Alþýðublaðið - 13.05.1965, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 13.05.1965, Blaðsíða 15
Norrænt skólamót haldið hér í sumar Reykíjavik, 11. maí ÓTJ. Um sjö hundruð kennarar frá hinum Norð'urlöndunum taka þátt I norrænu skólamóíi sem haídjð verður í Reykjavík dagana 22. til 24- júli* Að meðtöldum þátttak endum héðan munu því að öllum líkindum sitja mótið um 1000 manns. Norrænt skólamót var haldið fyrst árið 1870, þá í Gautaborg og var þá ákveðið að halda slíkt mót fimmta hvert ár. Styrjaldir og önnur atvik hafa valdið því að ýmist varð að fella niður mót in eða fres+a þeim, en hefur þó gengið slysalítið eftir heimsstyrj Bldina síðari. Á skólamótum þess um er fjallað um þau. mál sem efst eru á baugi hverju sinni í skóla- og uppeldismálum, og að þessu sinni verður höfuðviðfangs efnið: þróun í uppeldi og kennslu. á Norðurlöndum. Margt merkra erinda verður flutt á mótinu, og verða þau gefin út í bókarformi að því loknu og send þátttakend um. Undirbúningi norrænu skóla mótanna er þannig hátbað að | formaður Helgi Elíasson, fræðslu málastjóri, dagskrárnefnd, for- stjórnir kennarasambanda við-1 maður Magnús Gíslason, náms- komandi landa tilnefna menn í undirbúningsnefnd, ásamt yfir- stjórn fræðslumála, lands þess er mótið er haldið í, svo og borgar stjórn þeirrar borgar, sem mótið fer fram í- Starfar nefnd síðasta móts, þar til ný hefur verið vaiin í samræmi við þetta hafa átján menn verið tilnefndir í íslenzku undirbúningsnefndina. Fjórir af Menntamálaráðuneytinu, þrír af Reykjavíkurborg, fimm af Sam- bandi ísl. barnakennara og einn af sambandi Menntaskólakennara Undirbúningur hefur þegar stað ið í ein tvö ár, enda veitir ekki af, þar sem þarf að fá húsnæði fyrir 330 manns. Hinir erlendu fulltrúar koma með þýzku skipi sem leigt verður til ferðarinnar, og búa um borð í því. Nefndirnar er sjá um framkvæmd og tilhögun mótsins eru þrjár: Það er framkvæmdanefnd, Athugasemd frá Áka Jakobssyni Út af hinni furðulegu fréttatii- kymiingu embættis Saksóknara ríkisins varðandi ákæru á hendur Jósafati Arngrímssyni o.fl. tel ég mjg knúinn til að taka það fram að Jósafat var ekki verktaki að verkum þeim sem málið hefur snúizt um. Þær nafnritunar ..falsanir" sem áttu sér síað eru framkvæmdar vegna bókhald-hagræöingar hjá liinum bandarísku aðilum, vegna strangra reglugerðarfyrirmæla, samkvæmt einstökum fyrirmælum þeirra hverju sinni, framkvæmd á skrifstofum viðkomandi stofn- ana á 'Keflavíkurflugvelli, og allar ávísanir og skjöl undantekníngar- laust undirrituð og staðfest af hin um bandarísku forstjórum við- komandi stofnana. Nafnritanir þessar voru með fullri vitund og samkvæmt fyrir- mælum hinna bandarísku yfir- manna stofnana þessara- „Nafn- ritanafal:anir“ þessar voru ekki notaðar í neinum samskiptum manna á meðal, heldur eingöngu sem bókhaldsgögn hinna banda- rísku stofnana. Enginn fjárdráttur eða fjár- svik áttu sér stað í sambandi við þetta mál, enda hafa engar kær- ur borizt um slíkt og saksóknar- embættið verður að viðurkenna þessa staðreynd vegna þess að það treystir sér ekki til að hafa uPPi