Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1895, Qupperneq 20

Eimreiðin - 01.07.1895, Qupperneq 20
100 Lifnaðarhættir og atvinnuvegir eru sörnu sem manna. (íslendinga sjálfra). Alfar hafa hunda, kýr og kindur, naut og hesta, fjöruga og fallega, og allt er það föngulegra og gerðarlegra. en hjá mönnum. Af þessu leiðir, að þeir þurfa alla heyvinnu, þeir slá og raka, hirða og binda og safna í hlöður. Mjólkur- tilbúningur fer þar fram, og opt heyrist strokkhljóð úr klettum.. Þeir hafa ullarvinnu, kemba, spinna og prjóna. Þeir sem búa nálægt sjó, fara í verið og róa til fiskjar og eru að hvalskurðif þeim hepnast ætíð vel og þeim hlekkist aldrei á. Þeir sem búa upp til sveita þar sem silungsvötn eru, róa og veiða silung. Þegar talað er um mat í hólum hjá álfum — en það er sjaldan —, er nefndur steiktur silungur (og má af því nokkuð marka, að sú saga. sje til orðin í sveit) og þess utan brauð og grjónagrautur; brauðs- og grautar-efnið má ráða í hvaðan komið sje, sem síðar skal á. minnzt. Þ.ó er ekki laust við, að mönnum sýnist ekki maturinn í hólum girnilegur (stundum maðkaður eða allur rauður). Þess. skal enn fremur getið, að álfar fara á berjamó og tína ber. Yfir höfuð er það allt velmegandi og auðugt fólk, sem áður segir. Þó er til fátækt fólk meðal álfa, og er stundum hart í búi hjá því; ber þá við, að krakkarnir þeirra korna til manna og sníkja. mat eða mjólk í nóann sinn; askarnir eru hvítir með rauðum gjörðum (það hafa þótt laglegir askar, er svo vóru gerðir). Alfar halda fardaga og flytjast búferlúm, og er það kunnugra. en frá þurfi að segja; þeir flytjast þá stundum á kerrurn — sem sýnast steinar eða eru. Almennasta fardagatíðin er nýjársnótt. Um jólin og nýjársleytið hafa þeir gaman af gleði, söng og dansi, og kemur það ekki í bága við, að álfar annars sje mjög alvarlegt fólk. Menntaðir eru álfar mjög vel, enda hafa þeir sálarhæfileg- leika á æðra stigi en menn; þeir kunna á sjerstök grös til lækn- inga; geta látið hvali hlaupa á land með kyngi sinni, og er þá. ekki furða, þótt huldumaður eigi krapta- og kyngisbók (galdra- kver); álög þeirra verða að áhrinsorðum (»vertu þá aldrei óstel- andi«). •— Alfar kunna að skrifa; að minsta kosti er látinn skrifaður miði með barni í vöggu. Þeir hafa jafnvel prentsmiðju og prenta bækur, og er talað um sálmakver með mjög fínum stíl, er fundizt hafi við bæ einn; það var svo ólíkt öllu öðru, að það hlaut að vera komið frá álfum (álfgjöf); og til eru brot af álfa-sálmum. Að álfar myndi eina þjóðríkisheild, er víst, og eiga þeir sjer álfaþing, og hafa lög — Huldumannalög—, en aðeins eitt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.