Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Side 40

Eimreiðin - 01.09.1904, Side 40
200 mannlegu lífi, þá er svo langir tímar vóru liðnir. Yfirleitt eru það grýlur einar, að guð hafi þannig farið niður með eldi, eins og böðull, og er gagnstætt eðli hans, sem er óbreytanleikur. »Kristnir menn og Gyðingar líkjast leðurblaknahóp eða maurum, er koma frá búum sín- um, eða froskum, er safnast í einhverri tjörninni, eður ormasamkundu í forarkróki, er þeir rífast um, hveijir séu syndugri, og segja: Guð opinberar oss alt og segir oss alla hluti fyrir. Hann lofar alheimi að eiga sig, snúning himins og víðri jörðu til að vera með oss, hann gerir oss boð án afláts, svo að vér getum haft samskifti við hann. Það er eins og fáeinir maðkar segðu: Fyrst er guð og svo erum vér, skap- aðir af honum í líkingu hans, alt er oss undirgefið, bæði jörð og vötn og loft og stjörnur, alt er til fyrir vora skuld og verður að þjóna oss. Ef einhverjum af oss verður eitthvað á, mun guð annaðtveggja koma sjálfur eða senda son sinn til að brenna rangláta og að vér aðrir fá- um öðlast eilíft líf með honum«. Öll þessi hugmyndasmíð kemur vel heim við hið ógöfga guðshugtak þeirra, eins og það kemur í ljós í hlægilegum þjóðsögum í gamla testamentinu, t. d. um sköpunina og höggorminn, sem er máttugri en guð, um þenna ískrítna kassa«, er tók allan heiminn, dætur Lots, Jósef o. s. frv. »Veit ég vel, að greindir Gyðingar og kristnir menn fyrirverða sig fyrir þær og skýra þær á líkingarfullan hátt. En það er óleyfilegt um þessar heimskulegu þvað- urssögur, og þær líkingarfuilu skýringar, er ég hef séð, eru langt sóttar og verri en sjálfar sögurnar«. Órígenes, einn af aðalmönnum hinna »djúpsettu« líkingarfullu biblíuskýringa, heldur því hins vegar fastlega fram, að kristnir menn hafi rétt á að nota líkingar, eins og Platón og ýmsir aðrir. Andspænis kristninni skipar Celsus svo hinu hreina og háleita guðshugtaki grískrar heimspeki, að guð sé alheimssál og vizka, eins og Platón hefur komist að orði, og sýnir, hversu ósamþýðilegt það sé hugmyndum kristinna manna um manninn sem mark og mið (telos) sköpunarinnar. »Hann er ekki fremur skapaður sökum mannsins en ljónsins, höfrungsins eður arnarins, heldur til þess, að heimurinn sem guðsverk geti orðið fullgerr og fullkominn í hverri grein«. Guð annast alheiminn, vizka hans vakir yfir honum. Hann reiðist ekki fremur vegna mannsins en apans eða músanna. Einkum er kenningin um upprisu holdsins mjög ógöfug, enda hafna sumir kristnir menn henni líka (Gnostíkar). Sálin er komin frá guði og því er það hún ein, sem er ódauðleg. »f’að er heimskulegt að halda, að þegar guð kveikir upp elda, sem soðkarlar, verði alt mannkynið steikt nema þeir, er einir eiga að rísa upp af moldu ásamt líkömum þeirra, og það ekki aðeins þeir, sem eru lifandi, heldur þeir, sem löngu eru dánir, og er slíkt sannarleg maðkavon. Mannssálinni er þó naumast mikil þægð í rotnum lík- amanum«. Og hvernig má þetta verða? Guði eru allir hlutir mátt- ugir. Varla þó það, sem er Ijótt og óeðlilegt. Guð er vizka (logos) og getur ekkert óskynsamlegt unnið. Skoðanir Gyðinga þykja Celsusi skiljanlegar. f’eir hafa þjóðlega trú, hvernig svo sem hún annars kann að vera, og Heródót hefur jafnvel sagt, að menn skyldu virða trúarvenjur erlendra þjóða. Kristnir menn hafa hins vegar kastað trú feðra sinna, að tilvísun sendiboða frá

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.