Verkamaðurinn - 01.05.1947, Blaðsíða 1
VERKMflÐURinn
XXX. árg.
Fimmtudaginn 1. maí 1947
17. tbl. *
Alþýða Akureyrar! Taklu virkan þátt í hátíðahöldum dagsins!
ELDHUSUMRÆÐURNAR
Heildsalaráðherrarnir algerlega
rökþrota frammi iyrir þjóðinni
i______
Fara herfilegar hrakfarir fyrir sósí alistum
Hver tilraun, sem þeir gerðu til að afsaka
tollaálögurnar varð aðeins til að afhjúpa
aumingjaskap þeirra og illgirni
Sennilega hefur engin ríkisstjórn
á íslandi farið aðrar eins hrakfarir í
eldhúsumræðum eins og núverandi
heildsalastjórn í umræðunum í gær-
kvöldi og fyrrakvöld. Ráðherrarnir
stóðu algerlega berskjaldaðir
frammi fyrir þjóðinni og fengu ekki
einu sinni sína flokksmenn til að
bera blak af stjórnarstefnunni. —
Ræðumenn Sósíalista við þessar um-
ræður voru þeir Brynjólfur Bjarna-
son, Áki Jakobsson og Einar Ol-
geirsson. Voru ræður þeirra allra
magnþrungin ádeila á heildsala-
stjórnina, tollalög hennar og niður-
skurð á fjárlögum. Sýndu þeir fram
á, að allt hjal stjórnarinnar og mál-
gagna hennar um greiðsluþrot rík-
isins og markaðstregðu erlendis,
væri blekkingar einar og aðeins
bornar fram í því augnamiði að
láta almennirig trúa því að síðustu
árásir stjórnarinnar á alþýðuna og
láglaunafólkið í landinu væri óum-
flýjanleg nauðsyn, en ástæðurnar
væru heimatilbúnar af stjórninni,
því að stefna hennar markaðist af
Verkamerm á Akureyri í kröíugörtgu 1. maí.
því einu, að gera þá ríku ríkari, en
þá fátæku fátækari.
Þá upplýstu ræðumenn Sósíalista-
flokks'ins að stjórnin væri í þann
veginn undirrita stóran viðskipta-
samning við Breta og ættu Bretar að
fá 40% af lýsisframleiðslu okkar í
ár fyrir smánarlega lítið verð, eða
allt að þriðjungi lægra en markaðs-
verð á þessari vöru væri núna á
meginlandinu. Þessu varð ríkis-
stjórnin að kyngja og bar ekki af
sér.
En það kátbroslegasta við umræð-
urnar var það, að ALLIR ráðherr-
arnir vörðu miklu af ræðutíma sín-
jum til að verja Stefán Jóhann per-
sónulega og skafa af honum skítinn.
Hefur mikið þótt við þurfa, enda
,ekki létt verk að taka sér fyrir hend-
ur að þvo Stefán Jóh. hreinan af
allri synd í augum þjóðarinnar.
Mátti ekki auglýsa
starfið
Kanfötukór Akureyrar með aðsfoð Karla
kórs Ákureyrar flytja oratoríið "Streng-
leikar" eftir Björgvin Guðmundsson
næstkomandi þriðjudag
Á fundi bæjarstjómar í gær var
bæjargjaldkera heimilað að ráða
Karl Benediktsson til innheimtu og
skrifstofustarfa fyrir bæinn. —
Tryggvi Helgason bar fram þá til-
lögu, að starf þetta yrði auglýst til
umsóknar og taldi óeðlilegt að bæj-
arstjóm tæki þann hátt upp að ráða
mann í störf án þess að stöðunni sé
slegið upp. — Sú tillaga var felld
með 5 atkv. gegn 3.
Vilhjálmur Stefáns-
son mótmælir
Meðal kunnra Bandaríkjamanna,
sem gengið hafa fram fyrir skjöldu
til að vara Bandaríkjaþjóðina við
afleiðingunuim af heimsvaldastefnu
Trumans í Grikklandi og Tyrk-
landi, er landkönnuðurinn og Vest-
ur-íslendingurinn Vilhjálmur Stef-
ánsson.
Er hann einn af framkvæmda-
stjórum, samtaka, sem nefnast
„Ameríska ráðið fyrir lýðræðislegt
Grikkland", og birtist nafn hans
undir auglýsingu í bandarískum
blöðum, þar sem ráðið skorar á
imenn, að krefjast þess, að Truman
hverfi aftur að stefnu Roosevelts í
utanríkismálum.
og flutning
Kantötukór Akureyrar og Karla-
kór Akureyrar hafa undanfarna
mánuði æft stórt tónverk eftir
Björgvin Guðmundsson, tónskáld,
sem nefnist „Strengleikar“ og hef-
ur ekki áður verið flutt eða gefið
út.
Blaðið hleraði fyrir skömmu, að
verkið væri að verða fullæft og
mundi eiga að koma fyrir eyru
bæjarbúa bráðlega, og þess vegna
sneri það sér til höfundarins og
söngstjórans, Björgvins Guðmunds-
sonar, með nokkrar spurningar,
varðandi tónverkið
þess.
— Hvenær er ákveðið að flytja
Strengleikana þína?
— Við höfum hugsað okkur, að
það geti orðið í næstu viku, eða
þriðjudaginn 6. maí, og vona eg, að
sú ákvörðun standi ekki við orðin
tóm, segir Björgvin. Við hófum æf-
ingar rétt eftir áramótin síðustu, og
síðan hefur verið haldið áfram
sleitulaust. Eg vil taka það skýrt
' fram, að Kantötukórinn nýtur að
þessu sinni mikils stuðnings frá
öðrum aðila, sem er Karlakór Akur-
i
eyrar. Hann var svo elskulegur að
taka samstarfi við okkur um æfingu
á þessu erfiða verki, og án iþess
samstarfs heífðu ekki( verið nein tök
á að flytja það og ekki heldur reynt.
Bæði iformaður og söngstjóri Karla-
kórsins hafa sýnt fráb’æra lipurð og
alúð í þessu mikla og nána sam-
starfi við Kantötukórinn, og hefur
söngstjórinn, Áskell Jónsson, unnið
mikið að raddæfingum o. fl.
— Hvað um „Strengleika“ ann-
ars, sem tónverk?
— Óratóríóverkið „Strengleikar"
er samið við samnefndan ljóðabálk
eftir Guðmund Guðmundsson, os
sem margir munu kannast við.
Efni 'kvæðisins er ástarsaga ungs
námsmanns. Hann er trúlofaður
uppeldissystúr sinni og ann henni
mjög, og er ást þeirra og framtíðar-
draumar túlkaðir í fyrri hluta
verksins. En allar ástarsögur, sem
talandi er um, eru einnig barna-
sögur, og svo er einnig hér. Þegar
I ungi maðurinn kemur heim úr
skóla, að vori til, er unnusta hans
nýdáin. Sezt þá sorgin í öndvegi,
og þykir unga manninum sem lifs-
ljós sitt hafi slokknað. Verkið end-
ar á jarðarför unnustunnar, og nær
dramatikin þá hámarki sínu.
Hvað er værkið í mörgum þátt-
um?
— Það er í þrem þáttum, og verð-
ur flutt í heild, eða því sem næst,
a. m. k. mundu Reykvíkingar segja
það, því þegar þeir flytja 10 þætti
(Framhald á 4. síðu).