Lögrétta

Issue

Lögrétta - 18.09.1912, Page 3

Lögrétta - 18.09.1912, Page 3
L0GRJETTA 185 yíik! iBrðs&néing. «3?Causíúísaían í cÆusíursírœfi 6. Hjer með tilkynni jeg öllum mínum háttvirtu viðskifta- vinum og öllum heiðruðum almenningi, að: Föstudaginn hinn 13. september byrjaði mín árlega éCaust-útsala með afslætti og verðlækkun á öllum vörum. Hið einróma álit, sem verslun mín hefur fengið, og stöðugt vaxandi aðsókn, síðan jeg byrjaði, vona jeg að sje yður næg trygging fyrir því, að hjer sje ekki um neitt g a b b eða h u m b u g að ræða. Með alúðarfylsta þakklæti fyrir undanfarin viðskifti og í því trausti, að jeg fái þá ánægju að sjá sem flesta af yður núna næstu daga, kveð jeg yður. Með mikilli virðingu Árni Eiríksson. lágt fell laust við Vatnajökul. Þar endar hraunið. Þar á að fara milli jökulsins og fjallsins, þá upp í skarð í hliðinni á fjallinu, þaðan dálítið í norður og svo í vestur upp á Dyngju- háls. Þar er hraun. Segir Thorodd- sen það ekki mjög ilt yfirferðar, en nú var það vont yfirferðar, því hjer var hraunið líka að mestu leyti þakið frosnum fannabreiðum.sem ekki hjeldu hestunum. Hvort þessi snjór liggur hjer altaf, eða hefur komið í veðrinu i. og 2. ágúst, get jeg ekki sagt, en eftir útliti hans að dæma virtist hann nýlegur. Um kl. 9 náði jeg hálsabrúninni skamt fyrir neðan Gæsahnúk og fór jeg þá niður í Vonarskarð. Jeg hafði hugsað mjer að fara gegnun Vonar- skarð; en þar sem jeg sá að alt þar var á kafi í snjó, treysti jeg mjer ekki til þess, heldur fór í vesturnorð- vestur út á Sprengisandssljetturnar, þar sem enginn snjór var. Hægt er að fara yfir Ódáðahraun þar. Vestur í hrauninu gaf jeg hestunum hafra og ljet þá hvíla sig 2 tíma. Síðan hjelt jeg áfram yfir Skjálfandafljót; á því er gott vað framundan miðjum hálsinum, sem liggur í norður frá Tungnafellsjökli. Frá Skjálfandafljóti á að fara yfir þennan háls, sfðan yfir á Jökulfell, og þá í suðvestur fram með Tungnafellsjökli. Hjer eru víða góðir hagar. Jeg dvaldi 2 tíma í dalnum hjá læk einum litlum og ljet hestana bíta. Síðan hjelt jeg áfram og kom að vörðunum á Sprengisands- vegi um kl. 8. Kl. io'/z náði jeg Eyvindarkofaveri og var kyr þar um nóttina. Allan daginn hafði verið bjart og heitt veður og logn. Þriðju- dagsmorgun kl. 4'/2 lagði jeg af stað frá Eyvindarkofaveri. Þaðan var þoka alla leið að Sóleyjarhöfða, en þar varð aftur bjait og heitt. Þjórsá var lítil, dálítið meiri en í kvið. Að Sóleyjarhöfða kom jeg kl. 8 og dvaldi þar til kl. 3. Þá hjelt jeg áfram suður eftir uns dimt var orðið, þá var jeg einhverstaðar milli Dalsár og Skúmstungu. Þar svaf jeg hálfan annan tíma, en auðvitað leist hest- unum ekki vel á að vera þar, því þeir komu þangað sem jeg !á og kröfsuðu í hvílupoka minn. Jeg lagði þess vegna á stað og var fótgangandi til Skúmstungu, því afarkalt var um nóttina. Jeg kom að Skúmstungu um kl. 6 miðvikudagsinorgun og dvaldi þar til kl. 2. Veður var altaf hið sama, bjart og heitt. Frá Skúms- tungu hjelt jeg áfram til bygða og kom að Skriðufelli kl. 5V2 síðdegis. Jeg hafði þá verið á leiðinni 4 sólar- hringa og 9 tíma milli bygða, og þó látið hestana hvíla sig alllengi á ýms- um stöðum. Sjálfur hafði jeg sofið smntals 12 klukkutíma á ferðinni. 