Vísir - 22.10.1962, Side 3
VlSIR . Mánudagur 22. október 1962.
1——B8—^HmMaBa'imwiiNniwu
1
ia
vv.. ..
':>ÍA:^íí:;
< ■'' \
** + ' i
:
i ^ i
;
. S . -í ■ N
':;óí&
Kirkjuþing íslenzku þjóðkirkj-
unnar, hið þriðja í röðinni, er nú
hafið hér í Reykjavík. Á þinginu
mun m. a. verða rætt mikið um
það hvort halda skuli í prests-
kosningar, eða afnema þær Það
mál hefir verið sent til um".?gnar
héraðsfunda í prófastsdæmunum
milli þinga og munu langflestar
umsagnimar hneig'ast í þá átt að
prestskosningar verði afnumdar og
prestar skipaðir í embættin í sam-
ráði við fyrirsvarsmenn kirkjunnar
í hverju prestakalli. Munu flestir
sætta sig betur við það fyrirkomu-
lag er fram líða stundir,
Eflaust verður margt rætt um
starfshætti kirkjunnar á Kirkju-
þinginu og þyrfti að breyta þeim
til samræmis við kröfúr tímanna
með ýmsum hætti og jafnvel gjör-
breyta ýmsu. En þó er og verður
það grundvallaratriði trúariífsins í
landinu að almcnningur taki virkan
þátt f því frá blautu bamsbeini,
m. ö. o. að bænrækni á heimilun-
um og kirkjurækni sé endurvakin.
Er það alvarlegt íhugunarefni fyrir
alla foreldra og uppalendur, sem
gera sér ljóst, hve miklu máli það
skiptir að áhrif kristindómsins
þurrkist ekki út úr þjóðlífinu og
heiðnar lífsskoðanir og guðsaf-
neitun komi í þeirra stað. Það
bera allir ábyrgð á framtíðinni í
þessum efnum eins og hver og einn
ber ábyrgð á sínum börnum, en
ekki prestarnir einir.
Myndin er af setningu Kirkju-
þingsins í Neskirkju, biskup ís-
lands, herra Sigurbjörn Einarsson,
stendur í kór og setur þingið.
Kirkjuþing hefst
Neðri myndin er af öðru kirkju-
þingi, hinu mikla þingi Rómversk-
Kaþólsku kirkjunnar, sem nú er
haldið í Rómaborg. Þar sést Jó-
hannes páfi 23. og nokkrir af
æðstu mönnum Kaþólsku kirkjunn
ar, sem komnir eru af fjarlægum
löndum margir hverjir. Þetta þing
hefir að sjálfsögðu ekki eins mikil
bein áhrif á kirkjulíf á Islandi og
Kirkjuþing Þjóðkirkjunnar í Nes-
kirkju, þótt fámennt sé. Engu að
síður er það von margra að Kirkju-
þingið f Róm hafi bein og óbein
áhrif innan gjörvallrar kristninnar
í einingar og sameiningarátt, það
á að vera hlutverk þess.
Innan vébanda mótmælendakirkn
anna í heiminum hefir þegar um
alllangt árabil gætt sívaxandi skiln
ings og viðleitni í þá átt að kirkju-
deildir, sem hafa ólík sjónarmið að
ýmsu leyti, taki höndum saman
um varðveizlu þess, sem allir
kristnir menn eiga sameiginlegt og
dýrmætast. Alkirkjuráðið, sem hef-
ir aðsetur í Genf, er Ijósasti og á-
hrifaríkasti vottur þeirrar sam-
vinnu.
asta mark kvöldsins hjá Gylfa.
Geir bætti síðan tveim mörkum
við með hörkuskotum, 10:9. Jó-
hann Gíslason skoraði síðan 11:9
rétt fyrir leikslok og tryggði \-ík-
ingi sigur, sem með smáheppni
hefði eins getað lent hjá „fallistun
um“ úr 1. deildinni í fyrra.
Beztu menn liðanna voru Sigurð
ur Dagbjartsson, Gylfi Jónsson og
Geir Hjartarson hjá Val, en Helgi
markvörður, Pétur Bjarnason og
Sigurður Hauksson hjá Víkíng.
FRAM — ÁRMANN 12:10.
Flestir höfðu búizt við heldur
auðveldum sigri Evrópubikarliðs
Fram yfir Ármenningunum, sem
gerðu það heldur endasleppt í 2.
deildinni í fyrra og urðu í 3. sæti
eftir Þrótti og Haukum úr Hafnar-
firði. Raunin varð hins vegar sú
að Ármenningarnir höfðu yfirburði
í fyrri hálfleiknum, en urðu að láta
undan síga í hinum síðari fyrir
krafti og hörku Framara. Bezti
handknattleikur kvöldsins var þó
framleiddur af Ármenningunum í
hinum nýju og faiegu ljósbláu bún
ingum. Ármenningar náðu forystu
! leiknum eftir að Framarar iðfðu
;ótt mikið og hart að marki beirrn.
