Fréttir

Tölublað

Fréttir - 16.05.1918, Blaðsíða 1

Fréttir - 16.05.1918, Blaðsíða 1
DAGBLAÐ 20. blað. Reykjavík, flmtadaginn 10. maí 1918. 2. árgangar. fer til Norðurlandsins strax eftir Hvítasunnu svo framt nægur flutningur fæst. Þorsteinn Jónsson. Sími 384. Fuilveldismálin. Báðar deildir þingsins hafa nú sett nefndir til þess að íhuga full- veldismálin. Var svo um mælt, þá er þær voru kosnar, að þingið mundi tala við sendimann, ef konungur léti hingað fara mann með fullu umboði til þess, að ganga að hreinu konungssambandi milli vor og Dana. þessar nefndir hafa eigi ennþá lokið starfi sínu. Því má telja lítið vit að vilja nú hlaupast brott af þingi og gera sig með því að athlægi með ókunn- um þjóðum. Þetta hefur eigi held- ur komið fram opinberlega, og engu er ráðið til lykta ennþá. Þó hafa nokkrir þingmenn, talað er um eitt kvígildi, ráðið sér far á Sterling. Vitum vér eigi gjörla nöfn þeirra, en höfum þó fyrir satt, að fremstur í flokki sé Sigurður Ste- fánsson og honum næstur Halldór Steinsson. Þingið hefur eigi ennþá gert neinar tillögur um bjargráð við þjóðina, ekki hótið. Nú kvaðst stjórnin hafa kvatt saman þingið meðfram til þess að hitta slík bjargráð. Væri þá í meira lagi undarlegt, ef hún léti það við- gangast, að þingmenn stryki nú af þingi. Annað mál er það, þótt ein- stakir þingmenn færi að nauð- synjum sínum, ef nógu margir verða eftir. Einkum væri það skaðlaust, ef til þess veldisl léleg- ustu þingmennirnir. Enda er von um að svo verði, en þeir menn ættu aldrei að koma aftur á þingið og væri landhreinsun að. Annars er það ekkert leyndar- mál að fyrir nokkrum dögum kom ákaft strok í nokkra þingskörunga, en þó dró úr þvi nokkuð aftur. Þá vildi svo illa til að Zahle sendi Hljóð.. Á vornótlu síðla ég vakandi lá; öll vordýrð var rólega hljóð; um húsþökin eldbjarmi ársólar lék líkur óði frá vaknandi þjóð. Enn í hug mér var ókyrð og andvöku þraui út af ólieill míns þjakaða fróns, sem átti' engan drenginn, er dugði til fulls, en drjúgmarga’, er voru til tjóns. Fyrir sjónir mér liðu sem lest eftir braut, með leikaraglotti um brár, þœr smásálnaillkvitni’ í öfundar fylgd og ágirnd til valda og fjár. Enn hljóðlát fór nóttin við ársólar eld og ómtöfra draumvona lands; — þá rauf þessa náttkyrð eitt nístandi kall, eitt neyðaróp konu' eða manns? — Frá hverjum var hljóðið? — Pað hrópandi kall9 — þessi hjarta mitt skerandi nauð‘í Á Jœtur ég stóð og að glugganum gekk, en gatan var þögul og auð. Var það kona, sem vakti við gáska ög glaum, við gleði’ — og að lokum við smán ? — eða vaknandi þjóðsál, er svívirt og sek í svip leit sitt hamingju rán9 S. F. Áfmæliskort, fjölbreytt úrval á Laugavegi 43?. Friðfinnur L. Guðjónsson. skeyti þar sem hann gerir ráð fyrir að þingi sé lokið. Þá fengu þeir aftur ákaft kast og eru nú langtum lengra leiddir. Hvað verður nú, er þessir góðu menn koma heim í hérað sitt? Mundu kjósendur taka fegins hendi við strokufulltrúum sínum? Vér trúum eigi öðru, en að nú komi upp alþjóðaróp um nýjar kosningar, ef menn strjúka. Og mundu kjós- endur þá veita þeim mönnum lausn, sem ekki hafa tíma til að sitja yfir stórmálum þjóðarinnar, þegar lif liggur við. Miklu veldur hér um, að í Reykja- vík er fullkomin þögn um þessi mál. Því að margir þingmenn halda, að það lýsi áhugaleysi bæjarmanna. — En, ef þeir sæi inn í hug Reyk- víkinga, þá mundu þeir ekki blása í þann eld að raunarlausu, því að fari hann laus, þá hafa þessir fáu menn ærið að vinna, ef þeir eiga að verja sig. London, ódags. mótt. i gær. frá vesturvigslððvannm. Opinber brezk tilkynning: Óvinirnir gerðu áhlaup mikil á mílu svæði á vesturvígstöðvunum suðvestur frá Morlancourt. En þeim var hrundið og biðu þeir af- skaplegt manntjón. Pó varð þeim nokkuð ágengt á einum stað, en er þeir voru komnir spölkorn inn á stöðvar vorar, tóku Ástralíumenn á móti þeim og ráku þá öfuga aftur samstundis. Fimmtíu fanga tókum vér og mistum fátt manna. Frakkar hafa hrundið af sér áhlaupum óvinanua fyrir norðan Kemmel. (Framh. á 3. síðu.) I Ur bréíi ausian úr sveitiun. — — Veturinn sem nú er lfrð- inn mun mörgum verða minnis- stæður. Ekki fyrir þá sök eina, hve harður hann var framan af, held- ur og vegna þess, hve skjótlega og snemma honum brá til hins betra. Það er sjaldgæft, að sumar komi með sumri, jafn bókstaflega og varð í þetta skifti. Túnin eru farin að grænka, og allur peningur kominn af gjöf nema kýrnar. — Skepnuhöld hin beztu og hey- fyrningar all-viða. Er því mörgum bóndanum léttara innanbrjósts, en í hörkunum í vetur. Fréttir eru farnar að berast hingað af þinginu og sumar ótrú- legar. Hefur heyrst, að sumir þing- menn vilji óðir og uppvægir slíta þingi nú þegar og koma saman aftur eftir tvo mánuði. Heyrst hef- ur einnig, að í vændum séu stór- tiðindi í sambandsmálinu og að

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.