Norðurland - 01.07.1916, Blaðsíða 1
NORÐURLAN D.
31. blað. j
Ritstjóri og útgefandi: JÓN STEFÁNSSON.
Akureyri 1. júlí 1916.
XVI árg.
Vefnaðarvöruverzlun
GUDM. EFTERFL.
Nýjar vörur
með'hverju skipi,
sem eru valdar jaf trúnaðarmönnum verzl-
unarinnar í stærstu verksmiðjum Norður-
álfunnar.
Stærst úrval. Lægst verð.
Sápubúðin
á ODDEYRI.
Munið að þær vörur sem Sápubúðin
verzlar með eru ódýrari þar en jafngóðar
vörur í öðrum búðum.
BÆKUR & RITFÖNG
kaupa menn ávalt ódýrast I bókaverzlun
Kr. Guðmundssonar,
Oddeyri.
Útlendar bækur, tímarit og blöð útveguð.
FLJOT AFOREIÐSLA.
Tóbaksverzlun
jOH. RAGUELSSON-,
VINDLAR—Havana—Brazil
—Sumatra—Java og Manilla.
Vindlingar (Cigarillos & Cigaretter).
REYKTÓBAK frá Englandi, Hol-
landi, Noregi og Danmörku.
VkJNDUÐ VARA. SANNGJARNT VERÐ.
0 r s m i ð j a
Kristjáns Halldórssonar,
Hafnarstræti 35, Akureyri.
Qullstáz, úr, keðjur o. fl.
Aðgerðir á úrum og klukkum leystar
fljótt og vel af hendi,
Bezta 'J'---^------J----Ð er ^
Horniman.
Biðjið því kaupmann yðar ætíð um það.
Einkasalar til íslands:
Carl Sœmundsen & Co.
Reykjavik — Akureyri.
Síldvinnukvittanabffikur, J
Síldvinnubækur, |
Vinnuskýrslur, •
Síldskýrslur, ^
Vinnubækur, •
fást í prentsmiðju
Odds Björnssonar.
K^benhavns Mársan’nefabrik
framleiðir hið vandaðasta smérlíki sem
unt er að fá, notar aðeins hreint og
óskemt efni, og litar alls ekki marga-
rfnið, en selur það hvítt eins og á-
sauðasmér, svo allir geti fullvissað sig
um að engu misjöfnu sé blandað í það.
Margarfnið fæst í 1 og 2 punda skök-
um, 5 og 10 punda öskjum og stærri
óunkum og er þrátt fyrir gæði sín hið
ddýrasta smérlíki sem flutt er til lands-
ins, enda fer neyzla þess vaxandi ár
frá ári. Areiðanlegir kaupendur fá lang-
an gjaldfrest. Pantanir sendist annað-
hvort beint til verksmiðjunnar, Bro-
læggerstræde 9 Köbenhavn, eða Jóns
Stefáns' »nar Akureyri.
Yiðskiftin við Bieta.
Margar sögur hafa farið síðustu vikurnar af samningum þeim sem væri
verið að reyna að gera við Bretastjórn um sölu á íslenzkum afurðum
fyrir hönd íslendinga. Nú er þeim lokið og þykir »NorðurI.« vænt um
að geta í þeim efnum satt forvitni lesenda sinna.
Fyrst er þar til að taka að konungur vor hefir gefið út svolátandi:
Bráðabirgðalög
um heimild handa landsstjórninni til tryggingar aðflutningum til landsins.
Vér Christian hinn X. o. s. frv. gerum kunnugt: Stjórnarráð vort
fyrir ísland hefir þegnsamlegast tjáð oss, að nauðsynlegt sé nú þegar að gera
ýmsar ráðstafanir til þess að innflutningur varnings til íslands frá Bretlandi
heftist eigi með öllu og verðum vér því að telja brýna nauðsyn til þess að
gefa út bráðabirgðalög samkv. II. gr. stjórnarskrárinnai um heimild handa
landsstjórninni til ráðstafana til tryggingar aðflutningum til landsins. Þvf bjóð-
um vér svo og skipum:
1. gr. Ráðherra íslands veitist heimild til að setja með reglugerð eða reglu-
gerðum þau ákvæði um verzlun og siglingar til og frá landinu er nauðsynleg
þykja til þess að tryggja aðflutninga til þess. í reglugerðinni má ákveða sekt-
ir fyrir brot á henni og meðferð mála út af brotum gegn henni.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Eftir þessu eiga allir hlutaðeigendur að hegða sér.
