Vísir - 29.10.1962, Page 3

Vísir - 29.10.1962, Page 3
VlSIR . Mánudagur 29. október 1962, 3 Hér býður Sigurður upp altarisdúk úr hör og silfur, sem fór á 2500 krónur. Kaupandi var Pétur Guðjónsson. MARGIR GERÐU GÓÐ KAUP Fjöldi glæsilegra muna var á uppboði Sigurðar Benediktsson- ar í Þjóðleikhúskjallaranum á laugardaginn. Það hefði mátt búast við áköfum boðum en Sig urður var greinilega ekki ánægð ur, og sagði marga hafa fengið góða hluti fyrir alltof lágt verð. Miðaði hann verðið á silfurmun- unum við það hvað þeir kost- uðu til bræðslu, enda gerði a. m. k. einn gullsmiður góð kaup, ef þannig er á hlutina litið. Á uppboðinu voru eins marg- ir og komust í sæti. Björn Snæ- bjömsson stórkaupmaður keypti senniiega flesta. Jón Arason keypti dýrasta hlutinn, stóra silfurskál, á 16 þúsund. Guðjón Valgeirsson, fulltrúi keypti hring, sem Sigurður telur einn dýrmætasta hlut, sem hann hef- ur haft á uppboði, og fékk hann fyrir 15 þúsund krónur, en hann mun hafa boðið í hringinn fyrir annan. Óskar Gíslason gullsmið ur keypti silfurskál 12 þúsund krónur, og sagði Sigurður að verðið væri ekki einu sinni fyrir þyngd hennar í hráu silfri. Sigurður Benediktsson býður upp skál, sem seldist á 16 þúsund krónur, en það var hæsta verð á uppboðinu. Hjá Sigurði stendur Benedikt sonur Sigurðar. Á uppboði: Talið frá vinstri: Guðni Jónsson úrsmiður, Magnús Brynjólfsson stórkaupmaður, Hösk- uldur Ólafsson bankastjóri, Hannes Johnson, Guðjón Valgeirsson fulltrúi. Konur og ungar stúlkur fylgdust með uppboðinu af engu minni áhuga en karlmennirnir. Stúlkurnai fremst á myndinni eru dætur Jóns Sigurðssonar slökkviliðsstjóra.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.