Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1915, Blaðsíða 10

Eimreiðin - 01.01.1915, Blaðsíða 10
IO Hegningariögin. Eins og allir vita, mynda einstaklingar hverrar siðaðrar þjóð- ar eitt allsherjarsamband sín á milli, sem kallað er þjóðfélag. Þjóðfélagið setur meðlimum sínum svo reglur, sem hver og einn skuli skyldur að fylgja. Reglur þessar eru kallaðar lög, og ern þau mikil og margvísleg. Brjóti einhver lögin, í nokkru verulegu atriði, verða fyrir honum önnur lög, nokkurskonar lög á lög of- an, og kallast þau kegm'ngar/ög. Og þau eru það, sem hér verða tekin til umræðu, og þó að eins í nokkrum atriðum. Hvernig er þá hegningarlögunum háttað! Tökum dæmi: Setjum, að ég verði sönn að því, að hafa tekið peninga eða eitthvað annað fjármætt frá öðrum manni. Hvað er þá gert við mig? Eg er sett í varðhald um lengri eða skemmri tíma, eftir því sem lagavaldinum virðist rétt vera, og við varðhaldsvistina missi ég það, sem kallað er œra og mannorc). Tökum annað dæmi: Setjum, að ég verði sönn að því, að hafa vísvitandi orðið öðrum manni að bana. Hvað er þá gert við mig? Ég er fyrst sett í fangelsi og síðan dæmd til lífláts. Að þeim dómi hefir ekki verið fullnægt hér á landi á síðustu tímum, heldur breytt í æfilanga varðhaldsvist, með konungsúr- skurði, kemur ekki málinu við. Dómurinn er til í lögunum, og um þau er verið að tala. Enda aldrei hægt að segja fyrirfram, hvort konungur muni náða eða ekki. Hver er nú tilgangur þjóðfélagsins með hegningarlögunum? Gerum ráð fyrir því bezta, sem hér mun vera um að ræða. Segjum, að tilgangurinn sé í fyrsta lagi sá: að bæla niður prjózkuna í brotlegum einstakling pjóðfélagsins, svo að hann finni, að hann hafi rangt gert, og bœti pví rdð sitt, og í öðru lagi: að hræða aðra frd pví, að fylgja dæmi hans. Gerum ráð fyrir, að þetta sé tilgangurinn, og ef til vill miklu fleira, sem hér skal ekki talið upp. En eru þá nokkrar líkur fyrir því, að þjóðfélaginu takist að ná þessum tilgangi sínum, hvað þá heldur meira, er til góðs mætti verða? Tökum þá fyrst fyrra atriðið í tilganginum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.