Gefið á Sorgenfrihöll 24. maí 1916
Reglugerðin.
sjálf er gefin út mánuði síðar af Stjórnarráðinu í Reykjavík (24. júnf)
undirrituð af landritara í fjarveru ráðherra og hljóðar svo:
/. gr. Bannað er að flytja út frá íslandi hverskonar farm eða farmhluta á
öðrum skipum en þeim er á ferð sinni til ákvörðunarstaðarins koma við í
brezkri höfn. Þetta gildir þó eigi um skip er hjeðan fara beint til Ameríku
með farm eða farmhluta eí ræðismaður Breta hér veitir samþykki sitt til þess.
2. gr Áður en skipa megi farmi eða farmhluta, er í I. gr. segir, út í skip
héðan til útlanda skal skipstjóri undirrita og afhenda lögreglustjóra eða um-
boðsmanni hans, skuldbindingu um viðkomu í brezkri höfn, sem I I. gr. að
ofan er fyrir mælt.
3. gr. Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða sektum alt að 10
þús. kr. Bæði sá, er út lætur flytja, og skipstjóri, án þess að ákvæðum 2. gr.
sé fullnægt, skal sekur talinn við ákvæði 2. gr. Skipstjóri, er brýtur án al-
ment óviðráðanlegra atvika skuldbindingu gefna samkv. 2. gr., skal sæta sömu
sektum. Skip og farmur er að veði fyrir sektunum.
4. gr. Sá er byrjar að skipa út, án þess að slík skuldbinding sé géfin, sem
í 2. gr. segir, skal sæta sektum frá 200—10000 kr. og telzt bæði sá, er út
lætur skipa og skipstjóri sekur um þetta brot. Skipstjóri, sem án alment ó-
viðráðanlegra atvika brýtur skuldbinding sína, er hann gefur samkv. 2. gr.,
skal sæta sektum frá 10,000—100,000 kr. Þá er ákveðin skal sektin, skal
taka hliðsjón til verðmætis þess, sem flytja skal eða flutt er ( skipi.
5. gr. Með mál út af brotum gegn reglugerð þessari skal fara sem almenn
lögreglumál. Áður en dómari úrskurði sektina, án þess að mál fari undir
dóm, skal málið borið undir stjórnarráðið.
6. gr. Reglugerð þessi öðlast gildi þegar í stað.
Þá' koma nánari sérstök ákvæði, um verðíag á íslenzkum afurðum og
ýmislegt annað er að þessu lýtur, og hefir stjórnarráðið sent þau öllum
sýslumönnum á landinu. Þau hljóða svo:
Brezka stjórnin hefir gefið til kynna að hún hafi ákveðið að koma f veg
fyrir innflutning allra fiskiafurða, síldar, ullar, skinna og kjöts frá íslandi til
þeirra hlutlausra landa, er liggja að Eystrasalti og Norðursjónum. Þó verður
leyfður innflutningur íslenzkra afurða að því leyti sem sýnt er að þær þurfi
þar til heimaneizlu. Þær ofanskráðar íslenzkar afurðir sem eigi verður mark-
aður fyrir í hlutlausum löndum, öðrum en þeim sem að ofan greinir, eða lönd-
um bandamanna Stórabretlands, ætlar brezka stjórnin að kaupa, ef seljendur
hér vilja, frítt um borð (fob) hér, fyrir milligöngu umboðsmanna sinna hér
fyrir ákveðið verð er fyrst um sinn gildir um afurðir framleiddar á þessu ári.
Hver sem selja vill einhverja ofannefnda vöru á að tilkynna það brezka ræð-
ismanninum hér eða umboðsmönnum hans eða sérstökum umboðsmönnum
brezku stjórnarinnar hér og segja þeir til að 14 dögum liðnum frá þeim degi,
Framhald efst á 3. síðu.
OsíuR
af mörgum tegundum
nýkominn
í verzlur)
Sig. Sigurðssonar.
ÝMISLEGT
niðuisoðið
fiskmeti
er nýkomið
í verzlun
Sig. Sigurðssonar.
Jarpur hestui
fimm vetra gamall er til sölu hjá und-
irrituðum nú þegar. Verður til sýnis
á Akureyri við »Caroline Rest« um
hádegi næstkomandi laugardag, 8.
júlí.
Stórhamri 1. júlí 1916.
)ónas Jónasson.
Gullarmband
tapaðist í morgun á leiðinni frá s/s
wísland" (Torfunefsbryggju) að Lækj-
argötu 2. — Ráðvandur finnandi er
beðinn að skila þangað gegn fund-
arlaunum.
Síldarolíuverksmiðjan
ÆGIR
í KROSSANESI
kaupir hrein, óskemd og góð
STEINOLÍUFÖT
hœsfa verði
og ættu pví allir sem eiga ó-
seld steinolíuföt að snúa sér
þangað. Þeir sem ekki eiga leið
fram hjá verksmiðjunni, geta
samið um söluna í talsíma frá
Akureyri og afhent svo fötin
eftir pví sem um semur. Kaup-
menn ínærliggjandi verzlunarstöð-
um ættu að grenslast um verðiði