Höfuðstaðurinn

Tölublað

Höfuðstaðurinn - 17.10.1916, Blaðsíða 3

Höfuðstaðurinn - 17.10.1916, Blaðsíða 3
HÖFUÐSTAÐURINN hætta fyrr en herveldi Prússa er brotiö á bak aftur og á ekki viöreisnar von framar. : Frh. TJnnusta hermannsins. Norsk saga. —o— Frh. | — Einmitt það, svaraði konan. Doktorinn Ieit á úrið sitt. — Eg ætlaði eiginlega út að Kambi og líta til fjölskyldunar þar, þar er aumt ástand. — Já, þau eru víst mörg heim- ilin þau, sagði konan og varp önd- inni mæðilega. — Já, það væri betur að öll heimili væru eins og þetta hérna — þá yrði starf læknanna léttara meðal fátæklinganna. Á læknisferðum mínum, hefi eg oft átt kost á að sjá eymd og spiltingu margra heimiia, þar sem syndin og viðurstygðin hafa skipað öndvegiö. Bóndinn hefir drukkið, konan hefir drukkið, drukkið frá sér vit og velsæmi og börnin hafa alist upp við þetta, og oft og ein- att hefir betrunarhúsið orðið áfanga- staðurinn. — Drekka ekki líka margir af þessum heldri mönnum ? spurði konan. — Jú, það held eg víst, en þeir drekka fín vfn og dýr, en verka- maðurinn drekkur aðeins brenni- vín, þó verða sömu afleiðingarnar af hvorutveggja. Hjá heldri mönn- unum koma fyrir sjóðþurðir og víxilfalsanir, en fátæki maðurinn fremur innbrot og þjófnað. — Það er allur mismunurinn, sagði trésmiðurinn hugsandi. — Guði sé lof að maðurinn minn drekkur ekki, sagði konan og leit innilega til mannsins síns. — Já, það er mikils um það vert, sagöi doktorinn, tók staf sinn og hatt og flýtti sér af staö. Mæögurnar tóku nú af boröinu, en trésmiðurinn gekk um gólf, tugði tóbak og spýtti í ákafa. Kunningi vor, Jensen söðlasmið- ur, kom lötrandi neðan götuna, Hann gekk heim að húsinu þar sem Iversen bjó, og staðnæmdist úti fyrir, eins og hann væri í efa um, hvort hann skyldi fara inn eða ekki. BókbandsYinnustofa Jónasar og Björns er á Laugaveg 4. Hann hafði veitt eftirtekt manni nokkrum vel búnum, sem gekk afturTj og fram á gangstéttinni, í hægðum sínum. — Hvaða náungi skyldi þetta vera, hugsaði Jensen með sjálfum sér. Forvitni hans var nú vakin. — Já, mér sýnist það vera Stei- nert umboðssali, tautaði hann. Það væri nógu gaman að vita, hvað hann hefir hér fyrir stafni. Jensen stóð enn fyrir utan hús- dyr Iversens, eins og hann kynok- aði s ér við að fara inn. Það hefð. mátt ætla að hann skammaðist sin fyrir að koma til nokkurra lieið- viröra manna, eins og hann var út- lítandi, en Jensen var ekki að hugsa um þið. Hann var að brjóta heil- ann um, hvernig haun ætti að haga sér þegar inn kæmi. Haun vildi koma flatt upp á Iversen, er: þó þannig, að hann hafði það upp úr heimsókninni, sem til var ætlast. Niðurstaöan varð sú, að hann hreykti húfunni, gekk inn í portið og barði mannalega að dyrum. — Kom inn, var sagt inni fyrir. Jensen kom inn og heilsaði kunnuglega Ivertsen, sem sat inni og reykti pípu sína. — Góðan daginn Jensen, sagði hann. Þú er þá lifandi enn. — Já, jæja, mig langaði tiKað heilsa upp á gamla kunningja. — Kunninga, tautaði Iversen og dró það við sig. Já, við gengum saman í skóla fyrir Iöngu síðan. — Já, það er orðiö langt síðan. — Hvernig gengur þér Jensen? — IUa — segðu mér eitt, hefii þú ekki í staupinu handa gömium kunningjum ? — Eg hefi aldrei brennivín svaraði fversen stutt. Jensen fann strax að hér hafði hann sagt nokkuð, sem ekki átti við. — Jæja þá, það gerir þá ekkert til. En hvernig líöur þér? — Þökk fyrir, vel. •— Já, það lítur út fyrir það, Segðu mér eilt, vantar ekki' hús- bónda þinn söðlasmið? — Jú, það vantar hann reyndar. — Sjáðu nú til. Eg frétti það í gær, og svo hugsaði eg sem svo að þú værir vís til að segja éitt orð mér til liðs við húsbónda þinn — Þér er bezt að fara til hans sjálfur og tala við hann. — Það þýðir ekkerf, en þú gæt- ir mælt með mér við hann. — Það get eg ekki. — Því ekki, Martin? sagði Jen- sen og reyndi að vera inmlegur. Fljótur að lesa. Þegar börn eru