Vísir - 16.10.1962, Blaðsíða 5
V1SIR . Þriðjudagur 16. október 1962.
5
Haraldur Björnsson
heiðraður
Þegar Haraldur Björnsson varð
sjötugur var ein af þeim gjöfum,
sem hann fékk, mdlverk af hon-
um sjálfum gert af Sigurði Sig-
urðssyni listmálara. Að þessari
gjöf stóðu 4 aðilar, Þjóðleikhúsið,
Ríkisutvarpið, Félag íslenzkra leik-
ara og Leikfélag Reykjavíkur. Sig-
urður Sigurðsson listmálari lauk
nýlega við myndina og í tilefni
af því komu fulltrúar þessara fjög-
urra aðila saman heima hjá Har-
aldi Björnssyni í gær og afhenti
Guðlaugur Rósinkranz Haraldi
myndina fcrmlega með 'ræðu. Einn-
ig talaði Vilhjálmur Þ. Gíslason
Utvarpsstjóri og Haraldur Björns-
son þakkaði með ræðu.
Þegar VÍSIR innti Harald Björns-
son eftir myndinni í morgun
kvaðst hann mjög ánægður með
listaverkið og taldi myndina prýði-
lega gerða. Mér finnst koma mikið
fram í henni af mér, sagði Har-
aldur.
Er þetta fyrsta málverkið sem
málað hefur verið af yður?
Nei, danskur málari málaði
mynd af mér í því ágæta hlut-
verki Eiríks galta í „Fyrir kóngs-
ins mekt“ eftir Sigurð Einarsson
Þetta var mjög góð mynd, hún
var einu sinni til sýnis í Char-
lottenborg í Kaupmannahöfn
ásamt fleiri myndum sama málara
og fékk mjög góða dóma.
Má búast við að sú mynd komi
hingað?
Það er mjög erfitt að fá hana
keypta. Málarinn er Kirsten Kjær
og hún selur lítið, en ég vonast
samt til að ná henni hingað að
lokum.
Kjarnorkuvopn —
Skothríð
í gærkvöldi hringdi Reykvíking-
ur nokkur til lögreglunnar og
kærði yfir skothríð í' Bústaða-
hverfi.
Maður þessi kvaðst hafa verið á
kvöldgöngu ásamt konu sinni í
braggahverfinu hjá Bústöðum þeg-
ar hann heyrði allt í einu skot-
hvelli- og um leið taldi hann sig
hafa heyrt kúlnaþyt rétt við eyrun
á sér.
Lögreglan brá þegar við, fór á
staðinn og Ieitaði skyttunnar, en
án árangurs. Varð hún einskis vís-
ari.
í þessu sambandi má geta þess
að þetta er í annað sinn á skömm-
um tíma, sem kærð er skothríð í
Uthverfum bæjarins eftir að dimmt
er orðið af nóttu og má segja að
þetta sé óhugnanlegur leikur, ef
um raunveruleg skotvopn er að
ræða.
Missti handlegg
Prestur —
Framh at lb síðu:
Páls Sveinssonar yfirkennara.
Hann Iauk stúdentsprófi frá
" lenntaskólanum í Reykjavík
1949 og guðfræðiprófi árið
1957. Hóf Páll þá kennslu þar
til nú í haust að hann tók við
Víkurkalli.
Uppboð —
hamhald at 16. síðu:
hvert ánnað með stuttu millibili.
Á fyrsta uppboðinu -— bókaupp-
boðinu — verða seld ýmis merk
ritverk og einstakar fágætar bæk-
ur. Veigamesti fengurinn verður
Skírnir allur, elzta tímarit á Norð-
urlöndum, sem enn er við lýði, og
er hann í samstæðu skinnbandi til
ársins 1935. Þá eru Almanök Þjóð-
vinafélagsins frá upphafi, einnig
bundin til og með 1935. Ennfremur
eru þar Almanökin 1861 — 75, er
kennd voru almennt við Jón Sig-
urðsson.
