Alþýðublaðið - 28.01.1964, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 28.01.1964, Blaðsíða 16
með 8V2 vinning Reykjavík, 27. jan. — ÁG. í GÆRKVÖLDI voru tettdar nokkrar biðskákir á Reykjavíkur- mótinu. I*á vann Gligoric .Friðrik og Jón Kristinsson gaf skákina við Friðrik. Skák Inga og Johannes- sen fór í bið, en þar hefur Johann- essen mun meiri vinningslíkur. Þegar blaðið fór í prentun voru þeir Trausti og Ingi að tefla bið- skák. Annað kvöld veröur 10. um- ferðin tefld. ; .Staðan er þá þannig: Tal er efst ur með 8Vz vinning. Gligoric er •næstur méð 8 vinninga. Friðrik þriðji 'ineð. 7:1-2, Þá er Johannessen með 6Vl, bf . hann vinnur skákina við Inga. Næstur er Ingi með 4 og biðskák við Trausta. Síðan koma þau Nona, Wade og Guðmundur með 4 vinninga. Þá koma Ingvar, Magnós og Freysteinn með 3 vinn inga hyer. Trausti með 2Vá og bið- skðk við Inga og Arinbjörn með 2VSs. Jðn Kristinsson. er með lVá. Drukknaði í áveituskurði Reykjavík, 27. jan. - GO. Sigurður ívarsson bóndi i Meðalholtshjáieígu í Glaum- bæjarlireppi hvarf skyndilega í gærmorgun er hann var aö gegningum í fjósi með bróður sínum. Upp úr liáceginu var farið að óttast um feann og þegar eftirgrennslanlr á næstu bæjum báru ekki árangur, var leitað til lögreglunnar á Sel- fossi og hjálparsveitar skau-, í Hafnarfirði. Nonni, sporhundur hjálpar- sveitarinnar fann slóð sem virtist liggja að straumliörð- um og djúpum skurði, sem rerinur um túnið neðan við bæ- inn. Þar sem dimmt var orð- ið og áliðið dags, var ekki að- hafzt meira, en í morgun fór hjálparsveitin austur og liafði með sér tæki til að slæða í læknum. Síðdegis í dag fannst svo lík Sigurðar í þessum læk. Sigurður var einhleypur mað- ur, 36 ára gamall, og bjó i Meðalholtslijáleigu með bróð- ur sínum og móður þeirra aldraðri. Skurðurinn, sem Sigurður drukknaði í var áður lækur, en var grafinn upp í sambandi við Flóaáveituna. Hann er mjög djúpur og straumliarður og fellur í vatn, sem er neðar í Flóanum. Forn álög eru þau á læk þessum, að í honum eigi 20 menn að drukkna. Myndin var tekin í morgun, þegar hjálparsveitarmenn voru að byrja að slæða lækinn, sem líkið fannst síðan í. — Mynd: JV. DRUKKNAÐÍÍ KVERNÁRSÍKI HVtlWWMWMMWMWWWWWimWMWWIWVMWMWIWWWWWWWWWWtMMIWWWWIIM Grafarnesi, 27. jan. SH-IIP. Aðfaranótt síðastliðins laugar- dags varð banaslys skammt frá Grafarnesi i Grundarfirði. Ungur maður, Lýður Lárusson frá Kirkju felli í Grundarfirði, drukknaði, er bíll hans fór út af veginum við brúna yfir Kvemársíki og lenti ofan í djúpum hyl. Þegar bíllinn náðist upp, var Lýður örendur. Slysið varð milli kl. 5-6 aðfara- nótt laugardags. Lýður þurfti að láta draga bíl sinn, sem var lítill Renault, árgerð 1946, nokkurn spöl, og lá leiðin yfir brúna á svonefndu Kvernársíki. Ekki er alveg Ijóst, livernig það vildi til, að bíllinn fór út af, en talið er, að þegar hinn bíllinn var kom- inn á brúna, hafi bíll Lýðs lent á brúarstólpanum og hrapað við það ofan í hylinn, þar sem hann lenti á hvolfi. Fór hann í kaf, en hylurinn mun vera nær 2 metrar á dýpt. Var þegar í staS reynt að ná ýýS út úr bílnum, en það tóícst ékki, ,Var þá fenginn bíll frá, 'Grafai-nesi til að ná fólks- bílrium upp„ en þá var Lýður lát- Frb. á 4. síðu. Reykjavík, 