40 pund af höfrum hafði jeg haft með og gaf hestunum í síðasta skifti fyrir norðan Dalsá. Af þeirri reynslu, sem jeg hef fengið á þessari ferð, skil jeg ekki annað, en að Vatnajökulsvegur sje ekki hættulegri að fara en Kjalvegur ög Sprengisandsvegur. Mjer finst það mundi borga sig, að setja þar upp staura og byggja vörður, eins og á hinum fjallvegunum, þá gæti ef til vill Vatnajökulsvegur orðið samgönguleið milli Austurlands og Suðurlands á þeim tíma ársins, sem yfirleitt er ráðlegt að fara fjallvegu. (Eftir „Suöuri."). Koefod Hanseti. Uppreisn i Harokkó. Frökkum ætlar að ganga erfitt að varðveita yfirráð sín í Marokkó. Sá, sem nú vekur þar uppreisn, heitir E1 Hibas og er áður ókunnur mað- ur. Hann hefur komið sunnan úr landi með flokk manna og boðar stríð gégn öllum útlendum yfirráðum. Landsfólkið hefur fengið traust á honum, enda lftur það mjög alment á Mulai Hafid og eftirmann hans, sem játast hafa undir yfirráð Frakka, eins og föðurlandssvikara. Þó segja nú fregnir í seinustu útlendum blöð- um, að Frakkar hafi unnið sigur á E1 Híbas í síðustu viðureigninni, við Suk el Arba, og hafi mannfall verið þar allmikið og lið El Hfbas lagt á flótta. Mulai Hafid er nú sestur að f Frakklandi og lifir þar svo rfkmann- lega, eða eyðir svo miklu fje, að orð fer af. Kina. Nýlega hafa verið sam- þykt þar og staðfest lög um fyrir- komulag þingsins framvegis. Það á að vera í tveimur málstofum, 274 þingmenn í efri málstofunni, en 600 f þeirri neðri. Svo á frumvarp til framtíðarstjórnarskrár að semjast af nefnd, sem báðar málstofur þingsins kjósa menn f, og siðan á það að ræðast í sameinuðu þingi og þarf þar 2/3 atkvæða til samþykkis. Fregnir hafa komið um, að Mon- gólar væru að segja sig lausa frá Kína og mynda úr Mongólíu sjer- stakt ríki. Þeir kvað hafa allmikinn her, um 200 þús. manna, svo að þeir geta orðið Kínastjórn erfiðir, ef fregnirnar eru rjettar. Líka er sagt, að Englendingar sjeu að losa um yfirráð Kína yfir Tibet, vilji ekki viðurkenna rjett Kína til umráða þar, er áður hefur þó eigi verið mótmælt. Yfir höfuð er enn, eins og við er að búast, allmjög í óvissu um, hvern- ig fara muni í Kína. Nýlega ljet Juan Shi Kai taka af lffi tvo hers- höfðingja, er hátt voru settir og mik- ils ráðandi, sakaði þá um þátttöku í samsa-ri gegn stjórninni. Þeir voru teknir rf lífi án und.ngengins dóms eða rjettarrannsóknar. Þetta vakti megnan óróa í þinginu og heimtaði það, að forsetinn gerði þvf grein fyrir þessu verki, en hann hafði það að engu. Það þykir áreiðanlegt, að hann hafi haft rjett fyrir sjer í sakaráburð- inum, en aðferðin er samt sem áður fordæmd. Hann ljet bjóða öðrum foringjanum til veislu, og að henni lokinni var hor.um tilkynt, hverjar sakir væru á hann bornar og jafn- framt sagt, að dómurinn væri þegar upp kveðinn. Hann yrði skotinn þegar í stað, og var svo gert — Það lítur út fyrir að Juan Shi Kai hafi þó friðað þingið út af þessu máli, því síðustu fregnir segja hann hafa þar öll ráð í hendi sjer, en Sun Yat Sen megi sín nú miklu minna en áður. Étalir og Tyrkir. Nú um tíma undanfarandi hefur verið þing- að um friðarskilmála þeirra í milli í Sviss af fulltrúum frá beggja hálfu, en ekkert er fastmælum bundið enn, og ófriði hefur ekki heldur verið haldið uppi. Lfklegt, að Trípólis verði áfram undir yfirráðum ítala, að svo miklu leyti sem þeir geta haldið þeim uppi gegn innlenda lýðnum, en Tyrkir haldi Kyrenaika, ef til vill þó undir vernd Englendinga. Það eru nú óeirðirnar á Balkan- skaganum, sem ískyggilegri þykja. Utanrfkisráðherra Austurríkis, Berch- told greifi, hefur gengist fyrir þvf, að stórveldin reyndu að stilia þartil friðar og er hugsun hans, að þetta verði best gert á þann hátt, að hvert þjóðerni þar verði sem sjálfráðast, þvert á móti þvf, sem var stefna Ungtyrkja, er reyndu að draga sem mest og flest undir sameiginlega stjórn. Ungtyrkir settu ráðsamkomu f Stam- búl snemma í þessum mánuði og þaðan hafa raddirnar verið alt ann- að en friðvænlegar