Af öðrum bókum má nefna Sá
nýi yfirsetukvennaskóli, prentaður
á Hólum 1749, en eintak af þeirri
bók fór á geypiverði á uppboði hjá
Sigurði s.l. vetur. Einnig er þar
Kennslubók handa yfirsetukonum
í þýðingu Gunnlaugs Þórðarsonar
Khöfn, 1846, hið fágæta og eftir-
sótta leikrit Benedikts Gröndals
Gandreiðin, svo og Örvaroddsdrápa
eftir sama, Skýrslur Lærða skól-
ans fyrir árin 1851 —62, Stjörnu-
fræði úrsins í þýðingu Jónasar
Hallgrímssonar, Fimmtán tíðavísur
eftir Þórarin Jónsson Ak. 1853,
Sagasteads in Iceland eftir Coll-
ingwood, frumútgáfan af Njáls j
sögu 1772, Privatboligen pá Is-
land, doktorsrit Valtýs Guðmunds-
sonar, Ljóðakver Laxness, Niðjatal
Þorvalds Böðvarssonar og Björns
Jónssonar eftir Th. Krabbe, frum-
útgáfa ljóðmælum Bólu-Hjálm-
ars 1879, Iðunn Björns Jónssonar
I—VII, Skýringar yfir fornyrði
lögbókar eftir Pál Vídalín og margt
fleira .
Fran.hald aí bls. 1.
og bar brigður á vitneskju ríkis-
stjórnarinnar og krafðist þess
að Alþingi yrði látið vita jafn-
skjótt og eitthvað skeði í mál-
um þessum, eða ef til þess kæmi
að ríkisstjórnin veitti leyfi til
staðsetningu kjarnorkuvopna
hér.
Guðmundur í. Guðmundsson
svaraði því til að útilokað væri
fyrir hann eða meðráðherra
hans að gefa nokkur bindandi
loforð varðandi þetta atriði,
færi það að mestu Ieyti eftir
aðstöðunni og hvaða mat væri
hægt að leggja á ástandið
hverju sinni.
í framhaldi af upplýsingum
sínum um kjarnorkuvopn hér á
landi, sagði utanríkisráðherrann
svo frá, að rétt væri að hér
væru í notkun flugvélar, sem
útbúnar væru fyrir kjarnorku-
vopn, en hins vegar bæru þær
engin slík vopn og eins og fyrr
segir, fengju það ekki án leyfis
ríkisstjómarinnar.
Þjöffar teknir
Tveir þjófar voru staðnir að
verki í nótt, sinn á hvorum stað,
og náðust báðir.
Til annars þeirra sást þegar hann
var að reyna að komast inn í bif-
reiðar á bak við Steindórsprent.
Var Iögreglunni gert aðvart og
náði hún manninum, sem var
dauðadrukkinn. Við athugun kom
í Ijós að þarna var um mann að
ræða, sem á miðju s.l. sumri háfði
gerzt sfekur um sams konar athæfi.
Hinn þjófurinn var búinn að
Eins og marga rekur minni til
var hið nýja embætti forstöðu-
manns Handritastofnunar ríkisins
auglýst laust í sumar og dómnefnd
skipuð til að fjalla um umsóknir
þær, er bárust. Dómnefnd þessi
mun nú hafa skilað áliti, en um-
Framhald af bls. 1.
yndi. En svo fór að ekki varð um-
flúið að taka handlegginn af
drengnum ofan við olnboga. Sú
aðgerð hefir nú verið framkvæmd
og er líðan drengsins góð eftir at-
vikum.
'VSA/WWWWWWVWV'
| Fáklæddur
i; á ferð ij
ji í gærkveldi sást til fáklædds ji
cmanns undir beru lofti á Birki-
Jimel og var lögreglunni gert að-]>
<[vart um þetta fyrirbæri.
]> Lögreglumenn komu á stað-]»
<| inn og fundu manninn, sem <]
Jireyndist í minnsta lagi klæddur. ]»
Hann var ofurölvi og gat litla
Jigrein gert fyrir tilveru sinni, en,»
<]alls enga fyrir ferðum sínum. <,
]»Þó kom þar, að kunningi hins]<
<]fáklædda manns gaf sig fram<]
]»við lögregluna og skýrði henni]>
<]frá því, að hann hafi nokkrui]
]»áður hitt manninn mjög svo ryk]»
<[aðan á götu, farið með hann<[
jiheim til sín og háttað niður í]»
(’rúm. Sjálfur þurfti hann aði[
\ skreppa frá,- en á meðan not-]»
(’aði hinn tækifærið og Iaumað-([
]iist á brott — en fáklæddur einsji
(]og að framan getur. r
/WWWVWWSrfWWW^
stela tveim jökkum úr húsi við
Hverfisgötu og var með þá í fór-
um sfnum í nótt þegar hann var
handtekinn. Báðir þjófarnir voru
fluttir í fangageymslu lögreglunn-
ar og munu væntanlega þurfa að
standa fyrir máli sínu í dag.
sögn Heimspekideildar Háskólans
liggur ekki fyrir ennþá. Heyrzt
hefir að líklegast sé að prófessor
Einar Ólafur Sveinsson verði for-
stöðumaður Handritastofnunarinn-
ar.
