Verkamaðurinn - 01.03.1927, Blaðsíða 1
VERKDMðQURIHN
Útgefandi: Yeridýössanband J'íorðurlands.
X. árg.
Akureyrí Þríðjudaginn 1. Mars 1927. | 17. tbl.
Alt á sömu bókina lært.
Hvað eftir annað hafa verklýðs-
félögin hér á landi gert þá kröfu til
þings og stjórnar, að heft væri það
innstreymi í landið af útlendum
verkamönnum, sem átt hefir sér stað
að undanförnu í stórum stíl. Hér við
Eyjafjörð hefir verið að þessu inn-
streymi útlendinganna hin mesta
plága, sem heita iná að hafi farið
árlega í vöxt. Eftir því sem meir og
meir hefir harðnað um atvinnu-
möguleik fyrir innlenda menn, hefir
mátt segja að útlendum verkamönn-
um hafi fjölgað að sama skapi, til
þess að taka atvinnuna frá íslensk-
um borgurum.
Hér í Krossanesi og á Dagverðar-
eyri út með firðinum hafa unnið 70
—80 útlendingar undanfarin ár, yfir
síldveiðitímann, eða meðan síldar-
bræðsluverksmiðjurnar á þessum
stöðum hafa verið sfarfræktar að
sumrinu.
í einu af stjórnarfrumvörpunum,
sem lögð hafa verið fyrir þingið nú,
er gjört ráð fyrir því, að hömlur
verði lagðar á þetta takmarkalausa
innstreymi útlendinganna í landið,
en þó þannig að stjórnin á að geta
veitt undanþágur frá þeim tálmunum
sent lagðar verða á veg útlending-
anna á pappírnum, ef hún getur
fundið einhverja átyllu til þess að
þóknast einhverjum sínum útlenda
vini, sem rekur atvinnu hér á landi.
Og ekki mun þurfa að efast um, að
þeirri stjórn, sem nú situr að völdum
í landinu veiti létt að finna átyllur til
slíks. í annan stað eiga þessi lög
ekki að ganga í gildi fyr en á hausti
komandi, svo útlendingunum á að
veitast leyfi til þess að leika lausum
hala hér við Eyjafjörð og annars
staðar í landinu eitt sumarið enn.
Enn á ný á að leyfa Krossanessverk-
smiðjunni að koma með sína 50 til
70 verkamenn til þess að taka at-
vinnuna af innlendum borgurum. Þá
fyrst þegar atvinnutiminn á þesu ári
er útrunninn, á að banria útlending-
unum að leita sér atvinnu hér á
landi.
Það verður ekki farið í grafgötur
eftir ástæðunum fyrir því, að þetta
frumvarp er fram koinið.
Kosningar standa fyrir dyrum.
Stjórnin og íhaldið eru á hraðri leið
niður i gröfina. í von um að verka-
fölkið taki eitthvað mýkri tökum á
afglöpuin hinnar deyjandi stjórnar,
er látið líta svo út, að hún hafi heyrt
þær réttmætu kröfur þess um að út-
Iendingunum væri bannað að taka
frá því atvinnuna. En svo einföld er
hún þessi volaða íhaldsstjórn, að
hún heldur að það sjáist ekki að
þetta frumvarp hennar er ekkert
annað en ný, fávísleg kosningabeita,
sem kastað er út á vonleysisstundu
og sem viljaleysi stjórnarinnar til
þess að gera nokkuð fyrir verkalýð
þessa lands skín út úr, eins og
maurildi á marglittu.
Jafnaðarmaður.
-----o------
Úr bœ og bygð.
Á Miðvikudagskvöldið höfðu þeir séra
Jakob Kristinsson og A. Gook trúboði
umræðufund, um komu mannkynsfræð-
ara, í Samkomuhúsinu. Var aðsóknin
svo, að jafn margir urðu frá að hverfa
og komust inn í húsið, og var þó drepið
í það, sem framast mátti. Flestir munu
þóst hafa sótt minna á fundinn, en þeir
áttu von á. Umræðurnar voru alt of
ÞAÐ TILKYNNIST vinum
og vandamönnum, að eiginkona
mín, Brynhildur Ejólfs-
d ó 11 i r, andaðist hér á sjúkrahús-
inu Laugardaginn 26. Febrúar.
Jarðarförin verður ákveðin síðar.
Akureyri, 28. Febr. 1927.
Stefán Ág. Kristjánsson
frá Glæsibæ.
stuttar til að málið yrði rætt að gagni.
En ræðumenn töluðu af hógværð og
kurteisi.
Annars virðist það hégómlegt að vera
að rökræða um það, á hvem hátt mann-
kynsfræðarinn muni koma til jarðar-
innar. Það er aukaatriði. Hitt er meira
um vert að hann komi. Og ekki virðist
ástæða til að ætla, að hann villi á sér
heimildir, eða verði ófinnanlegur, þegar
hans tími kemur að ferðast um meðal
mannanna.
Brynjufundur annað kvöld. Skemtun-
inni, sem ákveðin var á síðasta fundi,
verður frestað til næsta fundar. Flokk-
urinn starfar.
Vegna pappírsskorts, kemur Verka-
maðurinn hálfur í dag. Verður kaupend-
um bætt þetta upp síðar. Meðan á þessu
stendur, mun blaðið aðallega flytja
fréttir og smáklausur.
ísafoldarfundur á Föstudagskvöldið.
Fjármál stúkunnar verða tekin til ræki-
legrar meðferðar, í sambandi við skýrslu
fulltrúa stúkunnar í stjórn Skjald-
borgar.
Stúkan Norðurljós heldur fund
Fimtudag 3. Mars, á venjulegum tíma.