Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1896, Page 32

Eimreiðin - 01.01.1896, Page 32
32 Hún hafði vistaskipti á hverri vordaga krossmessu, sem al- manakið nefndi, og flutti sig þá optast nær nokkuð langt úr stað. Atvikin höguðu því þannig, að áður en vistarárið var á enda, var hún orðin að bitbeini gárunganna og skotspæni slaðursins í grendinni. Hún var stirðfætt og klaufhent til verka, meinlaus i orðum og vildi ekki gera flugu mein, gjörsneydd öllum fegurðar einkenn- um, og þótti vilja draga sig eptir piltunum. A þessar uglur hengdu gárungarnir hattana sína. Þeir voru ekki í vandræðum með uglur- nar, og hún var ekki í vandræðum með vistirnar; því svo mikil vinnukvenna-ekla var í landinu, að margar góðar konur urðu »sjálfar« að vera í fjósinu. Það þarf ekki lengi að litast um í henni Veröld, til þess að sjá fjölda af konum og körlum, sem giktarverkir syndarinnar eru búnir að skekkja svo i liðum, að gangurinn er orðinn afskræmi- legur. Margir fresta til morguns, að greiða tíundir sínar guði og náunganum. Margur er sá Jóninn og mörg er sú Guðrúnin, sem láta syndina svæfa sig á kveldin og vekja sig á morgnana, fyrir- verða sig ekki lifandi vitund fyrir, og eiga góðri heilsu og virð- ingu að fagna til ellidaga. Þau andlit eru víst teljandi, sem fingra- för syndarinnar sjást ekki á — seinni hluta vikunnar að minnsta kosti. Prestarnir þvo þeim í framan á sunnudögunum, sem það vilja þýðast — eptir því sem þeir hafa vatnið og hendurnar til. Hinir sitja heima með báða kjammana bildótta. Sigrún hafði hinar farsællegu trúarskoðanir, sem hún hafði numið í kverinu og biblíusögunum. Hún hafði engan glæp drýgt vísvitandi; samvizkan var hvít eins og nýþvegið peysubrjóst. Þó vildi hún láta þvo sjer, þótti það varlegra og vissara. Hún fór til messu í hvert sinn, sem messað var, eða messa átti. Það vildi til, að þjónustugerðin fórst fyrir, sökum lögmætra forfalla. Og hvort sem presturinn talaði um sambandið milli trúar og helgunar, eða heimilisfrið og náungakærleika, þá brást það varla, að tárin flytu niður á höku Sigrúnar; — einkum þegar aptur dró í ræðuna, þegar þar kom, að presturinn tók til að sameina ræðu- þræðina og vinda þá saman í hnoða, sem svo valt sjálfkrafa að tám hinna grátfrjóvu sálna. Það var ekki prestsins skuld, þótt því væri svo stungið undir sængurhornið, eða fleygt i ruslakistuna, þegar heim kom. Enginn villutrúar-mývargur hafði skyggt fyrir sólina í hjer-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.