Verkamaðurinn - 29.05.1964, Síða 2
Á sjónskífunni
Nú nálgast sá tími, sem um-
ferðaraukningin margfaldast
nokkrum sinnum. Bifreiðafjölg-
unin er óskapleg og ferðahugur-
inn er vaknaður í góðviðrinu.
Hvítasunnan var mórauð á öll-
um vegum, þótt hún væri hvít í
sálum manna. Ryk veganna er
okkar mikla vandamál: hættu-
legt, óhollt O'g leitt. Hvað er hægt
að gera t. d. í næsta nágrenni
bæjanna, til að drepa þetta ryk?
Hin mikla bifreiðafjölgun
býr oss fleiri hættur en þrengsli
á vegum. Mikill fjöldi nýútskrif-
aðra bifreiðarstjóra bætist í um-
ferðina, óvanir bæði akstri og
umferðareglum.
Mér hefur dottið í hug að að-
varanir þær, sem Slysavamafé-
lagið útvarpar gætu orðið meir
en hugvekja fyrir vegfarendur,
þær gætu verið fleiri aðilum
hvatning til að vara menn við
hættum og hvetja menn til ár-
vekni.
Lögreglan okkar hefur gengið
röggsamlega fram í því að tyfta
menn fyrir frágang bifreiða við
stöðvunarstaði. Hún verður að
vera sívakandi með leiðbeining-
ar og tilkynningar um umferða-
reglur og hegðunarmáta okkar
innanbæjar og utan í akstri. Hún
ætti að vara hj ólreiðagæj a við
að nota ekki gangstéttir sem
akbrautir og eigendur „trylli-
tækja“, við að þrefalda innspýt-
ingu hér í bænum.
Lögreglan ætti að hafa meiri
samvinnu við bæjarblöðin og
senda frá sér í hverju blaði stutt-
----------------------♦
ar tilkynningar, aðvaranir og
leiðbeiningar, nú þegar sumarið
smalar tugþúsundum bifreiða
út á vegina. Þetta gæti komið
vegfarendum að miklu gagni.
Ég efast ekki um að öll blöðin
myndu fús til slíkrar samvinnu.
Það er óglæsilegt ástand á
þeim sveitabæjum, þar sem þjóð-
vegurinn liggur rétt við hús-
veggina. Tún og byggingar
liggja undir stöðugu ryklagi.
Ogerlegt er að opna glugga á
slíkum stöðum, það fyllist allt
af ryki undan bifreiðum ferða-
manna, sem gjarna gá ekki þeirr-
ar skyldu að hægj a á sér, j afnvel
þótt vegurinn liggi um hlöðin
eins og allvíða er staðreynd.
Og bóndinn er aldrei öruggur
um gripi sína. Þeir sækja á gróð-
ur vegkantanna, leynast í skurð-
bökkunum og þjóta oftast upp á
veginn þegar styggð kemur að.
Varla skal það bregðast, að
lamb bítur annan kantinn, móð-
irin hinn. Þegar bifreið kemur
brunandi stekkur alltaf annað-
hvort lambið eða ærin yfir til
hins. Þá er lítil von að hemla
megi í tíma, ekki sízt ef hraði
er um 100 km. Það er stórskaði
að missa vorlamb, það verður
nokkurs virði í haust. Enn þá
hörmulegra er að limlesta það
eða drepa.
Komið hefur fyrir að skepn-
ur finnast helsærðar á vegum.
Ökumaður hefur unnið ódæðið
og flúið af hólmi. Þetta er sví-
virða, sem ekki sæmir nokkrum
manni.
En voðalegastar eru þær frétt-
ir, sem alltaf klingja í fréttum:
Barn, fullorðinn, varð fyrir bíl
með þessum eða hinum voðalegu
afleiðingum. Hvernig má koma
í veg fyrir þetta? Bifreið er at-
vinnu og skemmtiferðatæki,
ekki skriðdreki í stríði gegn lífi
og verðmætum. Leggjumst öll á
eitt, að þetta sumar verði án
mikilla hörmunga af völdum
umferðar.
Enn um þrifnað
Útvarp og blöð um allt land
eru nú að birta tilkynningar til
fólks um að hreinsa vel fyrir sín-
um dyrum, vegna sumargesta og
17. júní, sem í ár er meiri dagur
en undanfarið vegna þess að
hann er tuttugasti 17. júníinn
okkar. Það er víða verið að
þrífa, setja niður blóm og runna
og fegra lóðir og garða. Kvöldin
og helgarnar eru notaðar til
þess að hjálpa guðunum til að
gera landið fegurra.
En nokkur vandkvæði eru á
hjá mörgum einstaklingum, með
geymslustað fyrir margs konar
dót, efni og eignir, sem ekki má
fleygja og einhvers staðar verð-
ur að vera.
