Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1902, Page 158
Dr. Johan Fritzner.
Eftir
Janus Jónsson.
Dr. Johan Fritzner var af prestaættum kominn, og
sjálfur var hann prestur mestan hluta æfi sinnar. »Björn
Halldórsson' var prestur og Fritzner lika prestur«, sagði
Jón rektor Þorkelsson. Hann var að benda á, að prest-
ar hefðu leyst af hendi vísindaleg störf og hetðu áhuga
á vísindaiðkunum. Dr. Johan Fritzner leysti af hendi
vísindalegt þrekvirki, þar sem eru orðabækur þær yfir
hina norrænu forntungu, er hann hefir samið. Skal hér
nokkuð sagt verða frá manni þessum, enda sýnist vel
eiga við, að hans væri minst á íslenzka tungu. Verður
hér farið eftir því, er dr. Gustav Storm hefir um hann
ritað í »Arkiv for nordisk Filologi« 1894, N. F. VI.
385—392.
Fritzner var fæddur 9. dag aprílmánaðar árið 1812
á bæ þeim, er Mýri heitir. Sá bær er í ey þeirri, er
1) Björn Halldórsson, piófastur í Sauðlauks-
dal, fæddur 5. des. 1724, dáinn 24. ág. 1794, samdi íslenzka
orðabók með latneskum þyðingum og dönskum. Bókin var
prentuð í Kaupmannahöfn 1814 og er mjög merkilegt rit.
Hanu samdi og önnur rit, búnaðarlegs efnis: »A 11 i«,
»G r as n y t j a r«, ^Arnbjörg«. —