Hver verður forstöðumaður?
Zetterling á Vatnajökli
Enginn fundur —
Framhald af bls. 1
Mai Zettferling og maður henn-
ar David Hughes hafa verið að
kvikmynda undanfarna viku. Frúin
er ekki ánægð með veðrið, sem
hefur verið mjög óheppilegt til
myná .töku.
Þau hafa kvikmyndað Sundlaug-
ar Reykjavíkur. Þangað komu þau
snenmia morguns og var forseti
Islands, hr. Ásgeir Ásgeirsson þar
eins og venjulega, eldsnemma. Þá
hafa þau kvikmyndað hjá Ás-
mundi Sveinssyni, myndhöggvara.
I gærkvöldi komu hjónin frá
Vatnajökli og Landmannalaugum,
en þar hefur kvikmyndataka þeirra
sfaðið yfir síðustu tvo dagana
Þau voru í morgun ekki viss um
hvað þau tækju fyrir næst. Það
fer dálítið jftir aðstæðum. Hjónin
reikna með því að verða 1 ér tvær
vikur til viðbótar.
með deiluaðilum s.I. föstudags-
kvöld en siðan ekki söguna meir.
Enginn fundur hafði verið boðaður
í morgun.
í stuttu máli: Síldin er seld fyrir
fram. verksmiðjurnar bíða tilbúnar
með stóraukinni afkastagetu frá
því í fyrra, bátarnir bíða bundnir
við bryggju, en samninga vantar
og ekkert gerist.
Áskrifendahappdrættið
Dregið verður í áskrifendahappdrætti Vísis eftir nokkra daga, þann
25. þ. m., Vinningurinn er forláta Elna saumavél, frá heilverzlun Árna
Jónssonar. —- Gerizt áskrifendur strax í dag. Hringið í síma 1-16-60,
Ágæt landabréfa-
bók gefin út hér
Hjá Ríkisútgáfu námsbóka er
komin út ný landakortabók í mörg-
um litum, sem undirbúin hefur ver-
i* af Helga Elíassyni, fræðslumála-
stjóra, Einari Magnússyni mennta-
skólakennara og Ágúst Böðvars-
syni forstjóra Landmælinga ríkis-
ins.
Skóla landsins hefur um langt
skeið skort hentuga landakortabók
með íslenzkum nöfnum og skýr-
ingum, en úr þessu ætti að vera
vel bætt með bók þeirri, sem hér
kemur út, því að hún virðist vönd-
uð að allri gerð, litir skýrir og
nöfn greinileg, svo að vart verður
á betra kosið. íslenzku kortablöð-
in eru greinileg og nafnmörg, svo
að ekki ætti að vera þörf á að
grípa til nákvæmari korta nema í
einstökum tilfellum.
Einstök kort eru m.a. þessi:
Hnattkort, sérkort um ioftslag,
hafstrauma, gróðurbelti, þjóð-
flokka og trúarbrögð, heimskauta-
löndin, Reykjavik og nágrenni, ís-
land: bergtegundir, landgrunn og
fiskimið, ísland: Yfirlitskort, ís-
land: fjórðungakort (4 opnur),
Norðurlönd og ýmis önnur einstök
Evrópulönd, heimsálfukort, sérkort
af Reykjavík (miðbænum) og Ak-
ureyri. Á kápu er stjörnukort og
kort af Palestínu á Krists dögum.
Aftast er nafnaskrá með um 5500
nöfnum. — Bókin á að geta nægt
bæði fyrir barnaskóla og gagn-
fræðaskóla. — Prentverk annaðist
Kartografiska Institutet, Stokk-
hólmi.
SjóHstæðisffélaganna
Sala miða í Skyndihappdrætti ingarnir, sem allir eiga kost á
Sjálfstæðisflokksins er í fullum að eignast ef þeir kaupa sér
gangi. Niðri við Otveg bank miða i hinu glæsilega skyndi-
ann i Austurstræti standa þrír happdrætti. Fresturinn styttist
splunkunýir Volkswagen-bílar óðum. Dregið verður 26. októ-
af-nýjustu gerð. Þetta eru vinn- ber. Kaupið miða strax í dag.