Tölvumál - 01.01.1979, Síða 3

Tölvumál - 01.01.1979, Síða 3
TÖUVUMAL 3 Skýrslutæknifélagið fagnar því aö frumvarp um persónu- gagnalöggjöf komist brátt til umfjöllunar Alþingis, enda hefur félagiö á undanförnum árum hvatt til þess, aö lög verði sett um verhd persónugagna. .. Skýrslutæknifélagiö er samþykkt ákvæðum frumvarpsins í mörgum megin atriöum en ósamþykkt í öörum svo sem aö neðan greinir. Aö neðan veröa gerðar almennar athugasemdir um þau ákvæöi frumvarpsins, sem félagið telur aö þurfi breytinga viö. Breytingatillögurnar eru ekki rökstuddar að neinu marki en forsendur þeirra taldar augljósar, þeim er til þekkja. Skýrslutæknifélagið telst í megin atriðum samþykkt þeim ákvæöum frumvarpsins, sem ekki veröur getið sérstaklega um. Almenn atriði Unniö verði aö því að einfalda frumvarpið að því marki að það nýtist skráningar- og úrvinnsluaöilum til leiðbein- inga í starfi. Sumar neðangreindra tillagna mundu reyndar veröa til styttingar og einföldunar. Lögin þurfa að mynda einfaldan en sterkbyggðan ramma um meðferð persónugagna. Helztu markmið löggjafarinnar þurfa að koma skýrar fram en í frumvarp.inu. Þykir framsetning Youngernefndarinnar bresku til fyrirmyndar (sbr. ' greinargerð III.,5): Youngernefndin setti fram ýmsar ábendingar og meðmæli, sem hafa haft mikil áhrif á tillögur víða um lönd. Hinar helstu þeirra eru þessar: 1. Líta skal svo á, að upplýsinga sé aflað í tilteknum tilgangi, og skulil þær eigi not- aðar í annars konar skyni án þess að leyfi sé til þess veitt af rétlum aðila. 2. Að- gangur að upplýsingum á að vera einskörðaður við þá, sem heimild hafa til þess að fá yitneskju um þær, og er þá hafður í huga sá tilgangur, sem réltlætti söfnun upplýsinga í öndverðu. 3. Þesá skal jafnan gadt, að eigi sé safnað viðameiri upp- lýsingum en tilgangur með söfnuninni í upphafi réttlætir. 4. Við söfnun upplýs- inga í þágu tölfræðiskýrslna skal þess gælt, að halda aðskildum persónuauðkennum fvá meginefniviðnum, sem til úrvinnslu er ætlaður. 5. Gera ber ráðstafanir til þess að skráður aðili fái vitneskju um skráninguna. 6. Gæta skal öryggisráðstafana eftir föngum af hálfu þess, sem til skráningar stofnar, gegn misnotkun skráðra upplýsinga. öryggiskerfi skal prófað öðru hverju með hæfilegum úrræðum. 7. Gæta skal þess, að uppiýsingar séu eigi geymdar lengur en um tiltekið tímabil, sem greint skal við formun á vinnsluáætlun. 8. Kosta skal kapps um, að upplýsingar, sem skráðar eru, sén réttar og traustar, og úrræði skulu tiltæk til leiðréttingar á rang- hermi eða ónákvæmni í upplýsingum og til að lagfæra upplýsingar í samræmi við breytingar í tímans rás; 9. Varað er við að skrá atriði, sem byggjast á gildismati. 11 Pers ónugagnaráð OrðiÖ "persónugagnaráö" komi í staö orðsins "tölvunefnd" (a.m.k. þar til betra orð finnst). f'ellt veröi niður ákvæðið (sbr. 40. gr. 1. málsgr. ) um að ráðið verði ríkisstjórninni til ráðuneytis um tölvu- malefni önnur en þau er lúta að meðferð persónugagna. Raöiö skal skipaö 5 mönnum kosnum til fjögurra ára £ senn. Kjosi sameinað alþingi 3 þeirra en dómsmálaráöherra skipi 2 þar af annan að fengnum tillögum Skýrslutæknifélags íslands.

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.