Óðinn - 01.05.1908, Blaðsíða 4

Óðinn - 01.05.1908, Blaðsíða 4
12 ÓÐINN ins hjer, en það er stofnað 1894 og hefur unnið að ýmsum þarflegum málum, fyrst stofnun há- skólasjóðsins, er flýta skyldi fyrir því, að upp kæmist háskóli hjer á landi, og á að verða tif styrktar ísl. konum við háskólanám; þar næst stofnun sjúkrasjóðs, er fjelagið hefur nú gefið land- inu til styrktar sjúklingum, sem hingað leita á spítala, og var sá sjóður, er fjelagið gaf hann, yfir hálft fjórða þús. kr. Loks hefur það stofnað Styrktarsjóð handa kvenfólki, sem bágt á með að vinna fyrir sjer, en vill verjast því að fara á sveit- ina, og er sá sjóður nú rúm 2000 kr. Auk þessa hefur fjelagið stutt ýms fyrirtæki. T. d. gaf það nýlega 400 kr. lil Berklaveikishælisins fyrir- hugaða. Fyrir síðasta þing komu frá fjelaginu á- skoranir um aukin kvenrjettindi, með um 12 þús. nöfnum undir. Einnig hefur frú Katrín verið í stjórn Thor- valdsensfjelagsins nokkur undanfarin ár, og í stjórn kvennaskólans hefur hún verið síðan 1896. Frú Pórunn Jánassen er dóttir Pjeturs amt- manns Hafsteins og hálfsystir Hannesar ráðherra Hafsteins. Hún er fædd á Ketilsstöðum á Völl- um árið 1850, og var faðir hennar þá sýslumaður þar eystra, en varð litlu síðar amtmaður og flutti þá til Akureyrar. I3ar ólst frú Jónassen upp lil fermingar, en var síðan nokkur ár í Khöfn við nám, meðal annars á Frk.-Zahles-skóla. Þaðan kom hún til Rvíkur og giftist hjer 1871 dr. med. J. Jónassen, síðar landlækni. Þau eiga eina dótt- ur, Soffíu, gifta E. Claessen yfirrjettarmálafærslu- manni. Frú Jónassen er forstöðukona Tliorvaldsens- fjelagsins, hefir verið það frá byrjun þess og mikið fyrir það starfað, en það var stofnað 1874. Það liefur komið upp þvottahúsinu við Laugarnar, sem var mjög þarft verk, og síðar »Bazarnum« til út- sölu á íslenskri handavinnu, er líka hefur reynst hið besta fyrirtæki, og hefur salan þar gengið mætavel. Auk þessa hefur það haft með hönd- um ýms líknarfyrirtæki. Fyrir tveimur árum tók það að safna fje í sjóð til uppeldisstofnunar handa börnum. »Óðinn« hefur áður flutt mynd af frú Jónas- sen, í 8. tbl. II. árg., og má hjer vísa til þess, senr þar segir. FrúBríet Bjarnhjeðinsdóttir er fædd 27. sept. 1856 á Haukagili í Vatnsdal. Bjuggu foreldrar hennar síðar á Gilá í Vatnsdal og eftir það á Böðvars- hólum í Vesturhópi. Föður sinn misti hún rjett fyrir 1880, og fór þá til síra Arnljóts á Bægisá, frænda síns, og var þar 2 ár, en síðan á kvenna- skólanum á Laugalandi. Veturinn 1884—5 var hún í Revkjavík, en flutti hingað síðan alkomin liaustið 1887 og flutti hjer þá í desember fyrir- lestur um kvenrjettindi, sem síðan var gefinn út. En fyrstu grein sína um kvenrjettindi skrifaði hún í »Fjallkonuna« haustið 1885 með dulnefni undir. 14. sept. 1888 giftist hún Valdimar Ásmundar- syni ritstjóra »Fjallk.« (d. 1902). Þau áttu 2 börn, stúlku og dreng, og eru þau nú bæði í hin- um almenna mentaskóla. Frú Bríet stofnaði »Kvennablaðið« 1895 og hefur það komið út síðan. Barnablað gaf hún út um tíma í samhandi við það. Hún ritar ljóst og liðlega og liefur »Kvbl.« flutt ýmsar góðar hug- vekjur. Hún var á alþjóða-kvenrjettindafundin- um í Kaupmannahöfn 1906. Áður liafði lnin ferðast um Svíþjóð og Noreg. Frú Bríet er forstöðukona »Kvenrjettindafje- lagsins«, sem stofnað var hjer i fyrra vetur og eingöngu átti að vinna að því, að auka stjórn- málarjettindi kvenna. En töluverð sundrung er nú Frú Bríet Bjarnhjeðinsdóltir.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.