Vísir - 29.10.1962, Side 5
VÍSIR . Mánudagur 29. október 1962.
Gullfoss —
Framh. af 1. síðu.
suður af Dyrhólaey,
meðan skipið veltist í
roki og sjógangi, hafði
bam fæðzt í þröngum
farþegaklefa á neðri.
gangi.
„Sunnudag 28. okt. 1962 kl.
03,15 GMT, er Gullfoss var
staddur á 63° N. breiddar og
17° V. lengdar á Ieið frá Leith
til Reykjavíkur fæddi frú
Ragnhciður Jónsdóttir svein-
barn. Faðir barnsins er eigin-
maður hennar, Hafsteinn Ingv
arsson tannlæknir.
Undirritaðir staðfesta fæð-
I
ínguna með innilegum ham-
ingjuóskum til barns og for-
eldra.
Kristján Aðalsteinsson,
skipstjóri,
Ólöf Kristjánsdóttir,
ljósmóðir,
Hannes Hafstein,
2. stýrimaður,
Iiulda Helgadóttir,
yfirþema,
F'imbogi Gíslason,
3. stýrimaður.
Með slíkt hátíðlegt skjal varð'
litla drengnum, sem fæddist við
undirleik úthafsins, ekk' skota-
skuld úr þvi að komast gegnum
eftirlit íslenzkra embættis-
manna.
Fáeinir fréttamenn Reykjavík
urblaðanna fengu að koma með
út á ytri höfnina og fara niður
í farþegaklefann. Og þar sat
móðirin upp við dogg sælleg og
glöð, en barnið skammt frá
henni í lítilli körfu. Það hafði
fæðzt mánuði til fimm vikum
fyrir tímann, segir móðirin og
er svo lítið og viðkvæmt, að það
má ekki hreyfa við því, fyrr en
karfan hefur verið flutt upp á
fæðingadeild.
— Hvernig er líðanin? spyrj-
um við Ragnheiði.
— Ég er nú bara stálslegin.
— Var þetta fyrsta barnið?
— Nei, við áttum tvo drengi
fyrir. Síðan segir hún að hún
Heimdallur ræðir
Kúbumólið
Birgir ísleifur Gunnarsson.
F.U.S. Heimdallur ræðir Kúbu-
málið á fundi annað kvöld í Val-
höll. Hefst hann kl. 20.30. Frum-
-nælandi verður Birgir ísleifur
Gunnarsson lögfræðingur. Þetta er
fyrsti almenni umræðufundur fé-
'agsins . þessum vetri.
Kúbumálið er efst á baugi í
æimsmálunum þessa dagana. Sov-
ítstjórnin hefur ógnað heimsfrið-
inum með tilraunum sínum til að
kapa sér aðstöðu til árása og und-
irróðurs í S-Ameríku.
Stjóm Heimdallar skorar á með-
limi félagsins að fjölmenna.
hafi verið sjóveik á leiðinni og
um miðnætti um nóttina hafði
hún fundið að barnið var að
koma. Þá vildi svo vel til, að
Ijósmóðir var með skipinu, Ólöf
Kristjánsdóttir úr Reykjavík.
Skipsmenn segja okkur, að það
hafi komið sér vel, að ljósmóðir
var með, þvl að fyrst eftir að
barnið fæddist, ætlaði það ekki
að anda, en ljósmóðirin kunni
ráð við því. Henni til aðstoðar
við ljósmóðurstörfin voru svo
Hulda Helgadóttir yfirþerna og
Hannes Hafstein stýrimaður. Og
fæðingin gekk vel í þrönga klef-
anum — það var fyrir öllu.
— Var þetta ekki erfiðara og
sársaukafyllra en að eiga barn
á fæðingadeild? spyrjum við
móðurina.
— .Nei, alls ekki. Mér fannst
það jáfnvel ganga betur. Munur-
inn er aðfeins sá, að á fæðinga-
deildum er öryggið meira, ef
eitthvað kemur fyrir.
Og nú kemur í ljós, að eigin-
maðurinn. Hafsteinn Ingvarsson,
er þarna skammt frá.
— Ég var nú króaður hér inni
I kojukróknum meðan þetta var
að gerast, segir hann við okkur.
Þar hafði hann gætt eldri son-
anna, Jóns Óskars, sem er 5
ára, og Þorvarðs, sem er eins og
hálfs árs. .