bæði inn á við gegn stjórninni, er þeir telja alt of eftirláta við Albani, og út á við bæði gegn ítölum og Balkanþjóðun- um, sem risið hafa móti Tyrkjum. Þrátt fyrir allar sáttaumleitanir og milligöngu frá stórveldanna hálfu, er sagt, að bæði Rússar og Austurríkis- menn hafi herflokka viðbúna á Ianda- mærum til þess að vera með í spil- inu, ef til þess kemur að öllu verði umturnað á Balkanskaganum. Jarðarfúr Japanskeisara. Símað er frá Khöfn í morgun, að eftir jarðarför Japanskeisara hafi Nogi, hinn frægi hershöfðingi frá Rússa- stríðinu, ráðið sjer bana, og kona hans eins. Skrifstofa Júiíu. Miðillinn þaðan, Mrs, Wriedt, sem verið hefur að sýna mönnum W. Stead heitinn eftir dauða hans og lofa monnum að spjalla við hann, að því er guðfræðis- prófessor Haraldur Níelsson hefur ný- lega skýrt frá hjer í blaði, var í sfð- astl. mánuði í Kristjaníu og hafði þar andasýningar. Meðal viðstaddra var prófessor Birkelund og þóttist hann verða var við brellu hjá miðlinum, kveikti og tók af henni andalúður- inn. Hafði þá vel mátt merkja innan í honum eitthvert efni, sem lyktaði. Ljet prófessorinn svo efnafræðing ransaka lúðurinn og fann hann í hon- um leifar af iycopodin, eða norna- mjeli, sem svo er nefnt, og kvað vera algengt loddarameðal. Lúður- inn var úr aluminium og 70—80 cm. langur. Þetta mál hefur vakið mikið blaðaumtal og yfirleitt ekki til með- mæla með Júlíuskrifstofunni, en trú- aðir öndungar gera auðvitað ekkert úr því fremur en öllu öðru af sama tægi, sem gerir miðla þeirra tortryggi- lega. _____________ Georg Grikkjakonungur dvelur nú um tíma í Khöfn. Dáinn er 4. þ. m. í Khöfn kon- ungkj. landsþingsmaður H.Chr. Steflen- sen, gamall stjórnmálamaður í flokki hægrimanna. Skrásetning háskólaborgara fer fram í alþingishúsinu. Allir þeir stúdentar, sem ætla að stunda nám við háskólann, og ekki eru áður skrásettir, verða að gefa sig fram við undirskrifaðan háskólaritara í því skyni, og greiða jafnframt 15 kr. Skrifstofa háskólans er opin alla virka daga kl. 12—2. Reykjavík 14. sept. 1912. F. h. háskólaráðsins. cJón dlósenRranz. Höfundur Yolapiik-málsins, Jó- hann M. Schleyer, er nýlega látinn. Hann var þýskur prestur kaþólskur, fæddur 1831. Louis Botha, Búaforinginn frægi, sem nú er yfirráðherra í Bandaríkj- um Suður-Afríku, hefur nýlega verið gerður heiðursforingi í enska hernum. Samlyndi er nú stöðugt hið bcsta milli Englendinga og Suður-Afríku- búa. Hjálpræðisherinn hefur nú feng- ið nýjan yfirhershöfðingja og er það Bramwell Both, elsti sonur hins ný- látna yfirhershöfðingja, fæddur 8. mars 1856. Alls átti W. Booth 8 börn og voru þau öll í þjónustu hersins. Dóttir hans ein býr í Khöfn, Mrs. Lucy Booth-Hellberg, og hefur yfirstjórn hersins þar. Hún er ekkja eftir ríkan mann sænskan og voru þau áður fyrir hernum í Indlandi. W. Booth lætur eftir sig allmiklar eignir, og sjálfur tók hann aldrei einn eyri fyrir starf sitt í hersins þarf- ir. Enskur auðmaður, sem hlyntur var starfi hans, hafði fyrir löngu gef- ið eignir, er hann setti fastar til upp eldis honum. Jarðarför W. Booth’s fór fram í London 29. f. m. og er sagt, að varla hafi verið jafnmikið um að vera við jarðarför nokkurs þjóðhöfðingja. Ótölulegur manngrúi hafði gengið fram hjá líkinu meðan það var frammi á sorgarbörum. Flóð í Englandi gerðu stórskaða um sfðastl. mánaðamót og framan af þessum mánuði, í Noiwich var farið á bátum um göturnar og fólki á þann hátt bjargað burt úr húsunum. Óveð- ur höfðu verið mikil, regn og storm- ar. Skriðuföll gerðu sumstaðar mik- inn usla. ísland erlendis. Sveinbjörn Sveinbjörnsson tón- skáld er alkominn til