Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Síða 36

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Síða 36
36 örðugra að uppgötva í þeim, að þau eigi kyn sitt að rekja til jurtaríkisins, heldur en í mónum. Eptirfylgjandi tafla,1 sem sýnir hina helztu efna- fræðislegu samsetningu trés, mós og hinna helztu teg- unda af kolum, nefnilega steinkola, anthracit og lignit (surtarbrands), útskýrir fyrir oss hina efnafræðislegu breytingu, sem verður, þegar kol og mór er að myndast. Viður Mór Lignit Steinkol Anthracit Kolefni 50.00 00.02 66.96 88.42 94-05 Vatnsefni ó.oo 5-88 5-25 5.61 3-38 Súrefni 44.00 34.10 27.79 5-97 2.57 100.00 100.00 100.00 100.00 100.00 Af þ essari töflu sjáum vér, að tré, mór og kol myndast af hinum þremur frumefnum, sem áður er um getið ; nefnilega kolefni, vatnsefni og súrefni, en i ýms- um hlutföllum; að í trénu er að sínu leyti mest af vatnsefni og súrefni, en minnst af kolefni; og að með- an tréð er að verða að mó, og mórinn aptur að kol- um, fer vatnsefnið og súrefnið ávalt að sama skapi minnkandi, sem kolefnið vex. f>ess er og vert að geta, að í lignit, sem í jarðfræðislegu tilliti er hin yngsta tegund af kolum, þar eð hann finnst í þrílagamyndun- inni (Tertiery-System), er meira vatnsefni og súrefni, heldur en í steinkolum, sem í jarðfræðislegu tilliti eru afarmiklu eldri, þar þau koma fyrir í steinkolalögun- um (Carboniferous-System), en anthracit, sem finnst í hinum elztu og neðstu steinkolalögum, inniheldur minnst af vatnsefni og súrefni, en mest af kolefni. Af þessu má álykta, að þegar tré og jurtir eru grafnar í jörðu niður og verða fyrir áhrifum vatns, en missa á- hrif loptsins, en verða aptur fyrir hinum afarmikla þrýstingi af þeim lögum af moldu og grjóti, sem safn- 1) Roscoe and Schorlemmer, Treatise on Chemistry, Vol. 1. bls. 596.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.