Óðinn - 01.07.1908, Blaðsíða 8

Óðinn - 01.07.1908, Blaðsíða 8
32 ÓÐI NN Embættismenn stórstúku íslands. Stórstúkuþing Templara hjer á landi eru haldin annaðhvort ár. Hið síðasta var haldið á Akureyri í fyrra sumar. Það var 12. stórstúku- þingið. Þá voru þeir emhættismenn kosnir til næsta þings, sem hjer eru myndir af. Templarreglan hefur nú lifað nær fjórðung aldar hjer á landi og er tjölmennasti fjelagsskap- urinn, sem hjer er til, og án efa það fjelag sem unnið hefur mest og almennast gagn í landinu síðan það komst á fót. Eftir síðustu skýrslum eru í fjelaginu nær 7 þúsundir manna, ungra og gamalla. Nú eru áhrif þessa fjelagsskapar orðin svo mikil, að við næstu þingkosningar á að ganga til atkvæða um það um alt land, hvort banna skuli með lögum aðflutning áfengis í landið. Þetta er gert samkvæmt ákvæði alþingis 1905 og var það ætlun þess, að aðflutningsbann skyldi lög- leitt, ef inikill meiri hluti landsmanna æskti þess. Til frekari skýringar myndinni skal þetta tekið fram: Sveinn Jónsson er trjesmíðameistari í Rvík og hefur »Óðinn« áður flutt mynd af honum með öðrum stjórnendum Yölundar hjer (í 12. tbl. II. árg.). Hann er gjaldkeri stórstúkunnar. Rorgþór Jósefsson er stórritari. Hann er nýkosinn hæjar- gjaldkeri hjer í Rvík. — G. Þorbjarnarson er bóndi á Hvoli í Mýrdal og hefur áður verið mynd af honum hjer í hlaðinu (í 1. tbl. III. árg.). — P. Zóphóníasson er ritari í Landsbankanum og hefur nokkur hin síðasll. ár verið ritstjóri blaðs stórstúkunnar, »Templars«. — Jón Árnason er prentari í Gutenberg. Hann er yfirmaður ungmenna- reglunnar hjer á landi. — D. Östlund er prent- smiðjueigandi og útgefandi heimilisblaðsins »Fræ- korna«. Hann er nýkominn heim af liástúkuþingi í Wasliington í Bandaríkjunum og A7ar þar full- trúi stórstúku íslands. — Kristín Sveinsdóttir er kona Hjálmars Jónssonar kaupmanns í Stykkis- hólmi. — Anna Thoroddsen er kona Þ. J. Thor- oddsens gjaldkera íslandsbanka, sem nú er stór- templar, eða yfirmaður Reglunnar hjer á landi, og hefur verið það nokkur undanfarin ár. — Halldór Jónsson er gjaldkeri Landsbankans; hann er stór- kanslari. — Guðrún Hermannsdóttir er kona síra Eggerts Pálssonar alþm. á Breiðabólsstað.— Bjarni Pjetursson er verslunarmaður á Þingeyri við Dýra- fjörð. — Helgi Helgasson er verslunarstjórií Reykja- vík. — Indriði Einarsson leikskáld og endurskoð- ari var stórtemplar á undan Þ. J. Th. Af honum hefur áður verið mynd hjer í blaðinu (i 10. tbl. III. árg.). í framkvæmdarnefnd stórstúkunnar, sem hefur stjórn fjelagsmálanna á hendi milli þinga, eru: Þ. J. Thoroddsen, frú Anna Thoroddsen, Halld. Jónsson, I. Einarsson, Jón Árnason, P. Zóphóníasson, Borg- þór Jósefsson, Sv. Jónsson og D. Östlund. Fram- kvæmdarnefndin hefur frá í fyrra haft skrifstofu hjer, sem er opin á vissum tímum daglega. Matthias Jochumsson. Du sterke havörn med dei breide vengjer . . . med evig ungdom under alders ham, du gver heimsens tankeliimmel sprengjer, du gjenom mange tider ror deg fram; vidt ser ditt auga ut til alle leider, kulturens stjernehraut seg fyr deg breider. Rik som ein vaar um tande dilt du Igser, du er ei kjempa paa ei kempegrav, der Hekla glöder, og der Gegsir ggser i sogulande langt der vest i hav. Ljos er di tru, og frigjord er din ande, og fagert Igder rögsti di um lande. Din song igjenom hus og ligtla leikar og lweikjer folke ditt til lífsens mod. Din salm so sœll mot himmelfader peikar, og trögsti stig um hjarlo som ei ftod. Kulturens hröd med folke ditt du deilar, med kristendom du hjartesaare heilar. Naar soli ned i vesterliave glader, eg tgkkjer at lio slœr um deg sin krans. Eg helsar deg med vgrdnad som ein fader der liögt i Igftingi du steiul i glans! Og gamli Norig det er med aa sende ei liugvarm helsing til vaar slore frende ! Anders Hovden. Prentsmiðjan Gutenberg

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.