27. jan. - KG. Umboðsmenn Morris bíianna hér á landi Þ. Þorgrímsson og Co. bmgðu skjótt við eft- ir að úrslitin í Monte Carlo keppninni urðu kunn. Sigur- vegarinn í þeirri keppni ók í Morris Cooper «g var blaða mönnum í dag boöið að sjá einn slíkan leika listir sínar á einni af flugbrautunum í Reykjavík. Það var Sverrir Þórodds- son, sem ók bílnum og fengu blaðamenn að sitja í bílnum eina ferð hver og sannfærast um, að þó að duglega væri gefið í á beygjum, þá kom bíllinn alltaf á réttum kili úr þeim, og fullyrti Sverrir, að á sléttum brautum væri ekki liægt að hvolfa honum. Morris Cooper eða Mini Cooper er einn af hinum svo Framh. á 4. siðu STJÓRNARKJÖR f DAGS- BRÚN, IÐJU OG ÞRÓTTI Reykjavík, 27. jan. ÁG. UM helgina fór fram stjórnar- kosning í Verkamannafélaginu Dagsbrún. A-Iistinn, borinn fram af stjórn og trúnaðarmannaráði hlaut 1295 atkvæði og alla menn kjörna. B-listinn, bovinn fram af Birni Jónssyni og fleirum hlaut 465 atkvæði. Atkvæði greiddu 1789. Gildir .seðlar voru 1760, 28 voru auðir og 1 ógildur. A-listinn hlaut sam- tals 73.6% greiddra atkvæða, og er stjórnin öll endurkjörin. í fyrra greiddu 2019 atkvæði. Þá fékk A- listinn 1389 atkvæði, eða 68.8% og B-listinn 630 atkvæði, eða 31.2%. Þá fór einnig fram stjórnarkjör í Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík. Þar voru þrír listar, A- listi (kommúnistar), B-listi, (stjórn og trúnaðarmannaráð) og C-listi (framsóknarmenn). B-listinn hlaut 798 atkvæði og alla menn kjörna. A-listinn fékk 282 atkvæði og C- listinn 191 atkvæði. Kjörsókn var m unminni en í fyrra. B-listinn bætti við sig 1% atkvæða, en A- listinn tapaði sama magni. B-list- inn lilaut nú 61.5%, A-listinn 21,- 7% og C-listinn 14.5%. Þriðja stjórnarkjörið, sem fram fór um helgina, var í Vörubíl- stjórafélaginu Þrótti. Þar missti gamla stjórnin völdin en ný tekur við með Sigurð Sigurjónsson í for mannssætinu. Tveir listar buðu fram, A-listi stjórnarinnar og B- listi Sigurðar Sigurjónssonar. B- listinn lilaut 101 atkvæði og alla menn kjörna, en A-listinn 98 at- kvæði. Undanfarin 4 ár hefur Ein- ar Ögmundsson verið form. fé- lagsins. Kópaskeri, 26. jan. SV-HP. 19. þessa mánaðar var Sigv'aldi Jónsson, bóndi í Garði í Keldu- liverfi, að sækja sand út að sjó. á bíi sínum, sem er gamall vöru- bíll með tvöföldu húsi. Fór hann út á svokallaðan Sand í grennd við bæinn Arnarnes í þessil skyni. Með honum i bilnum voru þrjú börn hans. Á lieimleiðinni lá leið Sigvalda mcð lilaðinn bílinn yfir gamlan árfarveg, sem vatn hafði staðið uppi i, þegar þar tók að frjósa fyrir alllöngu. Síðan hafði þiðn- að, og var ísinn því ekki éins traustur og Sigvaldi ætlaði, þeg- ar hann ók út á ísinn í góðri trú. Skyndilega brast ísinn undan bílnum og hann tók að sökkva. Sigvaldi brá þá skjótt við og tókst að bjarga börnunum út um glugg- ann og upp á skörina off. komst loks sjálfur á eftir. Þegar bíllinn stöðvaðist í botni, voru allar rúð- ur komnar í kaf og toppurinn einn upp úr, svo að ljóst er, að ekki mátti tæpara slanda, að Sig- valdi bjargaði sér og börnum sínum. Þau gengu síðan heim að Arn- arnesi, en fljótlega var fenginn kranabíli frá Kópaskeri til að draga bílinn upp. Tal er nu efstur

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.