Vísir - 01.02.1960, Blaðsíða 1

Vísir - 01.02.1960, Blaðsíða 1
P<1. árg. Mánudaginn 1. febrúar 1960 25. tbl. Hér sést annað aftalgötuvígið, sem uppreistarmenn gerðu sér í Algeirsborg. Byggingin til til hægri er aðalpósthús borgarinnar. Frönsku hersveitirnar eru að koma á regiu í Algeirsborg. Raðir byltingarmanna þynnast, almenningur hlýðir hernum. Frönsku hersveitirnar í Al- geirsborg eru nú að koma þar á lögiun og reglu og er von manna, að það takist án blóðs- úthellinga. Fólk er nú farið að hlýðnast fyrirmælum hersins, menn famir að yfirgefa raðir hinna frönsku uppreistarmanna en rafmagnsstraumurinn til bygginga þeirra, sem þeir hafa á sínu valdi, var rofinn í gær- kvöldi. í gæi'kvöldi höfðu um 180 menn yfirgefið raðir þeirra, en tilkynnt hafði verið áður, að allir varaliðsmenn væru kvadd- ir til vopna, og þar með bundnir manna. Uppreistarleiðtogarnir Ortiz og Lagaillarde ávörpuðu mannfjöldann, og höfðu menn sig að lokum á brott, að því er virðist fyrir þeirra orð, en Laga- illarde bað menn fjölmenna aft- ur að morgni, og beindi einkum orðum sínum til kvenna, að koma og mynda vegg við virki uppreistarmanna, en þær 'urðu ekki við þeim tilmælum í gær- morgun. Allmikill mannfjöldi safnaðist þó saman í gær, en frönsku hersveitirnar höfðu fengið liðsstyrk, og menn fóru að sannfærast um, að herinn mundi standa óskiptur með De upreistarmanna, allir vopnaðir vélbyssum. í gær fyrirskipaði Crepin hershöfðingi hersveitunum í Alsír, að allsherjarverkfallinu skyldi aflétt, sölubúðir opnar og skólar. Hann tilkynnti jafn- framt, að allt yrði gert sem unnt væri til þess að koma á reglu án þess að til blóðsút- hellinga kæmi. Tilkynnt var í morgun, að rúmlega 30 hermenn hefðu fall- ið og álíka margir særst í bar- dögum við serkneska uppreist- armenn utan Algeirsbogar. Var svo til orða tekið, að ef til vill væru þeir, sem fallið hefðu enn á lífi, ef ekki hefði orðið að veikja varnir annarsstaðar, vegna byltingartilraunar af- vegaleiddra félaga þeirra. í dag verður einnar klukku- stundar vinnustöðvun í Fakk- landi til stuðnings við De Gaulle og stefnu hans varðandi Alsír og taka 15 milljónir manna þátt í henni. Eru verka- lýðsfélög landsins þátttakandi í þessum samtökum, opinberir starfsmenn og námsmenn, alls um 15 milljónir manna. Má af þessu marka, að De Gaulle hefur frönsku þjóðina að kalla einhuga að baki sér, að því er Alsír varðar. í París og víðar í Frakklandi hqfa verið handteknir um 80 menn, sem ákærðir verða fyrir að hafa smyglað vopnum til serkneskra uppreistarmanna. Síðari fregnir herma, að í mprgun hafi fólk í Algeirsborg flykkst til vinnu sinnar og þar Framh. a 7. síðu. heraga. Fyrir helgina voru horfur ískyggilegar. Múgur manns safnaðist saman og þrengdi sér gegnum raðir her- Gaulle, að undanteknum þeim hermönnum, sem fylgdu Laga- illarde og Ortiz. Hermennirnir þrengdu hringinn um virki Lækkað hefur í Gríms- vötnum um 50-60. m. Mikið hefur lækkað í Gríms- vötnum, að því er Björn Pálsson flugmaður hefur tjóð Vísi, en hann flaug austur yfir þau á föstudag- inn. Björn telur að lækkað hafi í þeim sem nemur 50—60 metrum og jafnframt að fullrunnið sé úr þeim. Mikil um- brot hafa orðið á jöklinum v i ð Grímsvatnagíg- inn og , geysi- stórar sprunguv myndast víða. Ef að líkum lætur tekur það nokkur ár unz hækkað hefur svo að nýju í Grímsvötnum að hlaups sé að vænta úr þehn. Paturson getur ekki samiií um kaup og kjör á íslandi. Afstaða Patursons vekur mikla Við getum enga samninga gert við Erlend Paturson um kaup og kjör Færeyinga á íslenzkum fiskibátum. Hann virðist ekki geta skilið það, að hann er ekki | fiðili að kjarasamningum á ís- landi. Það eina sem við getum samið um við liann er ráðning Færeyinganna til íslands og um fyrirgreiðslu þeim til handa, sagði talsmaður L.I.