Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 19

Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 19
Ó Ð I N N 19 frá mjer einhverjum fátækum leikmanni í hreppi yðar, sem vill fá þekkingu á Guði af verkum hans, því að þar til er hún flestum bókum beíur fallin á vora tungu og yfir höfuð mikið snildarverk, að dómi ágætra lær- dómsmanna, sem mig, er ekki hef verið til menta settur, langar til að styðja að, að útbreiðist meðal alþýðu, henni bæði til fróðleiks og guðrækilegrar upp- byggingar*. I Reykjavík vann Páll bæði hjá Lúðvík Alexíussyni, föður Lárusar skósmiðs, og Eiríki í Grjóta. Var hann þá stundum við vegabætur að sumrinu, en við sjó- róðra á veturna. Þá skrifa þeir Guðmundur í Elliða- koti og Þorlákur í Fífuhvammi opinberlega í blöð um vegalagningar, að undirlagi Páls, og verður það til þess, að landsstjórnin fær hingað upp norskan mann (Hovdenak), til að mæla fyrir vegum og kenna mönn- um vegalagning. Kom hann til Seyðisfjarðar, og rjeðst Páll til hans og vann með honum tvö sumur. Þá ákvað hann að brjótast til Noregs, til þess að verða færari í þessu starfi, og hjet Einar sýslumaður Thorlacius honum 300 kr. styrk til fararinnar. En vegna þröngsýni amtsráðsins varð Páll að endurgreiða þær krónur síðar. Páll var nú þrjú ár í Noregi við vegagerð. Kyntist hann þá presti einum heittrúuðum, Benner að nafni, og varð fyrir djúptækum áhrifum af honum, og jafn- vel trúarlegu afturhvarfi, að eigin sögn. Þá sá hann og eitt sinn við kirkju stúlku nokkra. Eigi töluðust þau við, og ekki vissi hann nafn hennar. En þau horfðust örstund í augu, og voru þá ráðin örlög hans, því hann hjet að ganga að eiga þessa stúlku eða enga aðra. Og því heiti hefur hann verið trúr. — Hjer má þess geta, að síðan fór hann tvær ferðir til Noregs um aldamótin. Þegar Páll kom úr Noregs-förinni fyrstu, var hann eitt ár hjá Einari sýslumanni Thorlacius, en að því lokr.u rjeðist hann í þjónustu landsins, sem verkstjóri. En er hann kom til Seyðisfjarðar úr síðari siglingu, 1901, og beið skipsferðar til Reykjavíkur, gerðist þessi saga. Páli barst til eyrna, að uppi í ]ökulsárhlíð stæði svo á, að þar væri komið efni til brúar einnar, en vantaði mann til að sjá um brúarsmíðina. Fór þá Páll þangað og kom á brúnni, en er gerð voru reiknings- skil, setti hann upp kr. 0,50 — fimmtíu aura —, er hann hafði greitt fyrir ferju eða greiða. Annars kvaðst hann »engu hafa slökt niður við ferðina«, og taldi því ekki eftir sjer ómakið. Mundi þetta ekki næsta einstakt dæmi um ósjerplægni og fórnfýsi? En mörg slík hafa gerst í æfi þessa manns. í 10 — 11 ár er Páll ráðinn verkstjóri af Magnúsi landshöfðingja Stephensen fyrir landsins hönd, og vann hann þá fyrir Reykjavíkurbæ að vetrinum. Síðan af- salaði hann sjer því starfi, og hefði þó gjarnan getað haldið því, þar eð reglusemi hans og ráðvendni og trúmenska var algerlega einstök. Þá voru nokkur erfiðleikaár í búskaparlegu tilliíi og virtist Páli landbúnaðurinn þurfa einna mest manna við, og ákveður að ganga í vinnumensku, þótt honum þyki vinnutíminn í sveit- inni helst til iang- ur og óreglulegur. Fyrir áeggjan syst- ur sinnar ræðst hann í visttilBjörns bónda Bjarnason- ar á Brekku íBisk- upstungum, og var rneð honum tvö ár. Sóknarprestur hans var sjera Magnús Helgason á Torfastöðum, og tókst með þeim aldavinátta, er helst fram á þenna dag. Hefur sjera Magnús Helgason átt trúnað Páls allan, og hefur nú ákveðið að láta sumt af brjefum Páls og ritgerðum í Landsskjala- safnið, svo að það varðveitist frá glötun. Hann er og heimildarmaður minn að þessari grein öðrum þræði, en Páll sjálfur að hinum. Svo segir sjera Magnús, að aldrei hafi Páli fallið verk úr hendi hinn venjulega vinnutíma á Brekku, »tók prjónana sína, ef ekki var annað; en eftir þann tíma las hann eða skrifaði, ef ekkert kallaði að«. Og enn segir hann: »Okkur sveitungunum kom hann í góðar þarfir: Áhugi var að vakna á vegabótum, fyrsti vagninn þegar keyptur til ofaníburðar og ráðið að setja dragferju á Hvítá hjá Iðu. Páll stýrði því. A vetrum kendi Páll börnum lestur og reikning, og hafði þau með sjer til kirkju hvert sinn, er messað var. — En Páll var ekki lengi á Brekku. — Haustið 1903 vildi það hörmulega slys til, að Runólfur bóndi á Iðu druknaði í Hvítá, frá konu og 4 börnum ung- um. Þau hjón voru nýkomin þangað austan úr Skafta- fellssýslu. Efni voru lítil og ekki annars kostur en að ekkjan yrði að flytjast aftur austur á sína sveit, nema einhver maður fengist til bús með henni. Var nú leitað til nokkurra, en allir neituðu; þótti ráðið ekki Páll Jónsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.