Reykjavík - 28.09.1900, Blaðsíða 2

Reykjavík - 28.09.1900, Blaðsíða 2
66 l^r tíocniim. Bæjarstjórnarfundiri 20. Sept. 1900 1. Önnur umr. um fjárhagsáætl- un kaupstaðarins. Frumvarpið samþ. með þessum breytingum: Gjaldl. II, 1, c (sótaralaun) hækk- uð úr 800 kr. upp í 1000 kr., samkv. uppástungu brunamálanefndar, að skipaðir verði eftirleiðis 2 sótarar, hvor fyrir sitt umdæmi í bænum. Gjaldal. II, 12, óvænt og óviss útgjöld hækkuð úr 1500 kr. upp í 2500 kr. með tilliti til væntanlegr- ar kortgerðar yfir bæinn. Gjaldal. IV, 2, a. til áhaida barnaskólans, liækkaður úr 200 kr. upp í 600 kr. 2. Lesið upp erindi frá hóraðs- lækninum, þar sem hann skorar á bæjarfógeta að sjá um að barna- skólahaldinu verði frestað fyrst um sinn sakir skarlatssóttarinnar, og óskaði .bæjarfógeti að heyra álit bæjarstjórnarinnar um inálið. Bæj- arstjórnin fólst á að ráðlegast væri að fara eftir tillögum héraðslækn- isins og fresta skólahaldinu nú fyrst um sinn til 1. Nóv. þ. á. 3. Komu til úrskurðar athuga- semdir endurskoðenda bæjarreikn- ingsins við reikninginn 1899 og voru lesnar upp athugasemdirnar, svör bæjargjaldkórans og tillögur fjárhagsnefndar og endurskoðenda um úrskurði. Bæjarstjórnin samþ. úrskurðartillögurnar. 4. Eftir fram farna skoðuri á stöðunum veitti bæjarstjórnin þess- um mönnum erfðafestu útmæling- ar: þorsteini Tómassyni, Einari Finnssyni, Sturlu Jónssyni og Helga Zoéga. Einnig var Birni Guðmunds- syni, Þorsteini Guðmundssyni og Jes Zimsen leigður malarkambur- inn fyrir innan Stúlkuklett til fisk- verkunar í 30 ár fyrir 20 kr. gjald á ári og með þeim kvöðum, að bærinn megi án uppbótar láta gera „Beding*- þar og Laugarriesbónda og spítalanum só frjálst að nota væntanlega bryggju þar til lending- ar. Alt var þetta veitt með því skilyrði að bæjarstjórninni sé heim- ilt að leggja endurgjaldslaust vegi yfir útmælingarnar, ef til kemur. 5. Beiðni um eifðafestu-útmæl- ingu á molunum frá cand. polit. Sigurði Péturssyni frestað til skoð- unar á staðnum næsta Laugardag, kl. 8 árd. 6. Ámundi Ámundason sælrir um lausn frá fátækrafulltrúastarfi. Samþ. að veita lausnina en beðið eftir tillöga fátækranefndar áður en nýr fulltrúi er kosinn. 7. Brunabótavirðingar samþ.: a. Geymsluhús Sturlu .Tónssonar á lóð sinni við Laugaveg, kr. 3920,00. b. Hús Guðna Eyjólfssoriar við framnesveg, kr. 2498,00. 8. Beiðni frá Magnúsi Sigurðs- syni um 10 dagsl. á erfðafestu í Fossvogi gegn vörzluskyldu þar m. m. vísað til veganefndar til álita. 9. Beiðni um aðgerð á Fram- nesvegi og vegagerð í Bráðræðis- holti, vísað til veganefndar, þegar hún gerir tillögur um vegabætur næsta ár. 10. Sömuleiðis beiðni frá búend- um við Klapparstíg um vegabót og rennur. 