Menn, sem hafa staðið í bygg-
ingum, eiga afganga af efni,
smiðum er bölvanlega við að
endurnota þetta, en það eru verð-
mæti, sem ekki má henda. Þetta
á einnig við hjá alls konar verk-
stæðum, tæki, efni og afgangar,
sem síðar koma í notkun verða
að geymast, en hvar?
Hvernig væri nú að bærinn
hlypi hér undir bagga með þess-
um aðilum og gerði port mikið
og vandlega afgirt. Það mætti
vera utan við alfaraleið. Þarna
gæti hann leigt einstaklingum
reiti, þar sem þeir gætu geymt
eigur þær, sem þeir vildu varð-
veita á öruggum stað, því vitan-
lega yrði að vera þarna gæzlu-
niaður, er sæi um móttöku eign-
anna, frágang þeirra og afhend-
ingu. Þessum gæzlumanni yrði
bærinn að greiða kaup, en það
mætti vinna upp með leigugjaldi
fyrir notkun, frá þeim, sem þetta
vildu nýta.
• <;--- « t- - ;-5 "« I
Þetta myndi hafa það til síns
ágætis, að losna við af lóðum og
bakgörðum stafla og hrúgur
efnis, það yrði handbært á ör-
uggum stað, er til þyrfti að
taka og vart myndu menn kaupa
leigu fyrir gjörónýtt rusl, það
færi þá sína réttu leið á hauga.
En hvenær eignumst við okkar
sorpbrennslu?
Það er víða ánægjulegt að sjá
hve þrifnaður hefur aukizt í
sveitum landsins. Hús eru máluð
og vel við haldið. Þar er líka
meira svigrúm til að koma alls
konar nytsömu dóti fyrir án
þess að það skeri í augu.
Það er ekki sæmandi þjóð,
sem byggir eitt af fegurstu lönd-
um jarðar, að varpa á það skugg-
um illrar umgengni. En því mið-
ur: Skemmtanahald í helgilund-
um landsins ætti að afleggja,
menn kunna ekki að umgangast
fegurð lands og gróður, þegar
skemmtanafylginautur sá, sem
nú er að verða að draugi á hverri
hátíð úti og inni, brennivínið,
hefur blindað það litla fegurðar-
skyn, sem leynast kunni áður í
sálinni.
Og ferðamenn, sem tjaldið
þar, sem ykkur þykir fegurst að
velja næturstað. Skiljið ekki við
hann eins og svínastíu að
morgni. Það er ömurlegt fyrir
næsta næturgest.
■ M • » f
Kringsgo
vikunnar
Messa fellur niður í Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag vegna ferm-
ingarbarnamótsins ó Dalvík.
-—- Sóknarprestar.
ORDScNDING
til fermingarbarna í Akureyrar-
prestakalli vorið 1964.
Fermingarbarnamót verður haldið
ó Dalvík sunnudaginn 31. maí. Far-
ið verður fró Akureyrarkirkju kl. 8
um morguninn og komið heim um
kl. 1 1 að kvöldi sama dags. Æski-
legt er að fermingarbörnin séu
þannig klædd, að þau geti tekið þótt
í útileikjum og íþróttum.
Þótttakendur hafi með sér Nýja-
Testamentið. Einnig nesti til dags-
ins, en mjólk fó þeir þó ó mótsstað.
Þótttökugjald verður kr. 30 en far-
gjald nálægt kr. 50.00. Geti einhver
fermingarbörn, sem skrifuðu sig á
þátttökulistana eigi farið, eru þau
beðin að tilkynna það prestunum
sem fyrst. Eins láti þau, sem eigi
höfðu skráð sig, en ætla að fara,
sömu aðila vita.
Arsfagnaður Iðnnemafélags Ak-
urreyrar verður að Hótel KEA föstu-
daginn 29. maí klukkan 9—1. —
Barnaheimili I.O.G.T., að Böggv-
isstöðum, tekur til starfa 20. júní
n.k. Dvalartíminn er tveir mánuðir.
Heimilið tekur við um 40 börnum
og er enn hægt að veita nokkrum
börnum viðtöku. Forstöðumaður
verður Arnar Jónsson og matráðs-
kona Valrós Arnadóttir. Allar upp-
lýsingar í síma 2131. (Frá barna-
heimilisnefnd).
HÖFUM OPNAÐ
NÝJA VERZLUN í
Hajnorstntti W,
Fiöibreyf-f- úrval aí
VEFNAÐARVÖRUM og
HERRAVÖRUM alls konar.
Verið velkomin í ný og visfleg
húsakynni.
Gjörið svo vel.
VEFNAÐARVÖRUDEILD
HERRADEILD
2) Verkamaðurinn
m
Föstudagur 29. maí 1964