Tölvumál


Tölvumál - 01.10.1994, Blaðsíða 10

Tölvumál - 01.10.1994, Blaðsíða 10
Október 1994 í tengslum við tungumálanám en tengist einnig öðrum greinum s.s. samfélagsfræði. Mörg þessara verkefna hafa tengst KIDLINK samskiptaverkefningu. Það er fyrir krakka á aldrinum 10 til 15 ára og til þess að geta gerst þátt- takendur í því þurfa nemendur að svara eftirtöldum spurningum: 1. Whoaml? 2. What do I want to be when I grow up? 3. How do I wantthe world to be better when I grow up? 4. What can I do now to make this happen? Þrír umsjónarmenn eru með þessu verkefni og er einn þeirra Islendingur, Lára Stefánsdóttir, kennslustjóri Islenska mennta- netsins. Innlend samskiptaverkefni Nokkur innlend samskipta- verkefni hafa litið dagsins ljós á Menntanetinu og það sem einna best hefur tekist er verkefni sem skipulagt var af tveimur skólum, öðrum í þéttbýli og hinum í dreif- býli. 1 því verkefni áttu nemendur að bjóða hvorir öðrum í sýndar- heimsókn og skipuleggja dagskrá fyrir heimsóknina. Hér gefur að líta brot af því sem nemendum við þessa skóla fór á milli og er við hæfi að þessu greinarkorni ljúki á tilskrifum þessara nem- enda: Þéttbýlisskóli "Borðum morgunverð og ljúf- fengan mat á Hótel Höfða í há- deginu. Förum í sund í Laugar- dalslauginni. Sullum lengi í heitu pottunum, gufunni og skemmtum okkur í rennibrautinni. Borðum Pizzur á Pizzahúsinu við Grens- ásveg í kvöldmatinn. Förum í bíó í Regnboganum um kvöldið og skoðum lífið í miðbænum í Reykjavík. Tökum strætó á hótelið.' Dreifbýlisskóli "V öknum kl. 9 og fáum morg- unmat. Spilum bob og borðtennis fram að hádegi. Förum á skíði í brekkunni hér fyrir ofan. Síðan er kaffitími og eftir það förum við í fjárhúsin. Þá er kominn kvöld- matur og þá fáum við slátur. Eftir kvöldmat förum við á músaveiðar til kl. 11. A síðustu músaveiðum káluðum við 6 stykkjum en fjár- húsin eru full af músum." Jón Eyfjörð er fram- kvœmdastjóri Islenska menntanetsins. Skýrslutæknifélag íslands veitir fyrstu viðurkenningu sína til kennara Á ráðstefnunni Tölvur og nám '94 veitti Skýrslutæknifélag íslands í fyrsta sinn viðurkenningu til skólamanna á sviði upplýsingatækni. Dómnefnd skoðaði hugbúnað sem einstaklingar og hópar hafa unnið að, fullbúinn eða á vinnslustigi og var margt áhugavert þar á meðal. Færri tækifæri voru hins vegar til að skoða dæmi um kennsluferli þar sem tæknin er eðlilega felld inn í námið en vonandi fer slíkum dæmum fjölgandi með hverju ári. Varðandi þann hugbúnað sem skoðaður var mátti greinilega merkja hve miklu máli styrkveitingar og annar stuðningur við einstaka kennara eða samstarfshópa hefur skipt og þyrftu að vera fleiri tækifæri fyrir þá að sækja um styrki til þess að geta tímabundið unnið í slíkum verkum. Við fyrstu veitingu viðurkenningar SÍ þótti dómnefnd skipta máli að vekja athygli á vinnubrögðum sem gætu orðið öðrum fordæmi, laðað fleiri að þessu sviði og hvatt kennara og aðra sérfræðinga til að vinna saman að uppbyggingunni. Eftir vandlega skoðun var ákveðið að veita að þessu sinni viðurkenninguna hópi sem kallarsig Tölvuvinafélagið. íviðurkenningarskjali segir: Með viðurkenningu sinni vekur Skýrslutæknifélag íslands athygli á því hvernig nota má upplýsingatækni til að bæta kennslu á öllum skólastigum. Árið 1994 er þessi viðurkenning veitt Tölvuvinafélaginu fyrir að koma á og efla víðtækt og langvarandi samstarf kennara víða að um skoðun, þýðingar, gerð, prófun og notkun hugbúnaðar. Flér er um að ræða brautryðjendastarf á þessum vettvangi. 10 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.