— Við vorum að koma heim,
eftir að ég hafði lokið tann-
læknanámi, segir hann. Þegar
við fórum frá Kaupmannahöfn,
voru þeim drengjunum gefnir
tveir páfagaukar. Og þegar Jón
Óskar heyrði í morgun að hann
hefði eignazt bróður um nótt-
ina, mælti hann spaklega á sinn
hátt:
— Jæja, mamma, þá komum
við heim með tvo páfagauka og
einn nýjan bróður.
Það ríkti sannarlega gleði hjá
þessari litlu fjölskyldu £ þrönga
klefanum, vegna þess að allt
hafði gengið vel. Þeim höfðu
borizt hamingjuóskir víðs vegar
að. Og það var gleði meðal
farþega og áhafnar skipsins.
Þetta var fyrsta barnið, sem
fæðist um borð í Gullfossi, og
einn skipsmanna sagði: — Við
vorum eiginlega okkar í milli
búin að gefa drengnum nafn. —
Við viljum kalla hann „Haf-
stein“, og það vill þá einmitt
svo vel til, að faðirinn heitir
því nafni.
Eftir á hittum við ljósmóður-
ina og spurðum hana hvort það
hefði nokkurn tíma komið fyrir
hana á ferðalögum, að þurfa að
hjálpa með þessum hætti.
— Nei, svaraði hún, ekki á
ferðalögum, nema einu sinni fyr
ir nokkrum árum þurfti ég að
taka á móti barni á Hringbraut-
inni í sjúkrabíl á leiðinni upp á
fæðingadeild.
2. stýrimaður er heldur sagna-
fár um atburðinn, sem hann að-
stoðaði við. Það er ekki fyrr en
rétt þegar fréttamaðurinn, sem
er kunningi hans, er að ganga
frá skipinu, að hann víkur sér
að honum og segir: — Ég get
aðeins sagt þér það, að það er
dásamlegur viðburður, þegar
barn fæðist. Það er dásamlegasti
viðburður í heiminum. j
Geislun —
Framh. af 1. síðu.
sem búa í Noregi á sömu breidd
argráði og Reykjavík stend-
ur á.
Landlæknir kvaðst að svo
stöddu ekki hafa í hyggju að
skipuleggja víðtækar mælingar.
Hins vegar hefði hann farið
fram á það við nokkra hópa,
sem eru á leið til útlanda, að
þeir létu mæla geislun f líkama
sínum. Þangað til niðurstöður
Halldór Kiljan Lax-
ness rithöfundur kom í
gær heim með Gullfossi
úr langri ferð til útlanda.
Fréttamaður Vísis hitti
hann um borð, þegar
skipið var að sigla inn
á höfnina og fékk
skyndisamtal við skáld-
ið, þar sem það sat inni
í klefa sínum nr. 25.
— Hvað finnst yður um á-
standið á Kúbu? Þér viijið e. t.
v. fordæma Bandaríkjamenn?
— Nei, ég ætla ekkert að fara
að tala um það. Áður en ég fór
frá Kaupmannahöfn heyrði ég
ræðu Kennedys forseta, og síðan
hef ég ekkert fylgzt með þessu.
Ég er andstæðingur „kalda
stríðsins”, hata það og fyrirlít
og lyktin af því fyllií mig við-
bjóði.
— Fannst yður að John Stein
beck ætti skilið að fá Nóbels-
verðlaunin?
— Ég hef fylgzt með Stein-
beck frá því hann fór að gefa
út sínar fyrstu bækur. Við erum
á sama aldri og einkanlega
kynntist ég vel fyrri ritum hans.
Maður las meira af bókum á
fyrri árum og svo Ies maður oft
vissan part af framleiðslu höf-
undar og myndar sér þannig
skoðun á honum. Seinni bækur
hans þekki ég ekki eins vel.
— Þér hafið kannski hitt
hann þegar þér dvölduzt í Am-
eríku?
— Nei, ég hef aldrei hitt
hann né haft neitt samband við
hann. En mér finnst að hann hafi
„Lyktin afkalda stríi-
iau fyllir mig viibjóii"
— Stutt rabb við LAXNESS nýlegu heimkominn
átt skilið að fá verðlaunin, ég
hef alltaf álitið hann einn af
fremstu rithöfundum Bandarikj-
anna. Það koma fram í hugann
bækur hans eins og Mýs og
menn og Þrúgur reiðinnar.