/ar hraði f leiknum mikill og ólík-
ur hinum fyrri og þeim sem á eft-
ir kom. Fram náði forystu elnu
sinni f fyrri hálfleik, en það var
þegar Guðjón skoraði 3:2 fyrir
Fram, en bæði það mark og mark
Karls Ben. sem jafnaði 2:2 voru
hálfgerð klaufamörk. Markvörður
Ármanns, Sveinbjörn Björnsson
átti stórkostlegan leik og varði ó-
trúlegustu skot og vörnin átti
mjög góðan leik í fyrri hálfleik,
en síðari hálfleikurinn afhjúpaði út
haldsleysi Ármenninga en góða
æfingu Fram, sem náði yfirhönd-
inni í lokin eftir að Ármenningar j
höfðu haft yfir 9:6, en Framarar
skoruðu síðan sex mörk í röð og
höfðu leikinn í hendi sér og unnu
12:10.
ÞRÓTTUR — KR 11:10.
Sigur nýliðanna í 1. deild undir-
strikar svo sannarlega fyrir KR að
fallið í 2. deild gín við liðinu ef
ekki verður við gert. Stjörnur ’.iðs
ins: Karl, Reynir og Heinz duga
ekki lengur til að afla sigra Leik
ur þessi var annars mjög illa leik-
inn og greinilegt að hvorugt liðið
er í nándar nærri nógu góðri æf-
ingu.
Sigurinn var einungis Grétari
Guðmundssyni, elzta leikmaini
liðsins að þakka. Reynsla hans og
kunnátta vísaði honum alltaf á
smugurnar í KR-vörninni og þann-
ig skoraði hann 6 markanna fyrir
lið sitt.
Kr tók forystuna eftir fátækleg-
ar tilraunir beggja liða að skora.
Næsta mark var líka KR-ma.k.
Grétar jafnar fyrir Þrótt og enn
jafnar hann í 3:3 eftir að Reynir
skoraði fyrir KR. Þróttur koinst
síðan yfir og í hálfleik var stað-
an 5:4 fyrir Þrótt. I síðari hálfleik
komust Þróttarar upp í 10:6, en
byrjuðu jafnframt að reyna ?.ð
tefja leikinn, sem vel að merkja
verður bráðlega bannað í nand-
knattleik. Þessi leikaðferð reynd-
ist vel fyrir KR, því hvað eítir
annað komUst þeir inn í leik Þrótt-
ar og skoruðu. Gerðist leikurinn
allspennandi undir lokin og voru
KR-ingarnir á góðri leið með að
jafna, en Þróttarar sóttu ekki að
marki KR. Það var aðeins heppni
Þróttara að dómarinn, Gylfi Hjálm
arsson flautaði af er leikar voru
þeim í hag 11:10.
Umsjónarfélög leikkvölda á Há-
logalandi ættu að reyna að koma
betra skipulagi á afgreiðslumál að-
göngumiða en var fyrsta kvöldið,
en þá varð fólk að standa úti í
rigningunni og kuldanum alllengi
áður en inn varð komizt.
óvænt
úrslit
í gær
I gærkveldi var Handknattleiks-
mótinu haldið áfram að Háloga-
landi og urðu úrslit sem hér segir:
2. flokkur kvenna: Víkingur —
Fram 7 — 4.
2. flokkur kvenna: /irmann —
K.R. 6-2.
2. flokkur kvenna: Valur —
Þróttur 8 — 3.
3. fl. karla A riðill: K.R. —
Valur 8 — 6.
3. fl. karla B riðill: Víkingur —
I.R. 9-4.
2. fl. karla A riðlii: K.R. —
Fram 6 — 5.
2. fl. karla A riðill: Valur — Í.R.
11-10.
2. fl. karla B riðill: Víkingur —
Ármann 9 — 5.
Úrslit í sumum flokkum komu
mikið á óvart, t. d. sigur K.R.
yfir Fram í 2. flokki, en á íslands-
mótinu var lið Fram eitt það bezta
en K.R. aftur í lélegra helmingnum
en nú sigruðu þeir verðskuldað yf-
ir liðinu, sem hefur 4 leikmenn er
taka þátt 1 Evrópukeppninni.
Framarar leggja sýnilega mikla á-
herzlu á meistaraflokkinn í ár, því
2. flokkinn vantaði alla samæf-
ingu. Þá kom verðskuldaður sigur
K.R. í 3. flokki yfir íslandsmeist-
urum Vals mikið á óvart, og mót-
staða Í.R, á móti Val í 2. flokki
vakti ekki síður undrun áhorf-
enda í gær en þar var litli bróðir
Gunnlaugs Hjálmarssonar, Gylfi,
aðal driffjöðurin. Kep.
Markhæstír
Markahæstir 1 fyrstu leikjum
Reykjavíkurmótsins:
Ingólfur Óskarsson, Fram 8
Grétar Guðmundsson, Þrótti 6
Hörður Kristinss., Ármanni 5
Reynir Ólafsson, KR 5
Gei'r Kristjánsson, Val 4