Alþýðublaðið - 07.07.1963, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 07.07.1963, Blaðsíða 5
Gefið munh um gott fordæmi UNDURSAMLEGASTA gjöf, sem foreldrar geta gefið barni sínu er, að lifa lífinu á þann hátt, að barnið skilji hve heim- urinn er óendanlega auðugur. Sýnið barni yðar, að lífið er æv- intýr, undur, og þér hafið veitt því hæfileika, kraft og löngun til þess að verða fullorðið. Þannig hljóða niðurlagsorð greinar, sem birtist í nýjasta tölu blaði Det Bedste, og fjallar um uppeldismál. Þar segir frá 112 ára bæ í New York ríki, sem byggður er af vandræðadrengj- um á aldrinum 9-15 ára. Þeir ganga í skóla í bænum, fá sál- fræðilega handleiðslu og starf við sitt hæfi. Meðal dvalartími er 28 mánuðir og 20% drengj- anna komast ekki aftur í kast við yfirvöldin. í greininni segir daglegur framkvæmdastjóri bæjarins frá reynslu sinni, sem hlýtur að vekja alia foreldra til umhugs- unar. Hann segir m. a.: , ,Eitt af undirstöðuatriðunum, — svo að segja kjarninn, í hegð- un stálpaða barnsins er ósam- ræmið, sem stafar af því, að í huga þess togast á tvenns konai óskir. Vilji til þess að verða fullorðið og vilji til þess af halda áfram að vera barn. Ei allt er eðlilegt sigrar óskin um að vera fullorðið, en ýmislegi getur orsakað þessa eðlilego iþróun. Þessar orsakir eru velþekktar í bænum okkar, þar sem um ára bil hefur verið unnið að því að breyta uppástöndugum, þx-józk- um drengjum í hlýðna og ábyrgð arfulla unga menn. Þau vanda- mál, sem þessi böm berjast við, eru hin sömu og öll börn hafa við að glíma, en hér eru vanda- málin aðeins stærri og meira á- berandi. Við skulum taka John til dæmis. John var 13 ára þegar bamaverndarráðið -sendi hann til okkar. Ytri orsakir voru þær, að hann hafði breytt tölu á á- vísun, sem móðir hans átti, en hann átti að taka út, þannig, að hann breytti 50 í 56 og gerði sjálfum sér gott af þeim sex dollurum, sem honum áskotnuð- ust á þennan hátt. En þétta var aðeins ein af þeim mörgu sönn- unum, sem við höfðum um bar- MYNDIR MYNDIR MYNDIR BLÓM eru í tízku í ár, segir í yfirskriftum tízkutímaritanna, en þeir, sem á annað borð hafa yndi af blómum, tylla þeim alls staðar, þar sem augað sér, — hvort, sem tízkan býður svo eða ekki. Hér eru nokkrar myndir, sem eiga að sýna hve miklu snotur 'blómaskreyting getur áorkað. áttuna milli „vil og vil ekki verða fullorðinn", eem háð var í sál hans. John var kallaður slagsmála- hundur í skólanum og hann naut þess, að sýna öðrum drengj- um, að liann hefði krafta í köggl- um. En hann gætti þess jafnan, að ráðast aðeins á þá drengi, sem voru minnimáttar, svo að hann þyrfti ekki að óttast að bíða ósigur. Hann sló einnig um sig með því, að hann ætti mikl- um vinsældum að fagna meðal stúlknanna, en „féll” aðeins fyrir stúlkum, sem voru eldri en hann og litu ekki svo mikið sem í áttina til hans. Fyrst i stað bað hann oft um að fá að hringja í mömmu sína. Hún kom oft og heimsótti hann og kom þá jafnan með mikið af sælgæti handa honum. Við komumst að raun um, hvar hnífurinn stóð í kúnni, — að því er John varðaði. Faðir hans hafði yfirgefið móðurina, þegar drengurinn var enn smábarn og hún reyndi nú ósjálfrátt að hindra John í því, að verða full- orðinn af ótta við það, að hann mundi þá einnig snúa baki við henni. John var það nauðsyn, að komast vel af við mömmu sína, því að hún var hið eina, sem hann hafði sér tíl stuðninga í þessum heimi. Þess vegna hag-- aði hann sér sem það bam, senri hún vildi, að liann héldi áíram aci vera og þetta kom i veg fyrík- eðlilegan þroska hans. Þegar kennari hans í bama - bænum sýndi honum þaim „föo - urlega áhugá“ sem Johu hafði jafnan þráð — kenndi honum aO.. renna sér á skautum, fór. með John í útilegur o.s.frv., þá fór þroskinn brátt að beinast íi. hina réttu og eðlilegu att. Það skiptír einnig mikiu má!i. fyrir börnin, að þau viti, hvai- þau hafa foreldrana. Þegar for- eldramir gera sér ekki ijóst^ hvað þau vilja, að stáipuðut börnin þeirra eiga að læra ogý gera, varpa þau ábyrgðmni áf herðar barnanna sjálira. Og þaut eru ekki fær um að leysa þá gátu. Auk þess vilja þau þaft ekki heldur innst ínni. Þau viljs^ aðeins, að foreldrar þeb’ra séujf raunverulegir foreldrar. Þaui glatast ef þau hafa ekki for-* dæmi hinna fullorðnu til þess aði fara eftir. Allir foreldrar víta auðvitað* að það er ekki gott að gefa nein- Framh. á 12. síðu ALÞÝÐUBLAÐH) — 7. júlí 1963

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.