Alþýðublaðið - 24.11.1965, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.11.1965, Blaðsíða 4
Hltstjórai: Gylfl Gröndal (éb.) og Benedikt Gröndal. - Rltstjórnarfull- trúl: Eiður Guðnason. — Símaix 14900 - 14903 — Augiíf'singasími: 14906. ASsetur: Alþýðuhúsið vlð Hvcrfisgötu, Reykjavik. — Prentsmiðja Alþýðu- blaðslns. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 elntakið. Utgefandl: Alþýðuflokkurinn. KJARNl MÁLSINS DEILURNAR um bæjiarfógeta- og sýslumanns- embættið í Hafnarfirði hafa vakið umræður um, hve lengi menn megi vera isettir í em'bætti án þess að þeir eða aðrir fái skipun. Er komið fram á Al- þingi frumvarp um að menn skuli ekki verá settir lengur en fjögur ár. Hefur sú hugmynd fengið góð- ar undirtektir, að ókveðnar verði fastar reglur um þetta efni. Hér er í rauninni um mjög alvarlegt mál að ræða, og kemur fleira við sögu en réttlæti gagnvart þeim, sem settir hafa verið í embætti um lengri tíma. Kjarni málsins er sá, hverjir geti verið ráð- herrar á Islandi. Ráðherraembætti eru ekki tímabundin. Enginn veit, hve lengi hann verður ráðherra, ef hann er til þess kallaður. Af þessum sökum hefur um áratugi ríkt sú venja á íslandi, að menn hafa fengið leyfi frá störf- um sínum til að gegna ráðherraembætti, og hafa fengið störfin aftur, þegar ráðuneytistíma lauk. Þetta hefur reynzt óhjákvæmilegt. Er ekki of mikið að krefjast þess, að menn fórni lífsstarfi sínu fyrir stutta setu í ríkisstjórn? Ef svo ætti að vera, mundu aðeins ríkir menn geta verið ráðherrar — eða þeir fáu flokksforingjar, sem láta flokka sína greiða sér fuli laun, þegar þeir eru ekki ráðherrar. Hingað til hafa langflestir fengið frí frá störf- um, er hafa tekið sæti í ráðuneytum. Jóhann Haf- ■stein hefur frí frá Útvegsbanka ísiands, Magnús Jónsson frá Búnaðarbankanum og Emil Jónsson fná Landsbankanum. Hannibal Valdimarsson fékk frí sem skólastjóri á ísafirði og Lúðvík Jósefsson sem útgerðarforstjóri í Neskaupstað, er þeir urðu ráð- herrar'. Steingrímur Steinþórsson fékk* frí sem bún- áðarmálastjóri, og Hermann Jónasson frí sem lög- fræðingur Búnaðarbankans, meðan þeir sátu í stjóm. Þannig mætti lengi telj*a. Venjulega hefur tími hvers ráðuneytis verið að- eins 2—3 ár. Nú hefur viljað svo til, að Guðmund- ur í. Guðmundsson var utanríkisráðherra í þrem ráðuneytum í röð í 9—10 ár og því kemur þétta mál upp í sambandi við eftirmann hans. En eðli málsins er hið sama og hjá fjölmörgum öðrum ráð- herrum úr öllum flokkum. < Reynsla hefur nú sýnt,ihversu erfitt þetta vanda þiól getur orðið. Er nauðsynlegt að finna á því sanngjarna lausn vegna allra aðila. En æskilegt ýæri áð setja reglur þanhig, að fleiri geti orðið ráð- herrar á Islandi en auðmenn og atvinnupólitíkusar. 4 24. nóv. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ SVEINN SKORRI HÖSKULDS- SON hefur tekið saman mikið rit verk um Gest Pálsson. Það er kom ið út hjá Menningarsjóði í mynd arlegri útgáfu og er heimildarrit um þennan hugkvæma rithöfund og baráttumann, að minnsta kosti. hefur Sveinn Skorri safnað saman úr öllum áttum heimildum um skáldið og gögnum um ævi þess, áhrif, sem það varð fyrir og rök in að sögum þess og ljóöum. GESTUR PÁLSSON var einn allra fyrsti íslendingurinn, sem taldi sig vera jafnaðarmann, sósí alista, sagði það opinberlega og skrifaði í þeim anda. Hann var ekki við eina fjölina felldur, allt af