með tíð og tíma. Tvennskonar bros. Eitt kulda bros, það kveikir haturs bál, sem kólnar ekki þó að líði frá ; það tætir burtu tilfinning úr sál, sem tími’ ei nokkur endurvekja má. Eitt kærleiks bros, það eykur yl og ljós, og ísum-bundna þýðir hjartarót; það endurlífgar liðna gleðirós og leiðir burt úr sálu hefndar grjót. Eitt kulda bros, það beygir hrygga sál ' og byrgir skugga sérhvern geislastaf; það breytir friðarsöng í sorgarmál og sekkur von í örvæntingar-haf. Eitt kærlejks bros, það kveikir líf og fjör og kjark og nýjan þrótt í lífsins stríð ; það breytir dýpstu sorg í sigurför og sýnir inn í hulda dýrðartíð. P. S. PÁLSSON. Munið eftir Scheving’s GOLDEN HAIR TONIC. Húsamálningu tek ég að mér í sumar fyrir sanngjarna borgun ; er vel vanur þeim starfa. Finnur Finnsson. NÝTT HÚS TIL SÖLU, vandað, stórt, ódýrt, með vægum aorg- unarskilmálum.—Ritstj. vísar á. VARASKEIFAN Á KRINGLU. (Frh.) Við úrkeðju, sem fest var í vasann á vestinu vinstra megin, án þess að í hon um væri nokkurt úr, hékk nautshaus úr giltu blýi; er það merki Greenways, og hafði náunginn fengið hann um árið þeg- ar Kringla setti fæturna upp en höfuðið niður og átti að seljast suður í Bandaríki fyrir 13 dali og 13 cent; því þá bjóst hann við að feitastur þorskur mundi á þeim króknum hanga, er rent væri í fylkissjóð þeim megin, er Greenway hafði tökin og bauð honum svo þjónustu sína í laumi. En svo fór alt á annan veg en útleit fyrir. þeir sem lofað höfðu “framförum” og svikist um, voru reknir, en í stað þeirra kaus fólkið þá, sem lofuðu “afturförum” og efndu heit sín. þá sneri náunginn við blaðinu, því allir flaðrandi hundar hafa það eðli að fylla þann flokkinn, sem sterk- ari er í það og það skiftið; hann skamm- aðist sín fyrir nautshausinn og vafði utan um hann blaöi úr skáldsögu, er hann sjálf- ur hafði samið úr dönsku og enginn galli var á annar en sá að enginn vildi lesa. I þessum svifum gengur gamli Siggi Jó- hannesson fram hjá náunganum og strýk- ur bjórfroðuna úr skegginu: “Gerðu dá- lítið fyrir mig, lapnl” segir náunginn. “Hvað er það?” “Rubbaðu upp nokkr- um skammarvísum um h......hana Dag- skrá; ég er herra ritstjórinn að Krínglu á meðan Baldvin er að þvo sér, og ég þarf að slá mér upp á einhverju; þú getur ort undir fölsku nafni, ef þú þorir ekki ann- að; ég skal gefa þér ærlega í staupinu fyr- ir; þú ert auðvitað gamall Goodtemplar eins og ég, og hefir lofað við drengskap þinn að drekka aldrei áfengi, en hvað varðar okkur um það!” Gamli Siggi er allra ærlegasti karl í aðra röndina, sem bezt sést á því að séra Friðrik vidi reka hann úr söfnuðinum fyrir hreinskilni og “lögbergingar” (== þeir sem bergja Iög= drykkjumennirnir) ætluðu 2—3 að reka hann út af skrifstofu sinni fyrir það að hann vildi ekki troða á séra Bjarna að ó- sekju. En Sigga þykir sopinn góður og hann gekk að samningnum—gerðist nagli í einu gatinu á Kringluskeifunni og var þar fastur þangað til Mangi Markússon (Frh.) Ritstjóri : Sig. Júl. Jóhannesson. Cand. Phil. Skrifstofa að 547 Ross Ave. PRENTARI M. PÉTURSSON.

x

Dagskrá II

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá II
https://timarit.is/publication/174

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.