fjársvikaákæru í máli þessu- Saksóknarembættið sparaði all- ar yfirlýsingar og fréttatilkynn ingar til blaða s. 1. vetur, þegar Jósafat Arngrímsson var af nokkr um dagblöðum borinn sökum um milljónatuga króna fjársvik, á meðan hann sat í gæzluvarðhaldi og gat ekki borið hönd fyrir höf- uð sér. stjóri, og gestanefnd, forliaður, Ingi Kristinsson, skólastjóri. Það er rétt hjá Þjóðviljanum að rannsóknardómarinn hefur forðazt að beina rannsókn sinni að hinum bandarísku aðilum, sem fyrirskipuðu þessar „falsanir”. í sambandi við þetta Keflavík urmál vil ég taka þetta fram. Mál þetta var hafið með slíku offorsi af hálfu saksóknaraembættisins og rannsóknardómarans 'að menn héldu að hér væri um stórfellt fjársvikamál að ræða. Hin mikla rannsókn sem vafalaust kostar nú þegar mörg hundruð þúsund krónur, leiðir hins vegar í ljós að engin fjársvik eða fjárdráttur hefur átt sér stað, og ennfremur leiðir rannsóknin í ljósf að gæzlu varðhaldsúrskurður yfir 3 mönn- um var algerlega ástæðulaus, enda einn gæzluvarðhaldsfanginn ekki einu sinni ákærður. Það er rannsóknarefni hvernig þetta svokallaða Keflavíkurmál er uppkomið- Mér virðist mikil þörf á að rann'-akað verði hvert er upphaf þessa máls, einkum ineð tilliti til Þess að réttarör- ýggi í landinu er 1 hættu ef háegt er að setja í gang refsivörzlu- stofnanir þióðfélagsins af annar- legum ástæðum. Út af ákæru í tékkamáli ísfélags Keflavíkur skal fram tekið að þar liggja ekki fyrir neinir tékkar sem gefnir hafa verið út án lieim ildar’ opinberrar lánastofnunar, enda það staðfest í framlialdsrann sókn- Enginn þessara tékka var gef- inn út af Jósafat Ai’ngrímssyni. Engar upplýsingar liggja fyrir í máli þessu um fjárhagstjón af útgáfu þessara tékka. Áki Jakobsson, hrl. Breytingartillaga við handritamáiið DANSKI þingmaðurinn og pró- fessorinn dr. Bprge Diderichsen hefur borið fram breytingartil- lögu á handritafrumvarpinu þess efnis, að sú grein þess er fjallar um afhendingu Sæmundar-Eddu og Flateyarbókar falli niður. Handritafrumvarpið verður tekið til annarrar umræðu á d-anska þinginu í dag, og fer þá fram atkvæðagreiðsla um breyt ingartillögu Diderichsens. í samningaviðræðum þeim sem fram fóru milli Dana og íslend inga um handri'amálið 1961, var það ófrávíkjanlegt skilyrði af ís lendinga hálfu að Sæmundar— Edda og Flateyjarbók yrðu af- hent- Happdrætti háskólans Reykjavík 10. maí Mánudaginn 10. maí var dreg ið í 5- flokkj Happdrættis Há- skóla íslands. Dregnir voru 2.100 vinningar að fjárhæð 3,920.000 kr. Hæsti vinningurinn, 200.000 kr- kom á heilmiða númer 51.939. Voru báðir lieilmiðarnir seldir í umboðinu í Stykkishólmi. 100 000 kr. komu einnig á heil miða númer 33.751 sem voru báð ir seldir í umboðinu í Keflavík. 