Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Síða 6

Eimreiðin - 01.01.1901, Síða 6
6 fullkomnasta heimildarrit telur ekki fleiri, og svo ekki síður hinu, að þessir kristnu menn voru uppnefndir, kallaðir »kristnir« eða »fíflskir«; það sýnir, hve nýstárlegir og hve sjaldgætir þess háttar menn voru. Hér við bætist, að sögurnar eru í þessu efni í sam- ræmi við Landnámu. Pvert ofan í alt þetta hefur höf. þor til að segja: »Vera má,1 að fleiri landnámsmenn hafi verið kristnir en Landnáma og sögur vorar telja, og eflaust1 má ganga að því vísu,1 að ýmsir af hinum minni háttar mönnum, sem lítið bar á, hafi verið kristnir« — og svo er bent á ýmsa með orðatiltækj- unum: »Líklegt er . . . ef til vill . . . má telja víst . . . eflaust (oft) . . . eigi er ólíklegt . . . getur vel verið« (3^—5. bls.). Um þetta alt er aðeins það að segja, að höf. gengur hér lengra í getgátum sínum, en ástæða er til og þörf, og lengra en hægt er að standa við. Hvort t. d. einhverjir þrælar Auðar hafi verið kristnir er svo vita-þýðingarlaust í sögu kristninnar, að það var óhætt að sleppa þeim; hafi húsbændurnir verið heiðnir, hafa þrælarnir verið það ekki síður — »quales domini, tales servi« — og »eftir daga Auðar »spiltist trú frænda hennar«« segir höf. eftir Landn. Höf. játar nú — þrátt fyrir alla mögulegleikana — að »alt bendi til, að sá litli vísir« kristninnar »hafi brátt kulnað út af víðast hvar« — og þessu er ég alveg samþykkur. Pessi »fyrsta kristni« landsins, sem að mestu eða öllu er horfin um 930, stendur þá í engu beinu sambandi við kristniboðin á síðasta hluta 10. aldar og sjálfa kristnitökuna. En mig furðar á því, að höf. skuli ekki benda á, að sögusögnin og meðvitundin um þessa kristnu menn, er barna[barna]börn þeirra lifðu um 1000, hafi kunnað að greiða götu fyrir hlýjum huga til kristninnar hjá niðjum þeirra, og verið á þann hátt ein af orsökunum til þess, að kristnin komst svo auðveldlega fram. Letta væri rétt ályktun og er ekkert hægt að hafa á móti henni; af Landn. vitum við, að endurminningin um þessa menn hafði lifað alla tíð. Að því er snertir hnignun heiðinnar trúar á Islandi, hafa þar sjálfsagt verið sömu orsakir til sem annarstaðar á Norðurlöndum, og vísar höf. til rits K. Maurers, er skýrir ágætlega frá öllu þessu. Trúin á hin heiðnu goð og mátt þeirra var orðin veik, og hjá mörgum algjörlega horfin; mönnum stóð á sama, á hvað þeir trúðu. Margir trúðu á mátt sinn og megin. Hvað var að undra 1 Gleiðletrað af mér.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.