glæsilega búinn, hofmannlegur í framkomu, selskapsmaður og all mjög drykkfelldur. En réttlætis kennd hans var rík og hugrekki hans mikið, enda réðst hann gegn kúgun og spillingu í Reykjavík, eins og fyrirlestur hans: Lífið í Reykjavík og bæklingurinn um blautfiskverzlun og bróðurkær- leika bera með sér. ÞAD ER MIKIÐ af fróðleik að finna í þessu ritverki, en mér finnst það nokkuð losaralegt. En vel þekkir maður Gest eftir lest urinn og einnig það tímabil, sem hann starfaði á og lifði í. DALMANN SKRIFAR: „Snemma í þessum mánuði, flutti bóndinn í Villingadal í Eyjafirði erindí í Út varp!ð, og ber öllum sem ég hefi rætt við um það, saman um að þetta hafi verið eitt skemmtiiegasta erindi er flutt hefur verið í Útvarp ið í liáa hen-ans tíð. Sumir kveða svo sterkt að orði, að annað eins erindi hafi ekki verið flutt þar siðan Hjörvar flutti þar sitt fræga erindi: „íslandsráðherra í tukthús*. MER ER SAGT að bóndinn í Viilingadal sé albróðir þess, sem fékk fyrstu verðlaun í keppninni: „Þegar ég var seytján ára“, þar sem 148 erindi bárust. Nú vil ég SP.vria Útvarpsráð, hvort það hafi verið kannað, hvort þessir snili ingar kunni ekki að eiga í fórum sínum eitthvað fleira gott, handa ooo<x>oooo<xx><xxx Blaðburður ALÞÝÐUBLAÐIÐ vantar blaðburðarfólk í nokkur hverfi í Reykjavík. Þar á meðal eru þrjú stór íbúöar hverfi. Blaðið beinir því hér til foreldra stálpaðra barna, að þeir hlaupi nú undir bagga með blaðinu osr leyfi börnum sínum að bera það út. Umrædd hverfi eru þessi: MELAR LAUFÁSVEGUR LINDARGATA Auk þess vantar blaðburð arfólk á Seltjarnarnesi svo og í miðbæinn, Laugavegr og Hverfisgötu. iOOOOOCKXXXXXXKió ÍÓOOOOÖOOOOOOOOOOOOOOÖ0000000000=1 Fyrsti jafnaðarmaðurinn. Gestur Pálsson, höfundur og baráttumaður. Réttlætiskennd og hugrekki. Leitar útvarpsráS nógu vel? OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÖO í ÞESSU SAMBANDI flaug mér í hug, að sumir beztu ritsnilling ar landsins koma sjaldan eða jafn vel aldrei fram í Útvarpinu. Senni lega vegna þess, að þeir eru bú settir utan Reykjavikur og ekki leitað eftir því, að þeir láti eitt hvað af hendi rakna. Einn a£ mestu ritsnillingum landsins er Steinþór í Hala (Þorbergsbróðir) Ég minnist þess ekki, að hafa heyrt til hans í Útvarpinu. Og sama er að segja um Björn Egils son, Skagfirðing, sem skrifar fag urt mál. ★ ★ ★ ★ hlustendum. Það væri sannarlega fyllsta ástæða til þess að kanna það mál, því að ávallt ber að bjóða hlustendum það bezta og skemmtilegasta sem völ er á. iinangrunargter FramleHt elnnngis fi érvalsglert — S ára ibyrtft PantlÖ timanleca. / Korkiðjan hf, Skúlagrötn 57 — Síœl *8S»t HEFUR VERIÐ leitað til þessara manna? Þá mun flestum bera sam an -urh það, að Karl Kristjánsson sé orðhagasti maðurinn, sem nú á sæti á Alþingi: Hann hefur að vísu komið fram í Útvarp- inu, en alltof sjaldan." SMURSTÖÐ1N Sætúni 4 — Sími 16-2-27 BUIlnn er smnrffnr fljótt og vel. SeUnm allar teguadir af smurolíu SOVÉZKAR frá V/0 AVIAEXPORT, Maskvu eru marg-prófuð úrval's flutninga og leit- artæki. Þyrluval: lallt frá smávélum til þyrlukrana, er flutt geta bifreiðir, þunga vinnuvélar og smáhýsi. — Upplýsingar: BORGAREY HF. Óðinsgötu 7. — Sími 20880. KÓPAVOGUR Böm eða unglingar óskast til að bera Al- þýðublaðið til kaupenda í Kópavogi. Upplýsingar hjá útsölumanni í síma 40319.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.