10.000 kr- 244, 2230, 7250, 7810, 7894, 10552 13777, 14420, 14652, 16999, 18037 21082, 25075, 28955, 29952, 35346 36361, 37175, 41186, 43641, 45991 48142, 50849, 52562, 52673,’ 59968. Stórgjafir til Kirkjubæjar Nýverið afhenti prestur Óháða safnaðarins í Reykjavík, séra Em il Björnsson, safnaðarstjórninni að gjöf ti-1 kirkju safnaðarins kr. 88.000 krónur frá safnaðarkonu sem ekki vill lá'a nafns síns getið Minnist hann þess jafnframt að á liðnum vetri hefði kirkjunni hor izt önnur stórgjöf eða um 80000 kr- sem varið var til framkvæmda við kirkjuna. Sú gjöf var einnig frá safnaðarkonu, sem ekki vildi láta nafns síns getið að svo stöddu Presturinn kvað nú mega skýra frá því að þá gjöf hefði Guðrún Þorgeirsdóttir Grettisgötu 60 gef j ið kirkjunni, en Guðrún er nú nýlátin. Hún var gjaldkeri í Kven félagi Óháða safnaðarins í mörg ár, en Það félag hefir jafnan^ unnið að óvenjulegum dugnaði' og fórnfýsi að fjáröflun til áð. byggja kirkju safnaðarins og búaj hana sem veglegasta á allan háttj eins og raun ber vitni. Geta má þess í því sambandi að Kven'élag, Óháða safnaðarins hefir hazar |L safnaðarheimilinu Kirkjubæ ái sunnudaginn kemur, (16. maf) tflf ágóða yrir starfsemi sina til efl- ingar kirkjunnar. j SMURT BRAUÐ Snittur. Optð frá kl. 9—23.30. Brauðstofan Vesturgötu 28. Sími 16012 SÆNGUR REST-BEZT-koddar Endurnýjnm gimln sængnrnar, elgum dún- og fiðurheld ver. Seljum æðardúns- og gæsadúnssængnr — og kodda at ýmsum stærðum. DUN- OG FIÐURHREINSUN Vatnsstíg 3. Sími 18740. IVBADAIVSE BUTTERFLY SÍÐASTA verkefni Þjóðleik- hússins á þessu leikári er óper- an Madame Butterfly eftir Gia- como Puccini, og verður hún frumsýnd þann 3. júní n. k. Æf- ingar á óperunni eru nú í full- um gangi og kom sænski leik- stjórinn Leif Söderström til landsins fyrir nokkrum dögum til þess að stjórna æfingum á óperunni. Leif Söderström er ungur maður, aðeins 27 ára að aldri og er nú fast ráðinn leik- stjóri við Óperuna í Stokk- hólmi. Hljómsveitarstjóri verður Nils Grevillius, en hann liefur verið aðalhljómsveitarstjóri við Stokkhólms óperuna í nær því 30 ár og er mjög þekktur maður í sinni listgrein. Auk þess hefur hann verið hljóm- sveitarstjóri á ýmsum óperu- húsum víðsvegar í Evrópu. Aðal kvenhlutverkið verður sungið af óperusöngkonunni Rut .Tacobsen frá óperunni í Gautaborg sem hefur oft sung ið þeita hlutverk áður. Rut Jae obsson er ung söngkona, sem hlotið hefur mikinn frama í list grein sinni á síðari árum. Guðmundur Guðjónsson syng ur annað aðalhlutverkið, en hann söng þetta hlutverk fyrir tveimur árum sem gestur í Ár- ósum og lilaut mjög lofsamlega dóma fyrir hjá dönskum gagn- rýnendum. Auk þeirra, sem að ofan greinir, syngja þau Guðmund- ur Jónsson og Svala Nílssen stór hlutverk í óperunni, en með minni hlutverk fara Ævar Kvaran, Hjálmar Kjartans, Sverrir Kjartansson o. fl. Óperan Madame Butterfly, er sem kunnugt er eitt af höf- uðverkum ítalska tónsnillings- ins Giacomo Puccini. Tvær þekktar óperur hafa verið sýnd ar eftir hann hér á landi: Tos- ca, sem var flutt á vegum Þjóð- leikhússins árið 1957 með Stefáni Islandi og Guðrúnu Símdnardóttur í aðalhlutverk- um, og La Boheme, sem einn- ig var flutt í Þjóðleikhúsinu og stóð Félag íslenzkra einsöngv- ara að þeirri sýningu. Leiktjöld eru gerð af Lárusi Ingólfssyni. Myndin er af höfundi Óper- unnar. IMHHHMMMHMMMMMMMHMMHMMMW4 MWWMMWWMMMMMMWWMMWMMWW ALÞÝ0UBLAÐIÐ — 13. maí 1965 15

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.