Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 25.01.1907, Blaðsíða 1

Reykjavík - 25.01.1907, Blaðsíða 1
r 1R e 2 kí & víh. Ið löggilta blað til stj órnarvalda-birtinga á Útbreiddasta blað landsins. Upplag yfir 3000. Föstudag 25. Janúar 1907. Áskiifendur í b æ n u m yfir 1000. ALT FÆST 1 THOHSENS MAGASlHl, Ofna Og elílayélffcl* selur Kristján Þorgrtmssoo. Ofiiar oS eldavélar >o OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOc V erzlnnin Edinborg. Karlmannsfatnaðardeildin. Enn þá fengnm við íleiri tilbúna karlmanna- fatnaði sams k'onar og við seldum svo mikið af um daginn. Verðið er þó heldur meir kaupandanum í vil en áður. Drengjaföt af öllum stærðum, sem við selj- um mjög ódýrt til Nýjárs. í vefnaðarvörudeildina nýkomið mikið af inum eftirsótta striga. 35 pr. alin í pökkum. >000000000000000000000000 oooooooooooc „REYKJAVÍK" Arg. [60—70 tbl.] kostar innanlands 2 kr.; erlendis kr. 3,00—3 sh.— 1 doll. Borgist fyrir 1. Júlí. Auglýsingar inníendar: á 1. bls. kr. 1,50; á 2. 3. og 4. bls. 1,25 — Útl. augl. 33,/*°/o hærra. — Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst. Útgef.: Hlutafélagið „Reykjavík“. Ritstjóri, afgreiðslumaður og gjaldkeri: Jón 01a.f«Ron. Afgreiðsla Laufásvegi 5, kjallaranura. Ritstjórn: ---„ stofunni. Telefónar i 29 ritstjóri og afgreiðsla, 71 prentsmiðjan. Þar sprakk blaðran. Vandlega vöruðust þeir eins og heitan eldinn að svara því bandamennirnir: Landvarnarmenn og Þjóðræðismennirn- ir sálugu, hvað œtti að Jcoma í staðinn — fyrir uppburð mála vorra fyrir kon- ungi í ríkisráði. Það var óskiljanleg tregða, sem þeir sýndu í því efni. En nú fara menn að skilja það. f>að er nú komið upp úr dúrnum, að flokkurinn hór er sem stendur höfuð- laus her, því að foringi hans, sendill- inn Einar (Ben.) er suður í Kaup- mannahöfn í þeirra erindum, til að skýra þau málefni flokksins fyrir Dön- um, og hefir því ekki haft tóm til að skýra þau fyrir Islendingum. ■ Vér hér heima verðum að láta oss nægja vísdómsmola þá sem af borðum hrjóta, þegar hann er að „bera á borð“ fyrir Dani. En hann hefir borið Dönum svo „kúfaðan, skekinn og fleytifullan" mæli vizku sinnar, að vér fáum fullnægju vora af svari hans líka. í grein hér á öðrum stað í blaðinu („fsl. f útl. biöðum“) skýrum vér ítar- lega frá ummælum landvarnar-foring- jans, höfum þýtt þau mestöll orðrétt, til leiðbeiningar öllum lýð. Margt er það í þvi er foringinn segir, eem ýmsum mun virðast nýstárlegt. Landvarnarmenn —. ja, undir þann flokk virðast nú allir stjórnfjendur hér á landi hafa játast. Hr. Einar Hjör- leifsson, sem var ritstjóri þjóðrœðis- blaðsins „Fj.konunnar“, lýsti yflr því, er hann kvaddi lesendur sína í síðasta tbl. síðasta árgangs, að blaðið héldi „óbreyttri stefnu“, og í næstu viku lýsti nýi ritstjórinn yflr því, að blaðið yrði „eindregið landvarnarblað". Þetta lýsir því, eins og annars öll framkoma blaða þjóðræðisflokksins sáluga, að þjóðræðismerm sé nú allir gengnir inn í Land^Éirnarflokkinn. Skúli er þannig afsettur sem foringi, en Einar Ben. orðinn foringi í hans stað — foringi ins nýja, uppyngda Landvarnarflokks. Nú heflr foringinn talað! Nú þarf enginn í grafgötur að ganga framar um það, Jivað floJcJcurinn vill. Eins og lúsugur hestur, sem er sund- lagður í köldu vatni tii að drepa á sér óværðina, hristir sig þegar hann kemur upp úr til að hrista af sér vatnið og þurka af sér, og veltir sér síðan í moidinni til aðhlýja sér í hamsi, þannig hristir Einar foringi af sér og flokknum allan aðskilnaðargrun og þurkar þá af sér vendilega Ara ritstjóra, Bjarna frá Vogi, Sigurð Guðmundsson, Guðmund Hannesson og aðra aðskilnaðarmenn, og veltir sór flötum í moldinni fyrir Dönum til að verma sig í danskri mold, tjáir Dönum, að Landvarnarflokkurinn þrái um fram alt að íslendingar játi yflr sér „drottinvaid" („Overhnihed") annars lands — „Danmerkur"; því að undir „yflrdrottnun" þess heyri ísland! Menn mega ekki láta það villa sig, þó að þetta