Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1896, Qupperneq 20

Eimreiðin - 01.05.1896, Qupperneq 20
100 framt gleðinni út af undirtektunum varð hann gagntekinn af hennar fögnuði. Svo hann lagði handlegginn um mittið á henni, og þau dönsuðu yfir spegilsljett svellið, dönsuðu harðan galoppaðe, svo harðan sem fæturnir gátu borið þau, því að gleðin, ung, sterk og ofsafengin, Ijek danslagið í brjóstum þeirra. Þegar Sigvaldi sá þessi kynlegu háttbrigði, nam hann allt í einu staðar og stóð hreyfingarlaus eins og steinn. Hann gat í fyrstu ekkert annað gert en horft, glápti með opinn munninn, og það var líkast því, sem drættirnir i andliti hans þurkuðust út og hann væri orðinn að glóp. Svo tók hann fast í handlegginn á förunaut sínum og sagði í einlægnislegasta alvöruróm: »Heldurðu, að hún Manga sje orðin brjáluð?« »Ja-nei-nei,« sagði maðurinn. »Þetta er ungt og leikur sjer. Það er víst ijörugur maður, þessi læknir ykkar.« »Fjörugur!« sagði Sigvaldi, og nú var málrómurinn orðinn 1 meira lagi hrottalegur. »Hann er gláni. Guð forði ííijer og mín- um frá hans fjöri!« Svo gat maðurinn ekki haft eitt einasta orð út úr Sigvalda það sem eptir var leiðarinnar að kirkjustaðnum, sem reyndar var ekki langt. Kirkjan var orðin rjett að segja full af fólki, þegar þau komu inn í hana, og guðsþjónustan átti að fara að byrja. Ljósin voru mörg og hátíðarsvipur á hverju andliti. Karlmennirnir fóru inn 1 kórinn, en Margrjet sat frammi í kirkjunni. Gott harmóníum var í kirkjunni og söngurinn hófst með sálminum: ,Dýrð sje guði i hæstum hæðum 1 ’ Margrjet varð þegar gagntekin af söngnum. Hún var mjög trúarlítil. Það hafði aldrei verið sjerlegur guðræknisbragur á heimili föður hennar, og sú ófullkomna trúarsannfæring, sem presturinn hafði komið inn hjá henni, þegar hún gekk til spurn- inga, hafði orðið mjög laus fyrir mótbárum þeim gegn kenningum kirkjunnar, sem kornið höfðu fram á síðari árum og höfðu fest sig í hug hennar. En nú var hugur hennar svo einkar gljúpur eptir geðshræringuna; og hjá flestum mönnum verður hann miklu móttækilegri fyrir trúaráhrifum utan að í gleði en í sorg, þó að margir virðist ætla, að því sje annan veg varið. Því fór fjarri, að hún hefði fasta vissu um, að trúaratriðin, sem sálmurinn er byggður á, væru óyggjandi sannleikur. En á þessari stund trúði hún, trúði afdráttarlaust, skynsemislaust, með tilfinningunni einni saman; söng- urinn og organslátturinn sveifluðu hug hennar inn á sömu braut-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.