— Þér hafið heyrt að sumir
gagnrýna mjög harðlega að
Steinbeck skyldi fá verðlaunin,
sumir segja að 30 rithöfundar
hefðu átt þau betur skilið. Hefð
uð þér viljað veita verðlaunin
einhverjum öðrum, ef þér hefð-
uð ráðið?
— Það er sjálfsagt hægt að
finna einhverja honum fremri.
En það hefur aldrei komið til
greina að ég færi að veita Nó-
belsverðlaun. Ég hef aldrei einu
sinni notfært mér rétt minn til
að mæla með einum eða neinum
við akademíuna.
— Og viljið þér svo að lokum
greina frá því á hvaða ferðalagi
þér hafið verið núna?
— Ég hef ferðazt langt — um
Skandinavíu, Rússland, England
og Þýzkaland.
— Og hvert var erindið?
— Eins konar verzlunarferð,
að semja við sín viðskiptasam-
bönd.
— Og selduð þér nokkuð?
Nú gl'Tir skáldið við spurn-
ingunni. — Ja, svona þetta vana
Iega, það er veriö að gefa bæk-
urnar mínar út bæði fyrir aust-
an og vestan. Það er einna
skemmtilegast til frásagnar, að
nú er verið að gefa Sjálfstætt
fólk út á „Bengali", tungumáli
Tagores.
kvörðun um það hvort fram-
kvæmdar verða fjöldamælingar
hér. Hættan er engin, en við
viljum hafa vaðið fyrir neðan
okkur sagði landlæknir.
þær kröfur, sem gerðar er til að
stöðu í sambandi við þær. Mundi
„standardinn" á Reykjavíkursjúkra
húsunum óhjákvæmilega lækka
niður á það sem er á sjúkrahúsum
úti á landi. Væri það ekki talið
verjanlegt ástand á aðalsjúkrahús
um í einu landi.
Yfirleitt er nú farið að líta svo
á, að Kúbumálið sé úr sögunni,
þótt eftir sé að ljúka því formlega.
Þv£ hefur lyktað með fullum sigri
og miklum álitsauka fyrir Kennedy
forseta.
Uppgjöf —
Hætta þeir —
Framh. af 1. sfðu.
andi læknar fenau kjarabætur, en
ekkert hefði orðið úr þvf. Taldi
hann að þessi kjarabarátta hefði . Framhald at bls 1
dregizt úr hömlu, þar sem tvö ár rfkjamanna reyndust og siðferði-
væru liðin síðan hún hófst. [ lega mjög sterkar, því að þær stjórn stofnunarmnar verður skip-
Læknarnir gera kröfur um greiðsl I gengu aðeins út á það að stöðva : u®-
EINAR ÓLAFUR SVEINSSON -
Framh at 16 síðu
um að koma þessu vel af stað.
Annars er réttara að bfða með að
ræða þetta frekar, þangað til
ur fyrir vaktavinnu og unna frí- | vopnasendingar og þegar allt kem-
daga, auk hækkandi bílastyrks. er | ur a]js eru f^;r rnótfallnir þvf
hefur verið óbreyttur síðan 1954. að stöðva vopnasendingar. I þriðja
I ^ambandi vio pennan yfirvof- . . * . , .. ,
andi læknaskort á sjúkrahúsunum la?’ var aðstaða Russa ve.k á
tjáði annar Iæknir Vísi í morgun, Kuf)u emfaldlega vegna þess, að
að eftir b.ottför læknanna yrði eyjan er í svo mikilli fjarlægð frá
þeirra mælinga væru fengnar ekki unnt að gera ýmsar aðgerðir j Sovétríkjunum, að Rússar gátu
yrði ekki tekin endanlega á- f sjúkrahúsunum án þess að lækka ekki varið hana.
Vísir hefur komizt eftir því, að
stjórn Handritastofnunar íslands
verði væntanlega skipuð innan
skamms, en í henni eiga sæti auk
forstöðumanns, þjóðminjavörður,
landsbókavörður, þjóðskjalavörður
og þrfr menn aðrir, kosnir af há-
skólaráði.