Tölvumál - 01.11.1986, Blaðsíða 20

Tölvumál - 01.11.1986, Blaðsíða 20
þess hyggst fyrirtækið hagnast á sölu kerfisins, en það er selt til bifreiðaverkstæða. Bókunarkerfi fyrir flugferðir Eitt kunnasta dæmið um notkun upplýsingakerfis er bókunarkerfi bandaríska flugfélagins American Airlines. Saga þessa bókunarkerfis, sem nefnist Sabre, hófst raunar þegar annað flugfélag vestanhafs United Airlines ákvað að freista þess að auka markaðshlutdeild sina hjá ferðaskrif- stofum. í Bandaríkjunum er annað hvert flugfar bókað af ferðaskrifstofum en eins og gefur að skilja eru þær allmargar. United lét i þessum tilgangi gera frumdrög að bókunarkerfi, sem gerði ferðaskrifstofum kleift að bóka ferðir flug- félagsins á skjá. Þetta kerfi tók einungis til ferða United sjálfs, enda töldu menn það alls ekki vænlegt til árangurs að fara að aðstoða ferðaskrifstofurnar við að bóka ferðir hjá keppinautum sinum. Gegn þessari hugmynd United átti American snjallan leik. Fyrirtækið lét hanna og setja upp bókunarkerfi fyrir öll helstu flugfélög i heimi. Til þess að skapa sér sérstöðu skráði flugfélagið þó sínar eigin ferðir efst á skjá eða blað. Þetta kerfi reyndist American vel. í því fundu ferðaskrifstofurnar hentugt tæki sem þær gátu notað til að bóka allar þær flugferðir sem þær þurftu. Með Sabre tók American Airlines ótvirætt forystu á þessu sviði og náði að auka talsvert markaðshlutdeild sina. Það er sennilega óþarft að taka fram að United Airlines endurhannaði i snarkasti sitt kerfi og breytti því í svipað horf og Sabre. Um tólf þúsund ferðaskrifstofur nota nú Sabre. Það er um helmingur allra ferðaskrifstofa i Bandaríkjunum. Fyrir hverja bókun, sem gerð er i Sabre þarf notandi að greiða um 70 krónur. Þetta er ekki hátt gjald i sjálfu sér. Þegar tekið er tillit til hins gifurlega fjölda af flugferðum, sem eru bókaðar með kerfinu verður heildarveltan þó ótrúlega mikil. Árið 1985 námu brúttótekjur 20

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.