sé ekki a.lveg samkvæmt því sem inn fyrri foringi flokksins, Jón Jensson, heflr áður kent, því að Jón er af settur nú forustunni, alveg eins og Skúli í Þjóðræðisflokknum; Landvarnar- flokkurinn er nýr og endurfæddur við samsteypuna við þjóðræðismenn, og Einar er foringi ins nýja Landvarnar- flokks. Þessi nýi flokkur er plokkflskur, soðinn upp úr gamla Landvarnarflokk- numog Þjóðræðisflokknum ;Landvarnar- menn eru fiskurinn, en Þjóðræðismenn kartöflurnar í þeim plokkflski; krydd er þar lítið um — ekkert nema einn fyrverandi Heimastjórnarmaður, ritstj. Þjóðóifs; hann er eina piparkornið, sem á að setja bragð á matinn. Salt er þar ekkert, því að Guðm. Hannesson er útskúfaður.1) * H! * En það sem öllum mun þykja mest um vert, er svar foringjans upp á spurninguna: Hvað á að Jcoma í stað- inn. Svarið er það, að í stað þess, að ráðherra íslands ber nú upp sérmál lands vors fyrir konungi „í ríkisráðinu" þ. e. í viðurvist ríkisráðsins, þá heimt- ar nú Landvarnarflokkurinn landstjóra hér, heizt danskan prinz. Meðan enginn kostur var á, að fá 1) Ari er „umventur“ sjálfsagt, úr því að hann á að verða meðritstjóri Landvarnar- blaðs. stjórnina flutta inn í landið, þá var eðlilegt að menn reyndu landstjóra- leiðina. Landstjóri hér með í-áðgjöf- um, sem mynduðu landsráðið, var stór framför frá ráðgjafa í Höfn, sem cÞ-ri mætti á þingi. Það var þó tii þess að draga alla umboðsstjórnina inn í landið og talsvert af staðfestingarvald- inu; og það var þá eini vegurinn til íyrir oss, að koma hér á þingræði. Nú höfum vér fengið umboðsstjórn- ina inn í landið, og alt staðfestingar- valdið raunar líka, því að þótt konung- ur vor sé í Kaupmannahöfn og ráð- herrann verði að skreppa til fundar við hann, þá efr þó sá maðurinn, sem ábyrgðma ber fyrir staðfesting eða staðfestingarsynjun laga, hér í landi. Það er ráðherrann. Þingræðið er á komið hjá oss, þótt í byrjun sé, og sá íslandsráðherra, sem eigi fylgir þingræðisreglunni hér, verð- ur ekki öfundsverður, og varla gamall. Konungur staðfestir því lög vor eftir tillögum íslandsráðherra, sem ber á- byrgð á þeim. Skyldi konungur (hvort heldur af sjálfsdáðum eða fyrir annara fortölur) neita að fylgja tillögum ís- landsráðherra, þá á ráðherrann tvent til, annaðhvort að taka á sig ábyrgð á neituninni, ef hann álitur tilefni tU, eða segja af sér, og þá verður kon- uugur að fá sér annan ráðherra, sem vill bera ábyrgð á neituninni. A- byrgöin er og verður ávalt Jiér i land- inu. Því má að vísu segja, að í raun réttri sé staðfestingarvaldið hér. En hvernig fer með landstjóra? Hann útnefnir sér ráðgjafa, og sá ráðgjafi ber auðvitað ábyrgð á stjórn- arathöfnum þeim sem ltann er við rið- inn. En svo ætlast Landvarnar-ýor- inginn til, að heill flokkur mála liggi eftir sem áður undir konungs staðfest* ingu. Hver ber ábyrgð á úrslitUm þeirra mála? Ráðgjafl Jandstjórans vitanlega ekki. Hví ekki ? Af því, að ef konungi og ráðgjafa landstjóra ber á milli, ætti afleiðing- in að verða sú, að ráðgjafl landstjóra færi frá völdum. En með því móti yrði það konungur, en ekki landstjóri, sem róði því, hver væri ráðgjafl land- stjóra. En þá sjá allir, að ráðgjafinn á tveimur herrum að þjóna, konungi og landstjóra. Öði-um getur ef til vill samið vel við hann, hinuni ekki. Eða á annar ráðgjafl í Kaupmanna- höfn að rita undir með konungi? Alt kæmi í sama stað, ef hann á aö vera íslenzkur ráðgjafi, en ekki grundvallarlaga-ráðgjafi. Þá éru orðnir tveir tígulkongar í spilinu, og hvor á þá að gilda meira? Þetta verður eilifur tvíveðrungur, og yrði hættulegur þingræðinu. En eigi sá sem undirskrifar með konugi að vera grundvallaiiaga-ráðgjafi, þá gefum vér frá oss í heilum flokki mála það sjálfsforræði, sem vér nú höfum fult. Og í bezta tilfelli — hvað væri unnið ? Ekki agnar-hætis-vitund í sjálfstæð- isátt. Ef til vill, og líkiega, ið gagn- stæða. En vís aukinn kostnaður, tvístruð

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.