að Iæra lestur, taka þau aðeins fyrir einn og einn staf í einu. Fullorðnir aftur á móti taka fyrir í einu eitt eða fleiri orð — en þó verður það aðeins »staut« hjá því sem Ameríkumaður einn gerir. Er sagt frá því í amerísku læknablaði. Þessi Amríkumaður er er sagt að geti á einu augnabliki lesið heila sögusíðu í 8 bl. broti, og gert fulla grein fyrir efninu á eftir. Hann þarf ekki að horfa á síðuna lengur en 2 sekúndur, og þá er hann búinn að læra efnið. Þetta er ekki sem sennilegast, en i i skritið var það að maður þessi I hafði orðið stór-hissa, er hann i heyrði aö aðrir þyrftu svo og svo langan tfma til að lesa eina blað- síðu. Þessa hraölestrarhæfileika varð fyrst vart hjá honum, er hann varð j 40 ára gamall. Þá varð honum það alt f einu Ijóst, að hann gat Iesið stærstu sögur á stuttum tíma, og gat þó fest efnið svo í minni sér, að hann gat sagt frá því mörg- um árum siðar. Kettir og krossmessa. —o— Það er kunnugra en frá þurfi að segja hvaö mikið gengur á hér í Reykjavík alla flutningsdaga, bæði haust og vor. Þessir tlutningar eru flestum meira eða minna til- finnanlegir, en eugir verða eins hart úti og veslings kettirnir, ekki sízt við haustflutningana. Þá úir og grúir af heimilislausum köttum, sem annaðhvort hafa veriö skildir eftir í flaustrinu, eða þeir hafa strokið aftur til gamla heim- ilisins. Nokkuð er hægt að fyrirbyggja þetta með því að gæta þess vel að skilja ekki kettina eftir í greinar- leysi og þegar þeir eru fluttir, að flytja þá í lokuðu íláti, körfu eða einhverju þvílíku, svo þeir geti ekkert séð í kringum sig á leið- inni, þvf kettir eru bæði strok- gjarnir og ratvísir og kunna illa öllum breytingum. Þegar búiö er að flytja þá, má helzt ekki sleppa þeim út í nokkra daga, meðan þeir eru að átta sig og kynnast nýja heimiiinu. Það hlýtur að taka alla óspilta menn sárt, að sjá þessar aumingja skepnur flækjast fyrir dyrum sínum og mæna átakanlegum bænaraug- um á dyrnar og alt sem maður fer með. Engin skepna biður eins vel og kötturinn og engri skepnu er eins oft synjað um nauðsynjar sínar. — Þeir sem ekki gæta að kettinum sínum og láta honum líða eins vel og unt er, eiga engan kött að hafa á heimilinu. Góðir menn og konur! gleym- ið því ekki að láta skepnum ykkar líða eins vel og unt er, hverju nafni sem þær nefnast. K.attavinur. 39 höggum við orustuóðan Picardbúa. Hann var náfölur og beit á vörina, en hann var hinum vopnfimari og lagði hann í gegn í hjartastað með sverðinu. En er fjandmað- ur hans lá í blóði sínu, þá leit hann með viðbjóði á sverðið og fleygði því frá sér. »Fá þú mér hreint sverð, bogsveigir*, mælti hann. Þó var þelta sverð erlend snildarsmfð og beit hverja hringabrynju sem klæði. Eg tók sverðiö upp og bar það lengi síðan sjálfum mér til varnar. Thomas mátti eigi mansblóð sjá. Hann átti miklar eignir og marga skóga. Þar lifðu veiðfdýrin í rjóðrunum sem í Paradís, og þá er hann kom í skóga sína, fögnuðu rándýrin honum og átu úr hendi hans. Hann fölnaði upp, ef hann varð að undirskrifa dauða- dóm og það var honum ofraun að horfa á aftökur, sem koma oft fyrir í ríkjum, sem vel er stjórnað, en konung- ur lét oft syo lítið aö hafa þár forstöðu á hendi, þar sem hann var manngerfing réttvísinnar í landinu. Oft hló Hinrik konungur, er hann reið framhjá aftökustað með kanzlara sínum. Því að Thomas horfði í aðra átt. Hann gerði það eigi sakir svipa þeirra, er heima eiga á slíkum stöðum (því að kanalarinn var maður trúlaus), heldur sakir hryllings yfir kvölum mannkynsins, er iéti taka þarsundur limi sína. Hann veigraði sér meira að segja við að undirrita dauðadóm þjóðkunnrar töfrakonu, sem játað hafði á sig djöfullega glæpi sína og þessi hygni maður komst sakir

x

Höfuðstaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Höfuðstaðurinn
https://timarit.is/publication/188

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.