Ú. i morgun. Hingað verða engir Færey- ingar ráðnir, nema með sam- þykki íslenzku sjómannafélag- anna og verði ráðnir hingað menn verða þeir ráðnir með þeim kjörum sem íslenzku sjó- mannafélögin’ hafa samið um fyrir sig, enda njóta þá hinir erlendu sjómenn kjara og rétt- inda sjómannafélaganna. Erlendur Paturson hefur ekki svarað bréfi því sem L. í. Ú. skrifaði honum og birt var í útvarpi og dagblöðum s.l. laug- ardag. Hinsvegar hefur verið haft eftir honum í blaðaviðtali að hann mfyndi senda okkur nýtt tilboð. Svo var að heyra á talsmanni L.Í.Ú., að ef Paturson gæti ekki Hertogaynjan af Segoviu, fyrrverandi söngkona Car- lotta Thiedemann, hefur sótt um skilnað frá manni sínum, Don Jaime, elzta syni Alfonsar XIII. Spánar- konungs. Hún segir liertog- ann hafa yfirgefið sig. furðu. fallið frá þeirri skoðun sinni að hann væri samningsaðili uni kaup og kjör hér væri í raun- inni ekkert við hann að tala. Afstaða hans tii þessara mála vekur vægast sagt mikla furðu, ekki aðeins meðal íslendinga heldur og hjá Fæfeyingum, sem hér eru. Annars verður úr þessu skorið á næstunni. Færeving- arnir verða að gera það upp við sig sjálfir hvort þeir vilji róða sig hingað fyrir þau kjör sem þeim bjóðast og sjómanna- félögin hér hafa samið unv sagði fulltrúi L.Í.Ú. Vantar konu nr. 13. Glynn Wolfe, hóteleigandi í HoIIywood, er ekkert að erfa það við konur sínar þótt þær hlaupi frá honum og huggar sig við þá staðreynd sem á íslenzku hljómar svo: alltaf má fá annað skip og annað föruneyti. Hann mætti í rétti um daginn ásamt 12. konu sinni og tveim- ur fyrrverandi sem hann hafði skilið við til að vitna með 10. konu sinni í skilnaðarmáli gegn D. Espy, sem hún giftist eftir að hún skildi við Glynn. Aumingja Glynn er samt ekki bjartsýnn á framtíðina, því hann. sagði við blaðamenn. „Eg hefi enga /undið sem vill verða kona númer 13“. Mikill afli í janúar. Fyrsta mánuði vetrarvertíðar er lokið. Fyrrihluta janúar- mánaðar var yfirleitt mikill. afli, eftir því sem gerizt svo snemma á vertíð, en mikið hef- ur dregið úr honum síðustu viku mánaðarins, enda voru gæftir há verri og afli minni í hverjum róðri. Ekki hafa borizt fréttir úr öllum vertöðvum um heildar magnið, en allt bendir til að það sé meira en í janúar í fyrra. Frá Sandgerði gengu 15 bát- ar og bárust þar á land 1802 lestir í 232 róðrum, er það allt miðað við óslægðan fisk. í fyrra var janúaraflinn 1554 lestir í 227 róðrum. Almennt voru farnir 19 róðrar í mánuðinum. Aflahæstu bátarnir eru: Víð- ir 2. 183 lestir, Guðbjörg 173, Muninn 161, Hamar 153, Smári 151. Afli Grindavíkurbáta er einnig meiri og hið sama er að segja um báta frá Keflavík. í fyrra bárust á land í Grinda- vík 900 lestir en nú er aflinn 1200 lestir. Frá Grindavík ganga 23 bátar. Róðrar hófust fyrr þaðan í ár en í fyrra og á það sinn þátt í auknum afla, en yfirleitt voru aflabrögðin betri sérstaklega framan af en upp á síðkastið hata þau verið léleg.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.