Ameríku, segir „Lögberg" frá 29. f. m., og ætlar að setjast að vestur á Kyrrahafsströnd. Kona hans og börn eru þó enn í Edinborg, dóttir hans við nám á lista- skóla, en sonur hans stundar lækn- inganám, og segir blaðið að þau Ijúki námi eftir 2 ár og muni þá fara vestur til föður síns. Sveinbjörn fór í fyrra þarna vestur að hafinu sem snöggvast og leist þar mjög vel á sig. Vilhjálmur Stefónsson landkönn- unarmaður, sem nýlega hefur verið sagt frá hjer í blaðinu, er nú á heim- leið norðan úr heimskautslöndunum, segir Lögb. frá 29. f. m. Hann er þá kominn til Nome f Alaska. Fjalla-Eyvindur Jóhanns Sigur- jónssonar er nú aftur leikinn á Dag- marleikhúsinu í Khöfn og fær enn mikið lof í dönskum blöðum. Blaðið „Riget" segir, að því aðeins geti leikhúsin framvegis kept við hina smærri skemtistaði og kvikmynda- leikhúsin, að þau hafi slíka leiki að bjóða, sem mikið sje í spunnið. Einnig á nú að fara að sýna „Fjalla- Eyvind" f Stokkhólmi. Ekki frá Ólafsdal. Prentvilla var það í siðasta tbl„ er sagt var, að seinni kona síra Jóh. L Sveinbjörns- sonar sál. á Hólmum væri frá Ólafs- dal; átti að vera: Guðrún Torfadóttir frá Flateyri. Ferð um Borgarflörð. Undir greininni með þessari fyrirsögn f sfð- asta tbl. átti að standa: G. Hjaltason. Brúkuð íslensk Frímerki kaupir háu verði Sigurður Jónsson, Lindargötu 1 B, Reykjavík. Ilafraliey verður selt í Gróðrar- stöðinni á morgun kl. 5 síðd. Jaríarför sonar mins eiskulegs, Þórðar Eyj- ólfssonar, fer fram frá heimili minu, Framnes- veg 4, fimtudaginn 9. þ. m. kl. II1/* Guðný Þórðardóttir. L. F. K. R. Sökum þess að breyting verður á fyrirkomulagi bókasafnsins, eru fje- lagskonur beðnar að skila þeim bók- um, er þær hafa að láni, næsta út- lánsdag, mánud. 23. þ. m. S t j ó r n i n . yiukajunður í ísfjelaginu við Faxaflóa verður haldinn 30. sept. næstk. kl. 6 síðd. í húsi K. F. U. M. Stjórnin. Reykjavík. Grjaldkeramálið. Rjettarhald f því var í dag kl. 2 og skilaði þar verjandi gjaldkerans, Eggert Claessen yfirrjettarmálaflutningsmaður, varnar- skjali sínu. Málið var svo tekið upp til dóms. Hljómleikar. Þá hjelt Haraldur Sigurðsson frá Kallaðarnesi í Báru- búð síðastl. sunnudagskvöld, eins og auglýst var í síðasta tbl. Mjög vel var yfir þeim látið og H. S. þakkað fyrir með dynjandi lófaklappi. Hús- fyllir var, og komust ekki allir að, sem vildu. Ráðherra fer til Khafnar með „Botníu" 27. þ. m. Skrifstofa borgarstjóra er flutt í Kirkjustræti 10. Björn Jónsson. Hann er nú, eins og mörgum er kunnugt, orðinn aum- ingi, bæði andlega og líkamlega, sem enginn kunnugur maður getur ætlast til að fulla ábyrgð beri hvorki á orðum sínum nje gerðum. Það er því lítið drengskaparbragð, að nota þetta skar eins og gert hefur verið í „Magna" nú undanfarið í gjald- keramálinu. Lögr. hefur áður sýnt fram á, nve frámunalega ómannlegar hinar sífeldu og heiptarfullu árásir á gjaldkerann eru meðan hann bíður dómsúrslita, og bent á, að einmitt þær sjeu at- hugaverður vottur þess, að mótstöðu- menn hans treysti ekki málstað sín- um sem best, því ef þeir þættust vissir um úrslitasigur, þá mundu þeir ekki haga sjer eins og þtir gera, Því vitfirringsæði væri það og annað ekki, ef hugsunin skyldi vera sú, að ógna dómaranum með slíkum skriftum. Þessi vísa var skrifuð á „Ingólf" á lestrarsal þingsins í sumar: „Eg er að lesa hann „Ingólf" minn. Hann er að narta’ í „bræðinginn", úr öllum flokkum útrekinn ólánstusku-garmurinn ". Öfugmæli. Nú í bænum byrja þeir blað, sem verður landsins sómi, valinkunnir vinir tveir: ^ | vitri Björn og-------frómi.

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.