11. Brunabóta virðingamenn kosn - ir fyrir næsta ár: Björn Guð- mundsson og Magnús Árnason. Allir á fundi nema Sigurður Thoroddsen. Ferðamenn: Ólafur Guðmunds- son læknir frá Stórólfshvoli með frú sinni, séra Ólafur Helgason Stóra-Hrauni með frú sinni, séra Ólafur Ólafsson frá Lundi með írú sinni, Þórður lælcnir Edilonsson og frú hans, sýslumaður Magnús Jóns- son Vestmannaeyjura, Þorsteinn Magnusson bóndi á Húsafelli, Síin- on Jónsson Selfossi, Jón Gunnars- son verzlunarstjóri Borgarnosi o. fl. Með „Vesta “ komu: Björn M. Ólsen rektor, Morten Hansen skóla- stjóri, Sigurður Sigurðsson kennari Mýrarhúsum o. fl. Með „Yesta" fóru í gær: Björn kaupm. Kristjánsson (til Englands) og dóttir hans frk. Jóna Valgerð- ur (til Hafnar), frú Ágústa Thom- sen konsúls, frú Adeline Rútter- haus Bjarnason, Elías Ólsen og frú hans, Filippsen, Karl Finsen verzl- unarmaður og Kristinn Magnússon skipstjóri (til Englands). Á þiðjudaginn var gaf prófastur saman í hjónaband cand. theol. Jónmund Halldórsson og fröken Guðrúnu Jónsdóttur frá Uppkot.i í Kjós. Á miðvikudaginn gaf prófastur- inn sarnan í hjónaband tannlækn- ir Yilhelm Bernhöft og fröken Krist- ínu Johnsen. Skipalisti. 29. Aug.: „Surprise" (55 smál., skipstj. Oestmann, til Björns Krist- jánssonar. 4. Sept.: „ísafold" (193, Jensen), til Brydes verzl. 6.: „August“ (77, Dreiee). 7.: „Bagn- heiður“ (72, N. E. Bönnelykke), til verzl. „Nýhöín“. 14.: „Cimbria" (117, S. Jörgensen). S. d.: „Alf“ (197, L. Iversen), útgerð Ellefsens. 23.: „ Vesta“ (688, Ilolm). 24. „Cimbria". 25.: „Yendsyssel" (148, H. F. Kjær), útgerð Gufuskipafé- lagsins. 26.: „Yiolet May“ (48, G. Kristjánsson), til Helga Bjarnason- ar o. fl., keypt til fiskiveiða. Hún: „Trúðu mér kæri vinur, það mun verða mitt mesta yndi, að taka þátt. í sorgum þínum og gleði." Hann: „En ég hefi engar sorgir.“ Hún: „En þær munuð þór fá þegar við erum gift.“ Frú P.: „Hugsaðu þér nú kæri maður minn, að við bæði værum stödd alein í eyðimörk ; hvað mund- irðu þá fyrst af öllu gjöra?“ Herra P.: „Reyna að komast burtu“. Dómarinn (við léttúðugan ná- unga): „Mig minnir að ég hafl séð yður áður“. Hinn ákœrði: „Yður minnir alveg rétt; við erum báðir stúdentar og höfum oftsinnis verið saman uin að brjóta nokkr- ar tilftir af rúðum hjá náungan- um“. í Plymouth býr stúlka, sem ekki heflr látið nokkurn karlmann sjá sig í 20 ár. Nú mætti ætla að henni væri óbætt að láta karl- mennina sjá sig: I5að má skjalla hvern og einn með því að segja honum, að hann sé rnaður sem ekki láti skjalla sig. Hann: „Fyrst þú endiloga vilt fá að vita það, þá gifti jeg mig með þér vegna peninganna“: Hún: „Ég vildi óska að ég gæti sagt hversvegna ég giftist þér.“ Sofi, borð, rúmstœði o. fl. er til böIu. Ritstj. vísar á. Íljá ^DalRoff cjullsmié, 4 Ingðlfsstræti 4, fæst, smíðað allskonar GULL- og SILFURSTÁSS. T r ú 1 o f u n a r - liringir smíðaðir fljótt og- vel. „Roykjavík" heflr langmesta út- breiðslu í öllum ' kauptúnum á landinu.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.