Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1998, Qupperneq 16

Tölvumál - 01.12.1998, Qupperneq 16
Menntamál Kennsluhugbúnaður, staða og framtíð Tryggvi Jakobsson Nú eru í dreifingu samtals nærri I 00 kennsluforrit sem Námsgagnastofnun hefur gefið út síðan 1990. Um 20-25 % þeirra eru íslensk I miðstöð sem jbessari skapast kjörinn vett- vangur fyrir fyrir tölvunarfræðinema, kennaranema, náms- efnishöfunda og aðra til að sinna verkefnum á sviði kennsluhug- búnaðargerðar og ráðgjafarstörfum Allar götur M því að tillögur mennta- málaráðuneytisins um menntun, menningu og upplýsingatækni: / krafti upplýsinga kornu út í mars 1996 hefur upplýsingatækni í skólum verið rneira í sviðsljósinu en nokkru sinni fyrr. Nú líður að því að nýjar námskrár grunn- og framhaldsskóla líti dagsins ljós, en áætlað er að þær komi út fyrir árarnót. Þær munu því verða það leiðarljós sem lýsa mun veginn fram á nýja öld í skóla- starfi á íslandi. Síðastliðið vor gaf menntamálaráðuneytið út ritið Enn hetri skóli, þar sem birtur var sá grundvöllur sem endurskoðun námskránna byggir á. Þar segir rneðal annars: Upplýsingatækni verður sjálfsagt hjálp- artæki í öllum námsgreinum. Upplýs- ingalæsi, en svo nefnist hæfni til að safna, greina og setja fram upplýsingar, verður skyldunámsgrein frá upphafi til loka grunnskóla. Þar verður rík áhersla lögð á almenna upplýsingatækni og leikni í notkun tölvu í nárni og starfi. Öllum grunnskólabörnum er nauðsyn- legt að hafa aðgang að margmiðlunar- tölvum og netinu. Samkvæmt fjárlögum sem nú liggja fyrir Alþingi verður 135 milljón krónum varið á árinu 1999 í sérstakt átak er nefnist Islenska upplýsingasamfélagið. Gert er ráð fyrir að stærstum hluta framlags af þeirn lið verði varið til þess að smíða íslenskan kennsluhugbúnað, endurmennta kennara og kaupa tölvubúnað fyrir skóla. I þessari grein vil ég einkum staldra við tvennt er varðar þessa stefnumörkun stjórn- valda; Það er smíði kennsluhugbúnaðar og stofnun þjónustumiðstöðvar á sviði upplýsingatækni fyrir starfandi kennara, kennaranema og aðra þá sem þurfa á þjónustu slíkrar miðstöðvar að halda. Gerð kennsluhugbúnaðar Námsgagnastofnun hefur nú um árabil verið í fararbroddi þeirra sem sinnt hafa gerð og útgáfu kennsluhugbúnaðar á íslandi. Stofnunin tók formlega við norrænum samskiptum á sviði kennslu- hugbúnaðargerðar af Reiknistofnun Háskólans árið 1992 og hefur fengið mörg forrit til þýðingar og dreifmgar í því sam- starfi. Auk þess hafa æði mörg íslensk for- rit litið dagsins ljós á þessurn tírna, en stærst þeirra er Islandshandbókin, fyrsti alíslenski margmiðlunardiskurinn, sem kom út í árslok 1995. Nú eru í dreifmgu samtals nærri 100 kennsluforrit sem Námsgagnastofnun hefur gefið út síðan 1990. Um 20-25 % þeirra eru íslensk en hin eru flest fengin í norrænu forritaskipt- unum og hafa verið þýdd og staðfærð. Flest þessara fon'ita eru ætluð grunn- skólum, en nokkur þeirra nýtast forskóla- stiginu eða þá framhaldsskólum. Þau eru flest gerð fyrir Windows umhverfí. Eins og sést af þessu súluriti eru flest forritanna í íslensku og stærðfræði og æði mörg nýtast vel til sérkennslu. Annars dreifast þau á flestar námsgreinar. Almennar upplýsingar um forritin og uppsetningu þeirra er að fmna á heimasíðu Námsgangastofnunar: http://www.namsgagnastofnun.is. Sú skipan er smátt og smátt að kornast á að kennsluhugbúnaður verði eðlilegur hluti þess námsefnis sem nemendum stendur til boða. Með heildstæðri stefnu í námsefnisgerð verður að meta hverju sinni hvaða rniðill eða miðlar henta náminu best. Þar verður jafnt að huga að þörfínni, hver notendahópurinn er og við hvaða aðstæður námsefnið er notað. Stundum þjónar þá margmiðlunarefni tilganginum best, en stundum einfaldlega gamla góða námsbókin, verkefnahefti eða myndefni eða þá það sem líklegast er, einhver blanda þessara miðla. Nú er hafin vinna við útgáfu nýs námsefnis í stærðfræði fyrir allt grunn- skólastigið. Slík endurnýjun er ekkert áhlaupaverk, en ákveðið hefur verið að þýða og staðfæra danskan námsefnisflokk þar sem allt fylgist að: Nemendabækur, verkefnamöppur, kennsluforrit og kennslu- leiðbeiningar. Hin öra þróun í dreifingu efnis á netinu mun líka áreiðanlega hafa 16 Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.