Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1911, Page 75

Eimreiðin - 01.05.1911, Page 75
mast“ (= stallr), heldur „mast-beam“ eða „mast-thwart". (Úrengdr) úrendr er miðr vel jDýtt með „undressed(?)“, þó jaað megi til sanns vegar færa; j>að j)ýðir bara óspunninn („not spun“) sbr. renna (j>ráð) = spinna (þráð). Vefjarmöttull þýðir ekki „oostly woven oloak“, heldur blátt áfram vaðmálsmöttull. Úborinn er ekki nægilega þýtt „unborn"; það táknar þann, sem skorinn er úr móðurlífi, en ekki fæddur á náttúr- legan hátt. Aldrtregi þýðir ekki „life-long sorrow“, heldur sama og aldrtjón. Gciski er þýtt með „a kind of kerchief(?)“, en á að vera „goat- skin“ (geitskinn, geitheðinn). Hermdarverk er rétt þýtt í sjálfri bók- inni, en rangt í leiðréttingum framan við hana, og líkt mun mega segja um málfriðr. Vér verðum að láta hér staðar numið, þó margt fleira mætti til tína. En vér vonum, að bókin verði svo mikið notuð og keypt, að ekki líði á löngu, áður en önnur útgáfa komi út af henni, svo að lagfæra megi þá galla, sem nú eru á henni. far sem bókin er svo handhæg og hentug fyrir byrjendur, vonum vér, að hún verði til þess, að stuðla að því, að enskar þjóðir leggi meiri stund á norræn fræði en hingað til. Kunnum vér því höf. beztu þökk fyrir starf hans, og eins dr. Craigie, sem bæði hefir komið henni á prent og varið miklu af sínum nauma tíma til að yfirlíta handritið og próf- arkirnar. V. Gc. TH. THORODDSEN: DE VARME KILDER PAA ISLAND, deres fysisk-geologiske Forhold og geografiske Udbredelse (í „Oversigt over Vidensk. Selsk. Forhandl.“ 1910, nr. 2 og 3. bls. 97—153, 183—257). Retta er merkileg ritgerð og mikils virði fyrir þekkingu vora á eðli lands vors og náttúruöflum. Höf. hefir þar safnað saman í eina heild megninu af því, sem menn nú vita um vatnshveri á Islandi, og aukið þar við öllum þeim athugunum, sem hann sjálfur hefir gert á ferðum sínum. Ritgjörðin skifttist í tvær deildir, óg er hin fyrri um alment eðli hvera, en í hinni síðari er öllum hverum og laugum á Islandi lýst sérstaklega. Höf. hefir sjálfur skoðað 65 hverahópa og 44 einstaka hveri og laugar, en auk þess eru til heitar uppsprettur á 53 stöðum; alls teiur hann 677 vatnshveri og laugaop á Islandi, en brennisteinshverirnir eru miklu fleiri; hann hyggur þó, að enn muni finnast margir nýir vatns- hverir, ef vel er leitað. Höf. prentar skrá yfir hverina í hverri sýslu, með hita þeirra og hæð yfir sjó, lýsir gróðri við hveri, hverapípum og hveraskálum og hverahrúðri með ýmsri gerð; þá lýsir hann hveragosum og mismunandi goseðli ýmsra hvera, hveravatni og efnasamsetningu þess, og skýrir ýtarlega frá skoðunum manna um uppruna hveravatnsins. Aður þóttust menn fullvissir um, að hveravatnið væri alt komið að ofan, frá yfirborði jarðar, færi niður í sprungur og holur og hitnaði þar, en hinar nýrri rannsóknir benda til þess, að nokkuð af hveravatninu muni koma innan úr jörðu með afarhita, sem orsakar hveragos og önnur fyrir- brigði. I hveravatni er oft mikið af köfnunarefni og hóldu menn það kæmi úr andrúmslofti, en nýjustu rannsóknir benda til þess, að það muni koma innan úr jörðu og að nokkru leyti vera hreyfandi afl i eld- gosum og hverum. Rá getur höf. um breytingar þær, sem verða á hver- um við landskjálfta og sýnir, hvernig þeir á Islandi raða sér niður eftir

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.